4Runner á 44" Breitingarskeiði


Höfundur þráðar
Gísli R
Innlegg: 38
Skráður: 10.feb 2011, 22:54
Fullt nafn: Gísli Rúnar Kristinsson

4Runner á 44" Breitingarskeiði

Postfrá Gísli R » 02.mar 2011, 21:56

Jæja fyrst maður er byrjaður að rífa og skera fyrir 44", er um að gera þráð um bílinn til að halda manni við efnið.
Þessa bensínfyllibyttu keypti ég í byrjun feb 2009 og var hann þá á 35 dekkjum og án alls aukabúnaðar.
Í fyrstu atrennu gerði ég eftirfarandi við bílinn í febrúar 2009

5,29 hlutföll og ARB loftlás að aftan
ARB loftdælu og 10 ltr kút
VHF talstöð
CB talstöð
38" Mudder 12" breiðum prime felgum
Fjarstart
Aukatankur (á samt eftir að setjann í)
Prófíltengi aftan
Kastaragrind og prófíltengi framan
4 kastarar

Svo sel ég bílinn í MAÍ 2009 :(

EN svo kaupi ég bílinn aftur í Nóvember 2010 og ákveð að halda áfram með verkefnið mitt
Og þær breitingar sem eru áætlaðar fyrir sumarið eru

44" dekk (komið)
Hásing að framan
ARB loftlás að framan
klára setja aukatankinn í
Setja stærri brettakanta (Koma í næstu viku)
færa afturhásingu um 15-20 CM
Range Rover gormar allann hringinn Progressive
Færa auka rafkerfið inn í bíl
Filma
Sprauta (litur óákveðinn)
Box á toppinn


Er örugglega að gleyma e-h.

Jæja skellum þá inn myndum.
Er samt búinn að tína myndunum frá því að ég var að breita honum fyrir 38" af úrskurðinum og því öllu. Leiðinlegt því ég var og er mjög montin af úrskurðinum að framan


Svona er bíllinn þeghar ég fæ hann
Image
Image
Image
Image

Svona leit hann út þegar ég sel hann í maí 2009
Image
Image
Image

Og svona er statusinn á honum í dag. var ekki lengi að gera hann ökufærann á 44" en þó er langt í land að hann verði tilbúinn
Image
Image

Reyni svo að vera duglegur að henda inn myndum

15.FEB

Jæja smá uppdate

Búinn að mál felgur og klippa meira úr til að geta notað bílinn á meðan breitingu stendur yfir.


Smá blýbúnki eða 1,7 kg
Image


Felgurnar orðan svartar
Image


Svona munu kantarnir koma til með að líta út að aftan
Image

Hér má sjá innréttinguna farna úr skottinu. ætla byrja á morgun að skera innribrettin til.
Image

1.MRS

Jæja þá er loksins e-h byrjað að gerast aftur. fékk nýju kantana í dag og byrjaði að möndla annann framkantinn á. myndirnar segja restina

Image
Image
Image




risinn
Innlegg: 195
Skráður: 22.des 2010, 21:09
Fullt nafn: Ragnar Páll Jónsson

Re: 4Runner á 44" Breitingarskeiði

Postfrá risinn » 05.mar 2011, 14:13

Flottur. En bara ein smá spurning. Ég sé að það eru dekkjavélar við bílinn, afhverju snýrð þú ekki bekkjunum á felgunum og athugar hvort þú nærð ekki minni ballanseringu ? 1,7 kg það getur minkað alveg helling.
Flottur bíll

Kv. Ragnar Páll


þórarinn
Innlegg: 88
Skráður: 03.feb 2011, 21:07
Fullt nafn: þórarinn Pétursson
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: 4Runner á 44" Breitingarskeiði

Postfrá þórarinn » 05.mar 2011, 15:10

þeir verða ekki mikið flottari jepparnir en 4runner á 44"
1993 HILUX


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur