Hvernig er Nissan Navara að standa sig ?
Hvernig er Nissan Navara að standa sig ?
Getur eithver sagt mér hvernig Nissan Navara er að koma út árg 05 og upp ? er þessi 2,5 disel vél að standa sig ?
-
- Innlegg: 171
- Skráður: 10.aug 2012, 18:47
- Fullt nafn: Agnar Áskelsson
Re: Hvernig er Nissan Navara að standa sig ?
Veit ekki hvort það sé búið að laga stimplstangarboltana í 2005 og upp úr en þeir voru að gefa sig í þessum vélum.
Við erum með tvo svona 2003 árgerðir og vélarnar eru búnar að fara í þeim báðum, þar af fór önnur fyrir 90000 km.
Annars hafa þeir reynst okkur vel. Duglegar vélar og verið nokkuð lausir við bilanir, eða allavegana ekkert sem maður gat ekki bara reddað.

Agnar Áskelsson
Er að leita að næsta jeppa.
Keflavík
Er að leita að næsta jeppa.
Keflavík
Re: Hvernig er Nissan Navara að standa sig ?
Vélarnar í til '05 árg. heita YD22 og stimpilstangarboltavesenið er bundið við þá vél. Vélin í bílnum 2005 og yngri heitir YD25 og mér vitanlega hefur ekki enn komið upp tilfelli í þeim þar sem boltarnir gefa sig.
Kv. Freyr
Kv. Freyr
Re: Hvernig er Nissan Navara að standa sig ?
Freyr wrote:Vélarnar í til '05 árg. heita YD22 og stimpilstangarboltavesenið er bundið við þá vél. Vélin í bílnum 2005 og yngri heitir YD25 og mér vitanlega hefur ekki enn komið upp tilfelli í þeim þar sem boltarnir gefa sig.
Kv. Freyr
'eg er með 2004 árg af nissan og vélin í þeim bíl var tekin upp hjá IH í 123þ vegna galla
Annars eru þetta hörkubílar og skemmtilegar vélar
Það er belja að taka framúr þér!!! Hva ef þú ert að flýta þér snýktu þá far....
Re: Hvernig er Nissan Navara að standa sig ?
takk fyrir svörinn ;)
Re: Hvernig er Nissan Navara að standa sig ?
hilux wrote:Freyr wrote:Vélarnar í til '05 árg. heita YD22 og stimpilstangarboltavesenið er bundið við þá vél. Vélin í bílnum 2005 og yngri heitir YD25 og mér vitanlega hefur ekki enn komið upp tilfelli í þeim þar sem boltarnir gefa sig.
Kv. Freyr
'eg er með 2004 árg af nissan og vélin í þeim bíl var tekin upp hjá IH í 123þ vegna galla
Annars eru þetta hörkubílar og skemmtilegar vélar
Þú hefur verið með YD22 sem er eldri vélin
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur