Síbería - Kanada

User avatar

Höfundur þráðar
Tjakkur
Innlegg: 115
Skráður: 15.nóv 2012, 15:26
Fullt nafn: Karl Ingólfsson

Síbería - Kanada

Postfrá Tjakkur » 27.apr 2013, 16:46

Nú eru Rússarnir að jeppast yfir íshafið...

https://www.facebook.com/photo.php?v=10 ... =2&theater




Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Big Red » 27.apr 2013, 17:30

keyra þeir á slöngum sem eru bundnar við felguna? eða er ég alveg útúr kortinu
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Rodeo
Innlegg: 74
Skráður: 01.aug 2012, 01:01
Fullt nafn: TUMl TRAUSTAS0N
Bíltegund: Ford Explorer
Staðsetning: Alaska

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Rodeo » 27.apr 2013, 17:51

April 26, 2009 after 38 days and nights and 2033 km drivig over floating ice of the Arctic Ocean seven russian men strong crew of two automobiles "Yemelya-1" and "Yemelya-2" has reached the geographic North Pole.

Er þetta ekki sami rúnur og Clarkson og félagar fóru á Artic Trucks toyotunum um árið.

http://www.youtube.com/watch?v=WNkvASxfEWQ
2013 Toyota Highlander Hybrid
2006 Ford Explorer Hákur Seldur
2008 Toyota Prius Sparibaukur
1995 Isuzu Rodeo Seldur


olafur f johannsson
Innlegg: 703
Skráður: 14.aug 2010, 21:35
Fullt nafn: ólafur finnur jóhannsson
Bíltegund: Toyota Yaris GRMN
Staðsetning: Akureyri

Re: Síbería - Kanada

Postfrá olafur f johannsson » 27.apr 2013, 17:53

Rodeo wrote:April 26, 2009 after 38 days and nights and 2033 km drivig over floating ice of the Arctic Ocean seven russian men strong crew of two automobiles "Yemelya-1" and "Yemelya-2" has reached the geographic North Pole.

Er þetta ekki sami rúnur og Clarkson og félagar fóru á Artic Trucks toyotunum um árið.

http://www.youtube.com/watch?v=WNkvASxfEWQ

Nei
Toyota Yaris GR 4 2020
Hilux Sr5 22re 1995

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Síbería - Kanada

Postfrá ellisnorra » 27.apr 2013, 18:00

Þetta er nú furðulegasti jeppaskóbúnaður sem ég hef séð :) Hefur einhver útskýringar á þessu ? :)
http://www.jeppafelgur.is/


Rodeo
Innlegg: 74
Skráður: 01.aug 2012, 01:01
Fullt nafn: TUMl TRAUSTAS0N
Bíltegund: Ford Explorer
Staðsetning: Alaska

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Rodeo » 27.apr 2013, 18:41

olafur f johannsson wrote:
Rodeo wrote:April 26, 2009 after 38 days and nights and 2033 km drivig over floating ice of the Arctic Ocean seven russian men strong crew of two automobiles "Yemelya-1" and "Yemelya-2" has reached the geographic North Pole.

Er þetta ekki sami rúnur og Clarkson og félagar fóru á Artic Trucks toyotunum um árið.

http://www.youtube.com/watch?v=WNkvASxfEWQ

Nei



Rétt er, fljótfærni hjá mér.

Skv þessu fóru Rússarnir á hinn eiginlega norður pól meðan toyoturnar rúlluðu á segulpólinn.
2013 Toyota Highlander Hybrid
2006 Ford Explorer Hákur Seldur
2008 Toyota Prius Sparibaukur
1995 Isuzu Rodeo Seldur

User avatar

Höfundur þráðar
Tjakkur
Innlegg: 115
Skráður: 15.nóv 2012, 15:26
Fullt nafn: Karl Ingólfsson

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Tjakkur » 27.apr 2013, 21:08

Rússarnir hafa lengi burrað á léttbyggðum jeppum.
Vladimir Chukov ók á Suðurpólin á þessu apparati 1999 http://www.ec-arctic.ru/eng/photos/view ... =10,page=5
10 árum áður fór hann í smá jepparúnt á Íslandi eftir að hafa flutt erindi um skíðatúr sem hann fór Síbería - Norðurpóll - Kanada.
Honum fannst frábært að á jeppum væri bæði hægt að juða börnum og fötluðum á staði sem áður voru aðeins voru á færi skíðaleiðangra!
-Þegar kallinn fór að eldast smíðaði hann sinn eigin ofurlétta jeppa í Belarus dráttarvéafabrikkunni, trukkaði á suðurpólinn 1999 og hefur verið að þvælast víðsvegar með ströndum norðuríshafsins og reynt að aka á pólinn. http://www.ec-arctic.ru/eng/photos/view.php3?section=24
Í för með honu var þektur jálkur, Vasily Elagin, sem síðar smíðaði eigin jeppa sem ekið var á norðurpólinn 2009 og eru nú á leið þvert yfir Íshafið til Kanada.

Þeir bílar eru vatnsheldir og með lensidælu til að haldast á floti ef/þegar þeir lenda niður um ísinn.
Low-pressure flugvéladekk eru líka framleidd sem nokkurskonar túbur til að losna við þétti/festingar vandamál á milli dekks og felgu.
Síðast breytt af Tjakkur þann 08.maí 2013, 11:14, breytt 1 sinni samtals.

User avatar

Höfundur þráðar
Tjakkur
Innlegg: 115
Skráður: 15.nóv 2012, 15:26
Fullt nafn: Karl Ingólfsson

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Tjakkur » 27.apr 2013, 21:48

Það virðist vera meira en sunnudagsbíltúr að aka á íshafinu...

Sjáið hvað ísinn bylgjast á 5:55
http://www.youtube.com/watch?v=NHuShm9EXgw

Það er betra að druslurnar fljóti þegar pytturinn er 4.000 metra djúpur:
http://www.youtube.com/watch?v=RRrIXUhvc0M

Hér er svo heilt bío ef kosningasjónvarpið er óbærilegt:
http://www.youtube.com/watch?v=mkdoPjHbnB8


grimur
Innlegg: 891
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Síbería - Kanada

Postfrá grimur » 27.apr 2013, 22:39

Þeim er nú ekki fisjað saman þessum köppum. Föndra saman brýr úr vatnsrörum og baggabandi eftir þörfum.
Þeir fá mitt "respect" allavega, þó að þeir keyri um á slöngunum einum saman.

User avatar

nobrks
Innlegg: 327
Skráður: 31.jan 2010, 21:12
Fullt nafn: Kristján Arnór Gretarsson

Re: Síbería - Kanada

Postfrá nobrks » 28.apr 2013, 19:46

Flottir kappar, sýnist þeir meira að segja vera á draumajeppanum,
6hjóla
Sjálfstæð fjöðrun
Burðarvirki úr áli
Risa blöðrudekk
Diesel motor

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Tómas Þröstur » 29.apr 2013, 08:33

Rússarnir eru greinilega engum líkir og fremstir í jeppamennskunni - allavega utan vega.

User avatar

Höfundur þráðar
Tjakkur
Innlegg: 115
Skráður: 15.nóv 2012, 15:26
Fullt nafn: Karl Ingólfsson

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Tjakkur » 30.apr 2013, 13:09

Rússarnir komnir með landsýn í Kanada

https://www.facebook.com/photo.php?fbid ... =1&theater

Hér er "vélþýðingin"

April 30, 2013
Today, 33 km away from dense hummocks alternating short fields. To have the Canadian Ellesmere Island landfast ice is no more than 10 km. We started Grand view of snow-covered hills in height from 1000 up to 2500 meters. Directly to the South we see the British Empire Range. A little farther to the East is the United States. And to the West is the Challenger Mountains.
One day we drove around 33 km and 25 km as the crow flies, the temperature is 17° c, P 1025 mb, no wind, the day was weak. Spend the night at: ML130429V 21:56 UTC-4 N 83° 13.890 075° 52.512 ' W '.
Athanasius

User avatar

Höfundur þráðar
Tjakkur
Innlegg: 115
Skráður: 15.nóv 2012, 15:26
Fullt nafn: Karl Ingólfsson

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Tjakkur » 08.maí 2013, 10:43

Rússarnir eru nú komnir suður undir Norð-Vestur siglingaleiðina en endastöðin er í Resolut. Þetta er að verða einn groddalegasti jeppatúr sem ég hef heyrt af.

Leiðangursstjórinn Vasely Elagin er mikill spaði, kynntist honum lítillega í Kákasus þega Gorbi og Sovétið var enn í gangi. Þá var hann nýkominn af Kanchenjunga, -keðjureykti frá morgni til kvölds og skolaði jafnt hádegis sem kvöldverðum niður með fullu glasi af vodka.
https://www.facebook.com/photo.php?fbid ... =1&theater

Rússarnir eru á "réttu róli" þ.e. þeir eru á norðurhjaranum á birtutíma. Gamall Tjalli ætlaði sér að verða fyrstu til að skíða yfir Suðurskautslandið að vetri en þar hefur enginn ferðast að vetri fyrr. Hann fékk ekki fararleyfi fyrr en hann fékk sér 2 stk Caterpillar D6 jarðýtur til þess að draga kojuna sína og bökuðu baunirnar. Hann og annar til ætluðu svo að þramma á undan jarðýtunum í myrkri og allt að 60 stiga frosti.... - festir við ýturnar með rafmagnskapli til að kynda þá á göngunni!
Hann kól reyndar á puttum á fyrsta degi við að klæða sig í skíðin og var sendur heim með flugi. Ýtukallarnir ætla hinsvagar að trukka áfram í myrkrinu. http://www.thecoldestjourney.org/blog/n ... update-18/

Hef trú á því að Rússarnir væru færir um að klára þetta 5 mánaða jarðýtuverkefni Tjallanna á nokkrum dögum!
Hér er svo linkur á bílana. Þeir smíða allt öfugt við okkar malbiksskráðu jeppa, -nota litlar vélar, sjálfstæða fjöðrun og sjálfberandi yfirbyggingar. Enda myndu þeir hlægja að Íslenskum krapafestum....
http://www.yemelya.ru/technique_en.php?lnk=2002

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Síbería - Kanada

Postfrá Stebbi » 08.maí 2013, 21:54

Hvað eru menn að brasa við að rusla einhverjum jarðýtudruslum þarna suðureftir, var ekki Gunni Icecool búin að sýna mönnum hvernig þetta er gert?
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Google [Bot] og 1 gestur