sælir
Vitið þið hvort tjaldstæðið í þjórsárdal sé ekki opið og hvort það sé einhver aska á svæðinu??
þjórsárdalur
-
- Innlegg: 86
- Skráður: 04.feb 2010, 21:48
- Fullt nafn: Árni Samúel Samúelsson
- Staðsetning: Njarðvík
Re: þjórsárdalur
Það er opið... var þarna um daginn og sá ekki eitt öskukorn. Það var reyndar svolítið af flugu, allavega meira heldur en er þarna alla jafna.
JEEP Cherokee XJ 1997 6 cyl sjálfskiftur
JEEP Wrangler 1997 6 cyl sjálfskiftur---seldur---
JEEP Grand Cherokee Laredo 1993 8 cyl---seldur---
JEEP Wrangler 1991 6 cyl beinskiftur---seldur---

Höfundur þráðar - Innlegg: 274
- Skráður: 02.feb 2010, 11:50
- Fullt nafn: Rúnar ólafsson
- Bíltegund: Terrano II
Re: þjórsárdalur
en er búið að loka lauginni?? var að heyra það einhver staðar?
-
- Innlegg: 86
- Skráður: 04.feb 2010, 21:48
- Fullt nafn: Árni Samúel Samúelsson
- Staðsetning: Njarðvík
Re: þjórsárdalur
ég athugaði það bara ekki, fórum í laugina í Árnesi.
JEEP Cherokee XJ 1997 6 cyl sjálfskiftur
JEEP Wrangler 1997 6 cyl sjálfskiftur---seldur---
JEEP Grand Cherokee Laredo 1993 8 cyl---seldur---
JEEP Wrangler 1991 6 cyl beinskiftur---seldur---
JEEP Wrangler 1997 6 cyl sjálfskiftur---seldur---
JEEP Grand Cherokee Laredo 1993 8 cyl---seldur---
JEEP Wrangler 1991 6 cyl beinskiftur---seldur---
Re: þjórsárdalur
Ekki mikið um ösku en mikið af flugu. Tjaldstæðið er opið en laugin er lokuð.
Ég flúði eftir ca klukkutímadvöl og nokkur mýbit um síðustu helgi. Þá reyndar tjaldaði ég ekki inni á tjaldstæðinu heldur aðeins innar í dalnum, nær sundlauginni.
Ég flúði eftir ca klukkutímadvöl og nokkur mýbit um síðustu helgi. Þá reyndar tjaldaði ég ekki inni á tjaldstæðinu heldur aðeins innar í dalnum, nær sundlauginni.
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 274
- Skráður: 02.feb 2010, 11:50
- Fullt nafn: Rúnar ólafsson
- Bíltegund: Terrano II
Re: þjórsárdalur
en viti þið eitthvað afhverju er búið að loka sundlauginni?
Re: þjórsárdalur
Félagi minn hefur verið med laugina seinustu 2 ár allavega, landsvirkjun á laugina. þar a bæ vilja menn helst moka yfir hana til að losna við vesenið kringum hana. hann allavega akvað að vera ekki med laugina þetta árið og ég hef ekkert heyrt um opnun eða endanlega lokun nýlega.
-
- Innlegg: 86
- Skráður: 04.feb 2010, 21:48
- Fullt nafn: Árni Samúel Samúelsson
- Staðsetning: Njarðvík
Re: þjórsárdalur
Það væri náttúrulega alger synd að loka þessari laug til frambúðar. Skrítið samt að landsvirkjun vilji ekki hafa hana opna, það er alltaf þvílík traffík þarna. Annars finnst mér þetta vera ein besta sveitalaug á landinu, náttúran er alveg ótrúlega falleg þarna.
JEEP Cherokee XJ 1997 6 cyl sjálfskiftur
JEEP Wrangler 1997 6 cyl sjálfskiftur---seldur---
JEEP Grand Cherokee Laredo 1993 8 cyl---seldur---
JEEP Wrangler 1991 6 cyl beinskiftur---seldur---
JEEP Wrangler 1997 6 cyl sjálfskiftur---seldur---
JEEP Grand Cherokee Laredo 1993 8 cyl---seldur---
JEEP Wrangler 1991 6 cyl beinskiftur---seldur---
Re: þjórsárdalur
Já þetta er med skemmtilegri laugum landsins, málið er að þarna rennur heitt vatn frá nátturunnar hendi ofan í laugina, þarna er ekkert rafmagn og ekki neitt og laugin þarf að uppfylla einhverja staðla og blabla.... og þá þarf að kosta til pening, unglingavinnan hja landsvirkjun hefur séð um að þrífa og halda þessu fínu yfir sumarið, svo þarf að manna þetta og það kostar pening og aðsókn hefur staðið illa undir því.
Líklegast væri best ef þeir yttu yfir laugina og gerðu bara holu i sandinn og veita vatninnu i það, þa þarf ekkert að hugsa um þetta og allir geta droppað við allt arið i kring.

Já ég er sammála því að Þjórsárdalslaug er trúlega alskemmtilegasta laug sem finns á Íslandi. Skemmtilegast hefur mér alltaf samt þótt að berjast þangað að vetrarlagi því að laugin hefur hingaðtil verið full af vatni veturlangt til að forðast frostskemmdir.
Mig minnir einhvernvegin að laugin hafið verið steypt úr afgangssteypu úr virkjuninni og þótti vænn kostur á byggingartímanum og þegar mikið var um að vera í Búrfellsvirkjun. Þetta þýðir líka að laugin gæti verið steypt úr bestu fáanlegu steypu þess tíma og vafnvel mun betri steypu en aðrar laugar á sama tíma.
Umhverfi laugarinnar er meiriháttar. Sundlaugin sjálf vin í eyðimörk og fyrir innan laugina er, ef vel er að gáð, hægt að finna bergkristals steina, frekar smáa en hugsanlega dæmi um byggð í Þjórsárdal um 1500.
Örstutt frá lauginni liggur gamall vegur sem að ég best veit er upphaf Sprengisandsleiðar en þann slóða er að finna og gaman að keyra upp með bökkum Sandár. Það verður að sleppa hluta leiðarinnar frá því að maður ekur undir Stóra Dímon og koma aftur inná hana á Sundlaugarveginum. Þaðan má keyra hana yfir Fossá og Rauðá (minnir mig að heiti) og upp frá Stöng, framhjá Gjánni og upp í Hólaskóg.
Þarna er að finna einar fallegustu náttúruperlur landsins og ég hika ekki við að segja að sá sem ekki hefur gengið í Gjánna hefur ekki séð íslenska náttúru. Í hana er best að ganga frá Stöng.
Kv Jón Garðar

þad er alltaf vatn i lauginni, rennur bara i gegnum hana, þad er lika hægt ad keyra ad gjanni ofan fra og rölta niður tröppurnar rosalega fallegt þarna.
Re: þjórsárdalur
Það er orðið svolítið langt síða ég tók rúntinn þarna og síðast þegar ég fór um var bara göngustígur niður í Gjánna að ofan. Mér hefur hinsvegar aldrei fundist ég vera kominn í Gjánna fyrr en ég er kominn hinumegin við. Það er kannski hægt að komst þangað þurrum fótum í dag?
Re: þjórsárdalur
Ef það er vatnslítið þá er oft hægt að tippla a steinum þarna yfir.... ef madur er léttur á sér =)
Re: þjórsárdalur
Ég trúi ekki að það eigi að loka lauginni inní Þjórsárdal, Þetta er snilldar staður og alltaf gaman að koma í þessa laug.
En það er nú eins og allt í þessu blessaða landi, loka og loka og loka öllu SKEMMTILEGU.:-(
Kv Bjarki :-)

Kv
Bjarki
Bjarki
Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur