myers tire seal. Reynsla?

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
Sævar Páll
Innlegg: 316
Skráður: 07.okt 2010, 15:59
Fullt nafn: Sævar Páll Stefánsson

myers tire seal. Reynsla?

Postfrá Sævar Páll » 10.des 2012, 20:38

Sælir. Er að brasa með dekk sem eru aðeins komin til ára sinna, en með helling af mynsti og líta þokkalega út.
Vandamálið er að það andar aðeins út úr þeim ef þau standa lengi. Ekki lekur með felgu.
Rakst á efni í bílanaust sem heyrir myers tyre seal fyrir landbúnaðartæki og vinnuvélar. Var að spá hvort einhver hefði notað svona hér í jeppadekk?
Er með dekk frá 38-44 sem mættu alveg vera þéttari, ég bara var ekki alveg viss hvernig á að bera sig að við þetta. Á að sprauta þessu innum pílu, eða er betra að slíta barðan af og rúlla þessu inní eða?
Ef menn hafa prufað þetta efni endilega láta í sér heyra.

http://www.myerstiresupply.com/shop/sho ... Seal-5-gal

Ég geri mér grein fyrir að þetta er ekki fyrir þjóðvegaakstur, þetta verður aðalega í dekk sem sjá lítinn hraða lítinn loftþrýsting og lág hitastig (semsagt jeppadekk)

Kv Sævar P



User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: myers tire seal. Reynsla?

Postfrá Stebbi » 10.des 2012, 21:31

Ég er nokkuð viss um að þessu er pumpað inn í dekkið í gegnum ventilinn.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Re: myers tire seal. Reynsla?

Postfrá Aparass » 10.des 2012, 21:45

Ég hef verið að nota þetta í fjórhjóladekkin hjá mér.
http://www.slime.com/shop/tire-sealant/
og þá stopparðu dekkið með ventilinn niður, tekur píluna úr og lætur loftið fara úr dekkinu, hellir þessu inn um ventilinn og skrúfar píluna aftur í, pumpar upp dekkið og ferð að keyra, síðan ertu með það alltaf í dekkinu og ef það gatast þá ábyrgjast þeir að það muni loka upp í 6mm gati á meðan þú keyrir. hefur alveg virkað á óþéttar felgur sem ég var með.


Höfundur þráðar
Sævar Páll
Innlegg: 316
Skráður: 07.okt 2010, 15:59
Fullt nafn: Sævar Páll Stefánsson

Re: myers tire seal. Reynsla?

Postfrá Sævar Páll » 10.des 2012, 21:51

hvar fæst þetta slime?


Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Re: myers tire seal. Reynsla?

Postfrá Aparass » 10.des 2012, 22:04

Fékk það í vdo.


siggibjarni
Innlegg: 110
Skráður: 07.apr 2011, 21:47
Fullt nafn: Sigurður Bjarni Gilbertsson
Bíltegund: Land Cruiser 80
Staðsetning: Búðardalur

Re: myers tire seal. Reynsla?

Postfrá siggibjarni » 11.des 2012, 11:29

þetta slime fæst líka í fjórhjólalagernum sem er staðsettur í Stapahrauni 7, 220 Hafnarfirði.

http://www.4h.is/verslunin?page=shop.br ... gory_id=83

þarna er þetta ásamt öllum slime vörunum sem þau eru með, hef verslað mikið þarna og get ekkert annað en mælt með þessu, hef prófað þetta slime á fjórhjólið mitt og það svín virkar.


Höfundur þráðar
Sævar Páll
Innlegg: 316
Skráður: 07.okt 2010, 15:59
Fullt nafn: Sævar Páll Stefánsson

Re: myers tire seal. Reynsla?

Postfrá Sævar Páll » 11.des 2012, 18:05

Flott er. Veit nokkur hvort þetta fáist fyrir norðan?


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur