sælir félagar
er með 80 krúser og langar að koma í hann aukarafkerfi. þessi bíll er með 24volt starti en er annars 12 volt þess utan.
hvar hafa menn verið að taka + og - fyrir aukarafkerfi án þess að rugla eitthvað í þessu 24 volt start dæmi?
myndir og/eða góð lýsing vel þegin!
lalli
LC 80 tengja aukarafmagn
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
Sæll
Rafkerfið virkar nokkurnveginn þannig að geymarnir eru hliðtengdir alla að jöfnu og þegar þú startar er relaybúnaður sem breytir hliðtengingunni í raðtengingu. Það þýðir að annar geymirinn er alltaf með spennuna 0-12V en hinn getur verið 0-12V eða 12-24V og inn á þann geymi máttu ekki undir neinum kringumstæðum tengja. Þú getur ekki hringlað neinum 24V búnaði inn á þetta nema það dugi að hann virki þegar þú startar bílnum.
0-12V geyminn ættirðu að þekkja þannig að mínuspóllinn er klárlega tengdur í stell, grind eða blokkina á mótornum. Það ættu líka að vera tengdir fleiri vírar inn á þann geymi.
Kv Jón Garðar

-
- Póststjóri
- Innlegg: 2809
- Skráður: 06.feb 2010, 10:43
- Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
- Bíltegund: Patrol
- Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
Lalli ef þig vantar aukarafkerfi hafðu þá samband. Smelli link á mynd hérna http://elliofur.123.is/FS/8911a269-1848 ... 785514.jpg
http://www.jeppafelgur.is/
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
Var aðeins undir húddinu á LC80 í síðustu viku og sá að það voru engar aukatengingar í rafgeyminn bílstjóramegin. Allt "aukaraf" var sótt í geyminn farþegameginn. Ástæðuna má lesa í pósti Jóns Garðars hér að ofan - sá geymir er alltaf með mínus í stell og þar af leiðandi hægt að tengja inn á hann eins og í hefðbundnu 12 v kerfi.
-
Höfundur þráðar - Póststjóri
- Innlegg: 884
- Skráður: 31.jan 2010, 23:15
- Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
- Bíltegund: Chevrolet Bronco
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
eðal. takk fyrir svörin, tengi í "farþegann" :)
elli, þetta kerfi er of stórt fyrir mig :) en mig langar að sjá íhlutina í því... væri til í að smíða mér minna kerfi sem lítur eins út.
elli, þetta kerfi er of stórt fyrir mig :) en mig langar að sjá íhlutina í því... væri til í að smíða mér minna kerfi sem lítur eins út.
-
- Innlegg: 2137
- Skráður: 10.maí 2011, 10:51
- Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
- Bíltegund: Toyota Hilux
- Staðsetning: Ittoqqortoormiit
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
elliofur wrote:Lalli ef þig vantar aukarafkerfi hafðu þá samband. Smelli link á mynd hérna http://elliofur.123.is/FS/8911a269-1848 ... 785514.jpg
Elli þú ert í ljótum skóm. Takk fyrir hanskana :)
-
- Innlegg: 2098
- Skráður: 31.jan 2010, 22:59
- Fullt nafn: Stefán Stefánsson
- Bíltegund: Eitthvað blátt
- Staðsetning: Hafnarfjörður
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
elliofur wrote:Lalli ef þig vantar aukarafkerfi hafðu þá samband. Smelli link á mynd hérna http://elliofur.123.is/FS/8911a269-1848 ... 785514.jpg
Hvernig gengur að vera með Finder rafliða í jeppa? Eru þeir ekkert að hrista sig lausa úr sökklinum með tímanum?
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
-
Höfundur þráðar - Póststjóri
- Innlegg: 884
- Skráður: 31.jan 2010, 23:15
- Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
- Bíltegund: Chevrolet Bronco
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
ég var að fjarlægja gamalt aukaraf úr bílnum, þetta helvíti var tengt hist og her útum allt og vírar í allar áttir, stundum inn í hvalbak farþegamegin og út aftur bílstjóramegin. alger steypa... ætla að leggja nýtt kerfi sem er ekki svona della.
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2809
- Skráður: 06.feb 2010, 10:43
- Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
- Bíltegund: Patrol
- Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
Stebbi wrote:elliofur wrote:Lalli ef þig vantar aukarafkerfi hafðu þá samband. Smelli link á mynd hérna http://elliofur.123.is/FS/8911a269-1848 ... 785514.jpg
Hvernig gengur að vera með Finder rafliða í jeppa? Eru þeir ekkert að hrista sig lausa úr sökklinum með tímanum?
Þeir voru allavega allir fastir og á sínum stað í þessum bíl.
http://www.jeppafelgur.is/
-
- Innlegg: 968
- Skráður: 20.aug 2010, 08:26
- Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
- Bíltegund: Toyota Hilux 3.0
Re: LC 80 tengja aukarafmagn
elliofur wrote:Stebbi wrote:elliofur wrote:Lalli ef þig vantar aukarafkerfi hafðu þá samband. Smelli link á mynd hérna http://elliofur.123.is/FS/8911a269-1848 ... 785514.jpg
Hvernig gengur að vera með Finder rafliða í jeppa? Eru þeir ekkert að hrista sig lausa úr sökklinum með tímanum?
Þeir voru allavega allir fastir og á sínum stað í þessum bíl.
Er þetta box falt? ef svo er hvað viltu fá fyrir þetta box án takkaborðsins?
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur