Góða daginn.
Nú er ég að velta fyrir mér hvernig maður veit ef turbina er að gefa sig ?
Smá lýsing hvernig hann hagar sér núna.
Það er svolítið öðruvísi hljóð enn venjulega, eins og það er gat eða einhver útplástur.
En hljóði er frekar skært og heyrir maður það vel.
Finnst ekki krafturinn er búinn að minka enn þetta hljóð er ný til komið.
Getur þetta verið Turbinan sem er að gefa sig eða eitthvað annað ?
Hvernig veit maður ef Turbina er að gefa sig ?
Re: Hvernig veit maður ef Turbina er að gefa sig ?
Gæti verið boost leki á lögnini að intercooler (ef hann er til staðar) hvernig bíll er þetta?
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"
Arctic cat M8000 162"
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 82
- Skráður: 20.mar 2012, 15:55
- Fullt nafn: Eggert Bjarnason
- Bíltegund: Trooper
Re: Hvernig veit maður ef Turbina er að gefa sig ?
Þetta er Izusu Trooper.
Re: Hvernig veit maður ef Turbina er að gefa sig ?
Gæti verið farin Pústbolti, gerðist hja mér á Navara, þá söng alveg í húddinu. Mjög skær hávaði.
-
- Innlegg: 288
- Skráður: 05.okt 2010, 15:05
- Fullt nafn: Stefán Örn Steinþórsson
- Bíltegund: Jeep Wrangler
- Staðsetning: Akureyri
Re: Hvernig veit maður ef Turbina er að gefa sig ?
Best að rífa frá lofthliðinni á bínunni þannig að þú horfir inní hjólið.
Athugar hvort það sé allt í olíu þar, hvort það sé of mikið slag í legunum, hvort spaðarnir nái útí húsið
eða hvort það sé stíft eða óeðlilegt leguhljóð þegar þú snýrð henni.
Athugar hvort það sé allt í olíu þar, hvort það sé of mikið slag í legunum, hvort spaðarnir nái útí húsið
eða hvort það sé stíft eða óeðlilegt leguhljóð þegar þú snýrð henni.
Til baka á “Vara og aukahlutir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur