Jæja þá er maður búinn að fara fyrstu jeppaferðina sína, fórum á syðri fjallabak og gistum við Álftavatn.
Er með MMC Pajero Sport og var að spá hvort maður þarf að hækka kvikindið upp til að fá mýkri fjöðrun.
Annars stóð hann sig ótrúlega vel, vorum á 4 jeppum, 3 óbreyttir og einn 38" breyttur.
jeppinn
-
- Innlegg: 86
- Skráður: 06.apr 2010, 23:46
- Fullt nafn: Árni Júlíus Rögnvaldsson
- Bíltegund: Mitsubishi Pajero
Re: jeppinn
Hvað ertu á stórum dekkjum og hvaða þrýsting hafðirðu í þeim? Myndi byrja á að kíkja á það ef það er mýkt sem þú ert að leita eftir.
1998 Mitsubishi Pajero GLS 2.8TDI
Re: jeppinn
Er á 265/70 "16 tommu og var með 26-27 pund í þeim en hann fjaðraði bara voða lítið fannst mér, var alltaf á 3 hjólum.
En fínn á malarvegunum með þetta loft í.
En fínn á malarvegunum með þetta loft í.
-
- Innlegg: 579
- Skráður: 10.apr 2010, 11:39
- Fullt nafn: lúðvik freyr sverrisson
- Bíltegund: nissan patrol y60
Re: jeppinn
þú ert semasagt að leita af meiri slaglengd ?
1994 nissan patrol 2.8l 44"
1994 toyota hilux 2.4l 38"
1996 toyota tacoma 2.7l 32"
1987 jeep cherokee 4.0l 38"
1988 jeep wrangler 4.2l 31"
1982 chevrolet custom deluxe 6.2l 33"
1976 international scout 5.2l 38"
1994 toyota hilux 2.4l 38"
1996 toyota tacoma 2.7l 32"
1987 jeep cherokee 4.0l 38"
1988 jeep wrangler 4.2l 31"
1982 chevrolet custom deluxe 6.2l 33"
1976 international scout 5.2l 38"
-
- Innlegg: 3176
- Skráður: 31.jan 2010, 16:02
- Fullt nafn: Gísli J Gíslason
- Bíltegund: Nissan patrol
- Staðsetning: Þarna fyrir austan.
Re: jeppinn
Á mala vegum er fínt að fara niður í 18psi. Ég fór um daginn yfir á patró, Tálknafjörð og Bíldudal. Og keyrði mikið á malavegum á leiðinni. Og var með svona 16psi (patrol Y60 á 38") Ég var mikið að pæla í helypa niður í 13-14psi. en lét 16 duga...
Kv. Gísli
Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn
Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn
Re: jeppinn
49cm wrote:þú ert semasagt að leita af meiri slaglengd ?
Akkurat þannig að maður getir keyrt kannski í holu og það fari ekki allt á loft.
Re: jeppinn
jeepson wrote:Á mala vegum er fínt að fara niður í 18psi. Ég fór um daginn yfir á patró, Tálknafjörð og Bíldudal. Og keyrði mikið á malavegum á leiðinni. Og var með svona 16psi (patrol Y60 á 38") Ég var mikið að pæla í helypa niður í 13-14psi. en lét 16 duga...
Bíllinn var fínn á malarvegunum en ég fer ekki niður í 18psi þá verður fjandinn laus því hann rásar svo mikið.
Kannski fínt ef maður ætlar sér að velta bílnum út fyrir veg. :)
Re: jeppinn
Fór einmitt þessa leið (fjallabak syðri) þarsíðasta laugardag með Pajeroklúbbi Heklu og lenti ekki í neinum vandræðum með misfjöðrun að neinu ráði á mínum Pajero Sport ;)
Er á nánast glænýjum dekkjum sem eru 265/75 R16 og hef heil 40 PSI í þeim á malbikinu en í ferðinni fór ég niður í 19 PSI og var það bara mjög fínt. Þessir eðalvagnar hafa ekki langa fjöðrun, og þá sérstaklega ekki að aftan þar sem hún gæti verið meiri sökum heillar hásingar en teygjan er takmörkuð að ég held vegna slagstuttra dempara.
Mitt plan er að kaupa mér 2" hækkunargorma og samsvarandi dempara frá OME og setja í hann Rancho 9000 stillanlega dempara að framan og sjá hvað það gerir.
En til hamingju með nýja jeppann, er þetta bensín eða diesel sportari?
Kv. Haffi

Takk fyrir það.
Þetta er 3.0.l v6 kvikindi og ég er mjög sáttur við hann finnst hann reyndar eyða dáldið mikið innanbæjar 17-19.lítra en hann datt niður í rétt um 11.lítra á leiðinni á hellu.
Sá reyndar annars staðar á síðunni að Haffi ætlaði að fara að skipta um klossa og diska að aftan hjá sér.
Ég gerði þetta í sumar og verslaði við Heklu og fékk pakkann á rétt um 15.þús diskar og klossar sem mér finnst vel sloppið.

Já eyðslan er eitthvað svipuð hjá mér, hef minnst náður honum niður í einhverja lítið rúma 11 lítra á hundraðið. Cruise- controlið hjálpar til með það og að vera með vel í dekkjunum. En ég er ekki búinn að skifta um diska né klossa að aftan, bara að framan. Ætla að bíða með að aftan þangað til veskið og konan gefa grænt á það.
En ég var að spá í að taka aftasta kvarfakútinn undan bílnum og setja bara rörastubb í staðinn. Þetta óþarfa dót er bara að hefta að pústuð komist sína leið og stela nokkrum hestum af manni, að maður tali nú ekki um að það eru hvort eð er tveir kvarfar á hvoru rörinu stuttu eftir þar sem greynarnar sameinast.
En voðalega hefurðu sloppið yfirnáttúrlega vel með verð á þessu hjá þeim í Heklu. Ég verslaði mér diskana að framan hjá AB-varahlutum og þeir voru saman á 15000 kr með 20% afsl. á meðan parið af óorginal hjá Heklu hefði farið uppí 19-20000 með sama afslætti. Skrítið mál.

- Innlegg: 1697
- Skráður: 01.feb 2010, 08:46
- Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
- Bíltegund: F-250 Powerstroke
- Staðsetning: Akranes
Re: jeppinn
Verð að viðurkenna að þegar ég var að leita að bremsudóti (diskum&klossum) í 2.8 pæju ´99 var hekla með bæði hæsta og lægsta verðið bara spurnig hvað maður vill eða tímir að borga.
Heilagur Henry rúlar öllu.
Re: jeppinn
Bíllinn var fínn á malarvegunum en ég fer ekki niður í 18psi þá verður fjandinn laus því hann rásar svo mikið.
Kannski fínt ef maður ætlar sér að velta bílnum út fyrir veg. :)
Varstu í kappakstri þarna inni á fjallabaki? Ef þú ætlar að ferðast á þessum vegum án þess að eyðileggja bílinn og heilsu þína og þinna nánustu þá hleypir þú úr, það gera bara allir viti bornir menn á þessum slóðum og öðrum fjallvegum, og varðandi það að velta bílnum þá hugsa ég að þú gerir það fyrr ef þú mýkir ekki dekkin.
kveðja Helgi

Nei Helgi ég var nú ekki í kappakstri þarna en fannst samferða bílarnir fara heldur greitt þar sem vegurinn var nú ekkert voða góður.
En ég reyndar er nú ekki mikill jeppamaður svosem, treysti á þá sem voru reyndari í þessari ferð.
En ég reyndar er nú ekki mikill jeppamaður svosem, treysti á þá sem voru reyndari í þessari ferð.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur