Nokkrar myndir frá Vatnajökli

Til að skipuleggja ferðir, auglýsa eftir félögum, spyrja fregna af færð og ástandi vega.
User avatar

Höfundur þráðar
Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Nokkrar myndir frá Vatnajökli

Postfrá Tómas Þröstur » 20.maí 2011, 16:40

Útivist fór fyrir stuttu 4 daga ferð um Vatnajökul. Fyrsti dagur frá Skálafellsjökli að Goðheimum og síðan niður að skála við Snæfell. Annar dagur um jökul að Sigurðarskála í Kverkfjöllum og þriðja daginn að Grímsfjalli og í Jökulheima. Síðasta daginn var farið í Hrauneyjar og heim. Yfirleitt gott færi fyrir 44 og síðan 38 í förum á eftir þeim. Oftar en ekki gott veður og gott skyggni. Gekk ágætlega nema Ram þurfti fljótlega að snúa við líklega með brotinn millikassa. Einnig brotnaði framöxull í Land Rover á öðrum degi. Krapi hér og þar frá jökli að Hrauneyjum en ekki djúpur allavega á þeim stöðum sem bílar fóru niður.
Viðhengi
Flísar 758.jpg
Day one
Flísar 777.jpg
Goðheimar
Flísar 816.jpg
Þræddur hliðarhalli í Snæfell
Flísar 834.jpg
Tekið á því á Brúarjökli
Flísar 875.jpg
Austan við Grímsfjall - sést til Þumals og Miðfellstinds ofan Skaftafellsfjalla. Eini evrópski Rangerinn í þorpinu á 38 í forgrunni.
Flísar 877.jpg
Fyrirheitna landið - Grímsfjall
Flísar 882.jpg
Komin á Grímsfjall í fyrsta skifti - frábært.
Flísar 886.jpg
Ekki þessi hef'ðibundi jeppi/hjólhýsi
Flísar 911.jpg
Verið að tanka á í Jökulheimum með hívert en samt ekki í sjálfsafgreiðslu og ekki heldur pappírslaus viðskipti.
Flísar 916.jpg
Buslað frá Jökulheimum



User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: Nokkrar myndir frá Vatnajökli

Postfrá hobo » 20.maí 2011, 16:55

Þetta var flott innlegg. Læt mig dreyma um að komast á fleiri jökla í framtíðinni.
Nú gæti maður fengið að fljóta með fyrst maður er kominn á 38" :)

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Nokkrar myndir frá Vatnajökli

Postfrá jeepson » 20.maí 2011, 18:36

Hvernig bíl ertu kominn á Hörður?
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: Nokkrar myndir frá Vatnajökli

Postfrá hobo » 20.maí 2011, 18:54

Hilux ´92, 2.4 bensín.
Kem með meiri upplýsingar síðar :)


Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur