Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 226
- Skráður: 31.des 2010, 20:09
- Fullt nafn: Gunnar Sævarsson
- Bíltegund: Wranger YJ 38"

Sælir þjáningabræður, nú eru margir með sjálfskiptingar og sennilega flestir með aukakæli og hitamæli fyrir þær.
en spurningin er hvar eru menn að setja mælinn??, hef heyrt allar útgáfur og menn alveg vissir að þetta og hitt sé það eina rétta.
það væri gaman að fá ykkar skoðanir á því hvar besta staðsetningin sé fyrir hitamælinn??

- Innlegg: 270
- Skráður: 01.feb 2010, 04:35
- Fullt nafn: Kristján Y. Brynjólfsson
- Bíltegund: Nissan Patrol
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Sælir
Ég er nú ekki með mælir hjá mér eins og er, en þegar ég set hann í mundi ég tengja hann í leiðsluna sem er að fara í kælirinn, semsagt vökvinn sem er að fara útúr skiptingu og inn í kælir...
Ég er nú ekki með mælir hjá mér eins og er, en þegar ég set hann í mundi ég tengja hann í leiðsluna sem er að fara í kælirinn, semsagt vökvinn sem er að fara útúr skiptingu og inn í kælir...
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 226
- Skráður: 31.des 2010, 20:09
- Fullt nafn: Gunnar Sævarsson
- Bíltegund: Wranger YJ 38"
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
já sumir segja það en samt fáir, flestir segja í pönnuna eða lögn frá kælinum og rökin eru þau að það skipti litlu máli þótt vökvinn hitni vel í gegnum converter því hann geri það alltaf, meira máli skiptir að sjá hvort kælirinn hafi undann að kæla hann niður aftur og að skiptingin sé alltaf með kaldann vökva í pönnunni til að vinna úr, mælirinn sem ég á og keypti frá bílabúð benna er t.d bara með leiðbeiningum til að setja hann á lögn frá kælinum að skiptingunni, eins og ég sagði mjög skiptar skoðanir á þessu hef ég heyrt.
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Ég myndi undantekningarlaust fara eftir leiðbeiningum frá framleiðanda mælisins.
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 226
- Skráður: 31.des 2010, 20:09
- Fullt nafn: Gunnar Sævarsson
- Bíltegund: Wranger YJ 38"
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
já ég ætlaði að gera það en þá var einn maður sem snéri mér og vinnur hann við að gera við þessar skiptingar. hann vildi meina að það væri gott að setja mælinn frá kælinum en það væri einn galli við það og hann er að kælarnir geta stíflast og þá sýnir mælirinn að allt sé bara kalt og gott en skiptinginn er kannski að stikna og hafði hann allavegana gert við tvær skiptingar sem höfðu stiknað þannig. þannig að pannan væri betri kostur
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Sælir.
Þú staðsetur alltaf hitanema þar sem þú vilt vita hvað hitastigið er!
Mér finnst gáfulegast að staðsetja nemann á lögnina að kælinum vegna þess að þar ætti olían að vera heitust og þú ert að reyna að koma í veg fyrir að olían ofhitni og brenni. Með því að setja hann í pönnuna ertu að mæla ganghitann á skiptingunni og ættir ekki að verða var við miklar sveiflur, allavega ekki mjög hraðar en ég sé fyrir mér mun meiri og hraðari breytingar á vökvanum að kæli.
Málið í mínum huga er það að sjálfskiptiolía kolast við 126°C og hún má hvergi fara uppfyrir þetta hitastig, og í raun helst ekkert nálægt þessu.
Kv Jón Garðar

ég er með mælinn í pönnuni og vil ekki hafa hann á lögninni að eða frá kæli því ef kælirinn stíflast sem gerist stundum þá er sú mæling ekki marktæk.
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Stóra spurningin í mínum augum er hvaða leið/hring fer vökvinn? Sem sagt fer hann úr pönnunni, segjum hægra megin í röri þar og svo í gegnum kælinn og þaðan í gegnum skiftinguna. Eða fer hann fyrst í gegnum skiftinguna og svo í gegnum kælinn? Giska fastlega (fatta það meðan ég skrifa þetta) að hann fari fyrst í gegnum kælinn og svo í gegnum skiftinguna sjálfa, ekki rétt hjá mér? Er þá ekki rökréttast að hafa hann á mílli orginal kælis og skiftingar ef það er pláss til að koma honum fyrir þar? Einnig væri fróðlegt að vita hvernig og hvar aukakælar eru settir. Ég veit að það er langbest að setja þá á undan orginal kælinum. (Vökvinn fer þá úr pönnu í gegnum aukakælir, orginalkælir og svo skifting- aftur í pönnu- hringurinn búinn) en hvernig er þessu fest við lagnirnar/rörin?
Kv. Haffi
Kv. Haffi
-
- Innlegg: 322
- Skráður: 02.feb 2010, 12:55
- Fullt nafn: Þorvarður Lárusson
- Bíltegund: Musso cherokee ofl
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Ég setti mælirinn hjá mér í pönnuna meðal annars vegna þess að þegar ég náði í hana í viðgerð á ljónstaði var mér ráðlagt það. Mælirinn vrkar fínt þar og gefur ranhita á vökvanum inni í skiptingunni ég sá líka mikinn mun á hitanum þegar ég bætti við auka kælir. Ég er svo með eins mælir á öðrum bíl sem ég á og þar er hann á lögninni frá skiptingu að kæli ég held að það breyti ekki miklu nema hvað það er mikið minna vesen að setja neman á lögnina.
-
- Innlegg: 288
- Skráður: 05.okt 2010, 15:05
- Fullt nafn: Stefán Örn Steinþórsson
- Bíltegund: Jeep Wrangler
- Staðsetning: Akureyri
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Röðin í nær öllum skiftingum er þannig að fyrst fer inn á kúplingar, svo converter (þar sem olían hitnar mest), út af skiftingunni í kælinn og þaðan aftur inn á skiftingu þar sem hún er notuð í smur og kælingu og þaðan niður í pönnu.
Að mæla hitann á leið út af gírnum (frá converter) er alveg með öllu gagnslaust þar sem þar er hitinn mikið hærri en allstaðar annarsstaðar í kerfinu og converternum er alveg sama um það.
Sett hann í pönnuna þar sem þú færð raunverulegann vinnuhita skiftingarinnar sem er það sem skiftir máli, þá græðiru líka aftöppun á pönnuna :)
Að mæla hitann á leið út af gírnum (frá converter) er alveg með öllu gagnslaust þar sem þar er hitinn mikið hærri en allstaðar annarsstaðar í kerfinu og converternum er alveg sama um það.
Sett hann í pönnuna þar sem þú færð raunverulegann vinnuhita skiftingarinnar sem er það sem skiftir máli, þá græðiru líka aftöppun á pönnuna :)
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Dodge wrote:Röðin í nær öllum skiftingum er þannig að fyrst fer inn á kúplingar, svo converter (þar sem olían hitnar mest), út af skiftingunni í kælinn og þaðan aftur inn á skiftingu þar sem hún er notuð í smur og kælingu og þaðan niður í pönnu.
Að mæla hitann á leið út af gírnum (frá converter) er alveg með öllu gagnslaust þar sem þar er hitinn mikið hærri en allstaðar annarsstaðar í kerfinu og converternum er alveg sama um það.
Sett hann í pönnuna þar sem þú færð raunverulegann vinnuhita skiftingarinnar sem er það sem skiftir máli, þá græðiru líka aftöppun á pönnuna :)
Converternum er sama já en ekki olíunni, hún brennur.
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Það eru 3 lausnir á þessu:
a) Kaupa tvo mæla. Annan til að fylgjast með hita á skiptingu og þá setur þú mælinn í pönnu eða jafnvel frá kæli og inná skiptingu ef það er auðveldara. Myndi sjálfur velja pönnuna. Hinn hefur tilganginn að fylgjast með gæðum oliu og setur þú hann þá á lögnina frá skiptinu.
b) Sleppir því að pæla í heitasta hitastigi olíu og þefar bara af henni af og til :) Setur svo mælinn í pönnuna.
c) Þetta er lausn sem ég í raun hrifnastur af og hún er að sleppa því að hafa mælir. Þú keyrir miklu hægar með alla svona mæla og þeir draga úr ánægju. +
Myndi að sjálfsögðu setja auka kæli og ég er mjög hrifinn af lausn sem Freyr hefur útfært og það er stór og öflugur kælir beint eftir skiptingu sem kælir alltaf allt niður í ekki neitt, síðan fer olían í gegnum orginal vatnskassakælir sem skilar olíunni alltaf 60-80°C inná skiptingu aftur sem er bara fínt fyrir allt kerfið.
a) Kaupa tvo mæla. Annan til að fylgjast með hita á skiptingu og þá setur þú mælinn í pönnu eða jafnvel frá kæli og inná skiptingu ef það er auðveldara. Myndi sjálfur velja pönnuna. Hinn hefur tilganginn að fylgjast með gæðum oliu og setur þú hann þá á lögnina frá skiptinu.
b) Sleppir því að pæla í heitasta hitastigi olíu og þefar bara af henni af og til :) Setur svo mælinn í pönnuna.
c) Þetta er lausn sem ég í raun hrifnastur af og hún er að sleppa því að hafa mælir. Þú keyrir miklu hægar með alla svona mæla og þeir draga úr ánægju. +
Myndi að sjálfsögðu setja auka kæli og ég er mjög hrifinn af lausn sem Freyr hefur útfært og það er stór og öflugur kælir beint eftir skiptingu sem kælir alltaf allt niður í ekki neitt, síðan fer olían í gegnum orginal vatnskassakælir sem skilar olíunni alltaf 60-80°C inná skiptingu aftur sem er bara fínt fyrir allt kerfið.
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 226
- Skráður: 31.des 2010, 20:09
- Fullt nafn: Gunnar Sævarsson
- Bíltegund: Wranger YJ 38"
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
ég talaði við helling af mönnum, t.d bæði bílabúð benna og þá á ljónstöðum og allir bentu á pönnuna eða lögn frá kæli og eins voru leiðbeiningarnar sem fylgdu mælinum fyrir lögn frá kæli, þeim virtist vera alveg sama með hitan útúr skiptingunni og minnir mig að þeir hafi sagt að hann hitnaði alltaf mjög mikið við áreynslu út úr converter og það skipti litlu máli í stutta stund svo lengi sem hann kólnaði strax aftur, með mæli á lögn frá kæli geta menn einmitt fylgst með því hvort kælirinn hafi undan við að kæla vökvann aftur niður og ef hann gerir það á allt að vera í góðu lagi, eins sérðu strax að ef hann kemur heitur útúr kælinum þarftu að athuga þinn gang því hann er ekki að hafa undan við að kæla. en ég setti hann í pönnuna hjá mér og sér maður sama hlutinn þar bara ekki eins fljótt en að sumu leyti öruggara ef kælirinn skyldi stíflast. vil taka það fram að ég var alveg harður á því að setja hann á lögnina að kælinum áður en ég talaði við alla þessa menn sem náðu að snúa mér;)
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 226
- Skráður: 31.des 2010, 20:09
- Fullt nafn: Gunnar Sævarsson
- Bíltegund: Wranger YJ 38"
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
mér lýst mjög vel á lausn c nema að ég ætla að vera með mælinn í pönnunni og ég vona að ég keyri ekkert hægar því mælirinn mun vonandi bara alltaf sýna gott hitastig með stórum aukakæli;)
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Dodge wrote:Sett hann í pönnuna þar sem þú færð raunverulegann vinnuhita skiftingarinnar sem er það sem skiftir máli, þá græðiru líka aftöppun á pönnuna :)
Sumir bílar eru þegar með aftöppunartappa á skiftingunni.
En hvernig tenginar fylgja með þessum mælum og hvar er best að kaupa mæli? Ef maður setur þetta á lögnina frá kæli að skiftingu (lögnin væntanlega gúmmírör) er þá ekki nóg að fá nema sem tengist einvhern veginn í T-stykki og setja slöngubút öðrumegin við T-stykkið og orginal rörið(slönguna) hinum megin. Gengur það þannig upp?
Kv. Haffi
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 226
- Skráður: 31.des 2010, 20:09
- Fullt nafn: Gunnar Sævarsson
- Bíltegund: Wranger YJ 38"
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
jájá það gengur þannig upp, það fylgdu tvö T stykki með mælinum sem ég keypti frá b,b benna það er b&m mælir, T stykkin eru til að setja á járn rör reyndar, skerð bara á rörin og þetta þrykkir sig sjálft á rörin.
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Já ok glæsilegt, takk fyrir það. En er þá mælirinn sem þú talar um í Celsius eða Farenheit?
Kv. Haffi
Kv. Haffi
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Hvar er hitaneminn í flestum bílum allment? Hann hlítur að vera þar sem mest er að marka hann.
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 226
- Skráður: 31.des 2010, 20:09
- Fullt nafn: Gunnar Sævarsson
- Bíltegund: Wranger YJ 38"
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
hann er í farenheit og er hvítur gulur og rauður skali á honum, hann er gerður fyrir sjálfskiptivökva þannig að ég þarf ekkert að pæla í tölunum bara litnum undir vísinum;) semsagt alveg idiotproof!
-
- Innlegg: 690
- Skráður: 01.feb 2010, 08:29
- Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
- Bíltegund: Toyota
- Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
- Hafa samband:
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
s.f wrote:Hvar er hitaneminn í flestum bílum allment? Hann hlítur að vera þar sem mest er að marka hann.
Nákvæmlega!... nú er í hiluxnum hjá mér svona aðvörunarljós sem kviknar ef skiptingin er að ofhitna.... hvar ætli sá nemi sé? þetta er það sem framleiðandi bílsins hefur gert ráð fyrir og hlýtur að vera út frá því sem er best fyrir skiptinguna... ætli að það sé einhver séns á að komast inn á þann nema og tengja mæli við hann...
Leyta af þessu næst þegar ég leggst undir bílinn.
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Mér finnst magnað að það eru skiptar skoðanir á þessu.
Ég held að það sé lykilatriði í þessari umræðu að fá að vita hvort mismunandi framleiðendur sjálfskiptihitamæla, mæla með mismunandi staðsetningum (kannski öðruvísi hönnun mæla eða guð má vita hvað) Ef svo er að þá eru alhæfingar bílabúð benna, ljónstaða og annara sem spurja ekki um gerð mælis áður en þeir leiðbeina dauðadæmdar.
Mér sýnsit vera 2 hitastig sem maður hefur áhuga á. Hiti á converter (of mikill getur eyðilagt vökva) Hiti á innvolsi í skiptingu (sem eyðilegst við of mikinn hita.)
En kannski er öllum sama um converterinn því hann eyðilegst ekki og ef olían eyðilegst þá kemur það fram í minkandi smureiginleikum sem hækkar hita stig olíuinnar sem skynjari á öðrum stað myndi lesa.
Það hljóta að vera mismuandi hitatölur á sjálfskiptimælinum sem maður er að horfa á sem eru fengnar útfrá staðsetningu mæla!? Ef olía má aldrei fara yfir 126 celsius og einhver er með mæli á lögn frá vatnskassa í skiptingu sem myndi sýna 110 celsius þá er vafalaust staðreynd að skiptingin mun hrynja því hitinn mun rjúka upp inní sjálfri skiptingunni!, en ef skynjarinn er eins nálægt raunhita á því innvolsi sem er mikilvægast og myndi sýna 110 celsius þá er þetta innan marka þótt þetta sé í heitara lagi kannski.

- Innlegg: 703
- Skráður: 14.aug 2010, 21:35
- Fullt nafn: ólafur finnur jóhannsson
- Bíltegund: Toyota Yaris GRMN
- Staðsetning: Akureyri
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Óskar - Einfari wrote:s.f wrote:Hvar er hitaneminn í flestum bílum allment? Hann hlítur að vera þar sem mest er að marka hann.
Nákvæmlega!... nú er í hiluxnum hjá mér svona aðvörunarljós sem kviknar ef skiptingin er að ofhitna.... hvar ætli sá nemi sé? þetta er það sem framleiðandi bílsins hefur gert ráð fyrir og hlýtur að vera út frá því sem er best fyrir skiptinguna... ætli að það sé einhver séns á að komast inn á þann nema og tengja mæli við hann...
Leyta af þessu næst þegar ég leggst undir bílinn.
hita nemin í hilux er á lögnini að kjæli hægra meigin á efra rörinu
Toyota Yaris GR 4 2020
Hilux Sr5 22re 1995
Hilux Sr5 22re 1995
-
- Innlegg: 1929
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Hafirðu hitanemann í pönnunni er vökvinn í túrbínunni og lögninni fram að kæli löngu orðinn brunninn og ónýtur áður en hann er orðinn jafn heitur í pönnunni.
Ef þú ert með kalt baðkar og hellir í það heitu vatni, hvort færðu nákvæmari mælingu á heita vatninu með því að setja vatnshitamælinn í bununa af heita vatninu eða út í baðkerið með kalda vatninu.
Í pönnunni hægist mikið á hitaaukningunni og því er mælingin að koma of seint, ég myndi hiklaust tengja mælinn inn á lögn að kæli, því líkt og gefur að skilja, þar sem lögnin er á leiðinni að kæli er hitinn þar mestur, og þú ert fljótastur að finna fyrir hitabreytingum þar því dælan trukkar vökvanum hratt í gegn

Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
olafur f johannsson wrote:Óskar - Einfari wrote:s.f wrote:Hvar er hitaneminn í flestum bílum allment? Hann hlítur að vera þar sem mest er að marka hann.
Nákvæmlega!... nú er í hiluxnum hjá mér svona aðvörunarljós sem kviknar ef skiptingin er að ofhitna.... hvar ætli sá nemi sé? þetta er það sem framleiðandi bílsins hefur gert ráð fyrir og hlýtur að vera út frá því sem er best fyrir skiptinguna... ætli að það sé einhver séns á að komast inn á þann nema og tengja mæli við hann...
Leyta af þessu næst þegar ég leggst undir bílinn.
hita nemin í hilux er á lögnini að kjæli hægra meigin á efra rörinu
þá myndir þú að sjálsögðu séta neman fyrir mælinn þar líka.
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Sælir
Svo er hægt að klára dæmið endanlega og taka af allann vafa með því að kaupa tvo mæla, einn í pönnuna og annan á lögnina. Þessir mælar eru tölvert ódýrari en uppgerð á skiptingu.
Kv Jón Garðar
P.s. svo er hægt að nota beinskipta bíla, þá er þetta vandamál úr sögunni.
Svo er hægt að klára dæmið endanlega og taka af allann vafa með því að kaupa tvo mæla, einn í pönnuna og annan á lögnina. Þessir mælar eru tölvert ódýrari en uppgerð á skiptingu.
Kv Jón Garðar
P.s. svo er hægt að nota beinskipta bíla, þá er þetta vandamál úr sögunni.
-
- Innlegg: 288
- Skráður: 05.okt 2010, 15:05
- Fullt nafn: Stefán Örn Steinþórsson
- Bíltegund: Jeep Wrangler
- Staðsetning: Akureyri
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Mælir í lögnina gerir menn bara paranoid og á endanum hætta menn að horfa á hann.
Við minnstu átök ríkur hitinn í converternum upp um leið en það hefur engin áhrif á vinnsluna í skiftingunni.
Ef þú ert með mælinn í pönnunni og mælir vinnuhita skiftingarinnar þá tryggiru að hún hrynji ekki vegna ofhitnunar, og ef það er eitthvað verulega hættulegt að ske í converternum þá kemur það fram þar líka.
Þá ertu með mæli sem segir þér eitthvað stöðugt og marktækt og í allra versta falli ef eitthvað stórundarlegt gerist þá verður olían ónýt og þú skiftir um hana.
Menn tala bara um þetta eins og hitinn á olíunni kólni um 300° í smá kælis ræfli og komi svo ekkert aftur ofan í pönnu fyrr en viku seinna. Ef þú eltir einn olíudropa alla hringrásina þá tekur það örfáar sekúndur. Og ef eitthvað alvarlegt er að ske í converter þá kemur það mjög fljótlega fram í heildarhita skiftingarinnar.

Ef þú ert með mælinn í pönnunni og mælir vinnuhita skiftingarinnar
Ef þetta reynist vera rétt. Þá myndi ég setja minn mæli í pönnuna.
Re: Sjálfskiptingahitamælir, hvar á að setja hann??
Er ekki best að menn hætti bara þessum trúarbrögðum og skoðunum á þessu og fari bara eftir leiðbeinanda frá framleiðanda sem fylgir hitamælinum og sendi ?
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur