Matarolía á tankinn. ????

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
Kölski
Innlegg: 233
Skráður: 28.feb 2010, 11:18
Fullt nafn: Hlífar Vilhelm Helgasson

Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Kölski » 24.feb 2012, 10:49

Þar sem ég er frekar grænn í þessum málum.

Skiptir það einhverju máli hvernig matarolía fer á tankinn. ???
Var að spá í að smella sólblómaolíu(Sandusol) í bland við steinolíu á tankinn. Eitthvað sem mælir á móti því. ?????



User avatar

dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá dadikr » 24.feb 2012, 11:24

NATO er búið að rannsaka þetta í þaula vegna Single Fuel Policy, þ.e. tilrauna til að nota eina gerð af eldsneyti á allt. Þeir hafa einmitt prófað matarolíur með ágætum árangri (sjá t.d.: http://www.sciencedirect.com/science/ar ... 9X02000506).

Sjálfur hef ég prófað 1% rapsolíu íblöndn með góðum árangri.


Höfundur þráðar
Kölski
Innlegg: 233
Skráður: 28.feb 2010, 11:18
Fullt nafn: Hlífar Vilhelm Helgasson

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Kölski » 24.feb 2012, 15:38

Já ég veit líka til þess að menn hafi verið að nota notaða djúpsteikingarolíu. En ætti það ekki alveg að vera í lagi að nota svona venjulega steikingarolíu. ???

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Startarinn » 24.feb 2012, 17:06

Jú það er ó góðu lagi, þetta er nánast allt það sama, bara spurning um frá hvaða plöntu það kemur

En afhverju skil ég ekki, eru þessar olíur eitthvað ódýrari?
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Höfundur þráðar
Kölski
Innlegg: 233
Skráður: 28.feb 2010, 11:18
Fullt nafn: Hlífar Vilhelm Helgasson

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Kölski » 25.feb 2012, 07:50

Startarinn wrote:Jú það er ó góðu lagi, þetta er nánast allt það sama, bara spurning um frá hvaða plöntu það kemur

En afhverju skil ég ekki, eru þessar olíur eitthvað ódýrari?




"Bara spurning um frá hvaða plöntu það kemur" skiptir það einhverju máli. ?
Og já ég er kanski búinn að finna olíu á örlítið betra verði en þessa rándýru diesel olíu. ;-)

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá jeepson » 25.feb 2012, 12:04

Er ekki málið að bjóðast til að taka steikingarfeitna hjá veitingarstöðunum og sía hana??
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


Höfundur þráðar
Kölski
Innlegg: 233
Skráður: 28.feb 2010, 11:18
Fullt nafn: Hlífar Vilhelm Helgasson

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Kölski » 25.feb 2012, 12:20

Jújú menn hafa verið að gera það, en það er víst setið um það núna að ég hef heyrt. Svo eru margir sem hafa ekki aðstöðu til að gera svoleiðis subbuverk. ;-)

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Stebbi » 25.feb 2012, 14:54

Kölski wrote:
Startarinn wrote:Jú það er ó góðu lagi, þetta er nánast allt það sama, bara spurning um frá hvaða plöntu það kemur

En afhverju skil ég ekki, eru þessar olíur eitthvað ódýrari?




"Bara spurning um frá hvaða plöntu það kemur" skiptir það einhverju máli. ?
Og já ég er kanski búinn að finna olíu á örlítið betra verði en þessa rándýru diesel olíu. ;-)


Ef þú ætlar að keyra um á hreinni jurtaolíu (SVO) þá þarfut að hita hana upp áður en þú treður henni inn á vélina. Sama gildir um notaða steikingarfeiti (WVO) en það er hægt að keyra á henni yfir sumartíman án vandræða ef hún er nógu vel hreinsuð. Þetta er algjör ógeðsvinna að hreinsa notaða steikingarfeiti nema maður geti komið sér upp sjálfvirkum búnaði en það kostar $$$$.
Svo er annar vinkill á þessu sem er sá að finna sér birgja sem þarf að losa sig við feiti í svipuðu magni og þú ætlar að nota, þetta er mjög fljótt að hlaðast upp í skúrnum hjá manni með tilheyrandi sóðaskap og lykt.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Startarinn » 25.feb 2012, 15:28

Kölski wrote:
Startarinn wrote:Jú það er ó góðu lagi, þetta er nánast allt það sama, bara spurning um frá hvaða plöntu það kemur

En afhverju skil ég ekki, eru þessar olíur eitthvað ódýrari?




"Bara spurning um frá hvaða plöntu það kemur" skiptir það einhverju máli. ?
Og já ég er kanski búinn að finna olíu á örlítið betra verði en þessa rándýru diesel olíu. ;-)


Ég orðaði þetta frekar óskýrt, olían í eðli sínu er eins frá flestum plöntum, það var það sem ég meinti

Félagi minn keyrði traktórana og vörubílinn hjá sér á notaðri djúpsteikingarfeiti um tíma, hann síaði olíuna og blandaði við hana um 15% steinolíu og 5% bensín
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Höfundur þráðar
Kölski
Innlegg: 233
Skráður: 28.feb 2010, 11:18
Fullt nafn: Hlífar Vilhelm Helgasson

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Kölski » 25.feb 2012, 18:23

Félagi minn hefur gert þetta lengi með djúpsteikingarolíuna. Hann síaði hana með vatnsúða. En það sem ég ætlaði að gera var að blanda þetta með steinolíu. Er búinn að fynna byrgja sem getur selt mér olíu, ónotaða fyrir þokkalegan góðan prís. Þ.a. alveg þónokkuð ódýrara en diesel líterinn kosta núorðið. En það er bara steikingarolía ekki djúpsteikingarolía. Þess vegna var ég að spá í hvort það munaði einhverju. Ætla blanda þetta í tunnu við steinolíu.

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Matarolía á tankinn. ????

Postfrá Stebbi » 26.feb 2012, 12:11

Kölski wrote:En það er bara steikingarolía ekki djúpsteikingarolía. Þess vegna var ég að spá í hvort það munaði einhverju. Ætla blanda þetta í tunnu við steinolíu.


Sami skítur í öðrum brúsa, það sem menn kalla djúpsteikingarolíu er þessi notaða. Prufaðu að googla "SVO conversion" og "WVO conversion" þá færðu hafsjó af upplýsingum sem ættu að duga þér fram á ellilífeyrisaldur.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 0 gestir