hásingavæða toyotuna mína


Höfundur þráðar
iceman76
Innlegg: 214
Skráður: 02.nóv 2011, 12:58
Fullt nafn: snorri einarsson
Bíltegund: nissan patrol 1996

hásingavæða toyotuna mína

Postfrá iceman76 » 21.jan 2012, 08:54

mig langar að setja framhásingu undir toyotuna mína. en hvað á maður að setja undir hann? þetta er toyota tacoma 95 árgerð með drifkúluna vinstra megin.
mér er sagt að ég eigi að setja dana 44 (ford) undir. en hvað segið þið um það? ég er með 4runner afturhásingu með 5:29 er hægt að finna dana 44 með 5:29 eða þarf ég aftur hásingu líka? vonandi geti þið hér á spjallinu aðstoðað mig með þetta.
með fyrirfram þökk snorri..




Heiðar Brodda
Innlegg: 623
Skráður: 08.mar 2010, 19:59
Fullt nafn: Heiðar Steinn Broddason
Bíltegund: 4Runner '87 38''
Staðsetning: Egilsstaðir

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá Heiðar Brodda » 21.jan 2012, 11:55

sæll er ekki pajero með 5:29 man reyndar ekki þetta með drifkúluna kv Heiðar

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá ellisnorra » 21.jan 2012, 13:02

Er ekki einfaldast að skipta um millikassa, setja hefðbundinn millikassa með framdrifs úttaki hægra megin og hásingavæða svo hefðbundið.
Hvaða mótor er í honum? Ssk eða bsk?
http://www.jeppafelgur.is/


Höfundur þráðar
iceman76
Innlegg: 214
Skráður: 02.nóv 2011, 12:58
Fullt nafn: snorri einarsson
Bíltegund: nissan patrol 1996

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá iceman76 » 21.jan 2012, 14:23

það 3.4 4runner 190 hp bsk 38'' breittur

User avatar

smaris
Innlegg: 233
Skráður: 16.feb 2010, 23:50
Fullt nafn: Smári Sigurbjörnsson

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá smaris » 21.jan 2012, 14:59

Ég á handa þér 9,5" LC 60 framhásingu með kúluna réttu megin.
Þú getur líka bara hring og fengið uppskriftina.

Kv. Smári s:896-7719.

User avatar

Svenni30
Innlegg: 1164
Skráður: 05.maí 2011, 14:49
Fullt nafn: Sveinn Haraldsson
Bíltegund: Toyota hilux
Staðsetning: Dalvík

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá Svenni30 » 21.jan 2012, 15:22

iceman76 wrote:það 3.4 4runner 190 hp bsk 38'' breittur


Sorry að ég riðst svona inn í þráðinn hjá þér, en hvernig er þessi vél að koma út ?
Hvernig er krafturinn og eyðslan ?
Sveinn Haraldsson
Toyota hilux 38"

User avatar

smaris
Innlegg: 233
Skráður: 16.feb 2010, 23:50
Fullt nafn: Smári Sigurbjörnsson

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá smaris » 21.jan 2012, 16:57

Ég stelst til að svara þessu með vélina.
Ég er búinn að eiga 4Runner með þessari vél í mörg ár og er mjög ánægður með hana. Allur venjulegur akstur er alveg átakalaus og hljóðlaus en svo er hún vel spræk þegar á þarf að halda. Eyðslan er mjög ásættanleg í venjulegum akstri, hefur verið 12 og uppúr, en hún getur líka sopið vel í átökum. Hef verið með 3 lítra vélina líka og kemst hún varla í hálfkvist við þessa. Mikið þunglamalegri og lítið betri en 22R.
Bíllinn hjá mér er óbreyttur og sjálfskiptur.

Kv. Smári.


Höfundur þráðar
iceman76
Innlegg: 214
Skráður: 02.nóv 2011, 12:58
Fullt nafn: snorri einarsson
Bíltegund: nissan patrol 1996

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá iceman76 » 21.jan 2012, 19:10

smaris wrote:Ég stelst til að svara þessu með vélina.
Ég er búinn að eiga 4Runner með þessari vél í mörg ár og er mjög ánægður með hana. Allur venjulegur akstur er alveg átakalaus og hljóðlaus en svo er hún vel spræk þegar á þarf að halda. Eyðslan er mjög ásættanleg í venjulegum akstri, hefur verið 12 og uppúr, en hún getur líka sopið vel í átökum. Hef verið með 3 lítra vélina líka og kemst hún varla í hálfkvist við þessa. Mikið þunglamalegri og lítið betri en 22R.
Bíllinn hjá mér er óbreyttur og sjálfskiptur.

Kv. Smári.

alveg samála þetta er þrusu skemtileg vél

kv snorri


Höfundur þráðar
iceman76
Innlegg: 214
Skráður: 02.nóv 2011, 12:58
Fullt nafn: snorri einarsson
Bíltegund: nissan patrol 1996

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá iceman76 » 22.jan 2012, 08:14

elliofur wrote:Er ekki einfaldast að skipta um millikassa, setja hefðbundinn millikassa með framdrifs úttaki hægra megin og hásingavæða svo hefðbundið.
Hvaða mótor er í honum? Ssk eða bsk?

hvaða millikassa á ég þá að setja þarf ég ekki að skifta um gírkassan líka?

kv snorri


Höfundur þráðar
iceman76
Innlegg: 214
Skráður: 02.nóv 2011, 12:58
Fullt nafn: snorri einarsson
Bíltegund: nissan patrol 1996

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá iceman76 » 24.jan 2012, 13:36

vantar enþá hugmyndir hvað ég eigi að gera? ef að ég á að skifta um millikassan, hvað þarf ég að gera? er það bara millikassinn eða allur gírkassinn eða er ekki bara einfaldara að finna hásingu méð kúluna vinstra megin?

kv snorri

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: hásingavæða toyotuna mína

Postfrá Kiddi » 24.jan 2012, 14:37

Það er í rauninni voðalega lítið mál að taka hásingu sem er með drifið hægra megin og færa það vinstra megin.
Ég hef gert þetta einu sinni og myndi hiklaust gera þetta aftur, það var Dana 44 hásing.

Ég slípaði fyrst upp suðurnar við bæði innri liðhúsin og barði þau af. Sagaði síðan lengra rörið í sömu lengd og það styttra og sauð það á hinu megin með renndri stýringu innan í. Setti síðan liðhúsin aftur á, stillti spindilhallann og sauð allt fast. Ég var líka búinn að renna klossa sem boltuðust í legubakkana og var með þráðbeinan 30 mm öxul í gegn, þannig stillti ég hásinguna af þannig að hún var bein.

Kostirnir við þetta umfram það að skipta um millikassa (fyrir utan það að losna við að skipta um kassa) eru að það þarf ekkert að breyta pústinu eða færa annað dót og drasl sem getur verið fyrir. Nú síðan ræður maður spindilhallanum og getur hallað pinioninum eins og maður vill.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur