patrol gangtruflun


Höfundur þráðar
saesiben
Innlegg: 19
Skráður: 09.jún 2010, 11:41
Fullt nafn: Sævar Örn Benjamínsson

patrol gangtruflun

Postfrá saesiben » 23.apr 2011, 00:09

er með patrol sem eg var að skipta um heddpakkningu og tímareim , gekk fint fór á snúning og gekk eðlilega og innan við 200km,fór gangurinn að versna, leið og eg gef inn fer hann að ganga brussulega fer ekki yfir 2000 þús snúnning og fer ekki yfir 40 og reykir bláan reyk, og drepur á sér um leið og ég sleppi olíugjöfina,svo set eg hann í gang eftir smá tíma þá gengur hann eðlilegan hægagang og enginn blár reykur og leið og eg byrja að keyra hann aftur byrjar þetta allt aftur, og olíu þrystingurinn dettur niður,og svo eðlilegur inn á milli hvað gæti verið að, svo er spurning hvort þetta sé hráolíusía eða eitthvað annað



User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: patrol gangtruflun

Postfrá Freyr » 23.apr 2011, 01:04

Hvaða vél, 2,8 í 97 og eldri, 2,8 í 98 -99, 3.0 í 00-08, eða 3.0 í 08 og yngri???????????


Izan
Innlegg: 616
Skráður: 29.mar 2010, 10:56
Fullt nafn: Jón Garðar Helgason

Re: patrol gangtruflun

Postfrá Izan » 23.apr 2011, 01:11

Sæll

Ef olíuþrýstingurinn fellur ættirðu ekki að setja mótorinn í gang fyrr en þú hefur kíkt á stangarlegurnar. Höfuð og stangarlegur eru ekki svo dýrar og ekkert mál að skipta um þær án þess að taka mótorinn upp, bara olíupönnuna undan og legurnar í.

Svo er spurning um hvort þú hafir misst mikinn skít eða drullu niður í mótorinn og það er að narta í cylindrana innanverða og skemma bæði hringi og blokkina.

Gangtruflanir og blái reykurinn gætu þýtt að þú hafir skemmt olíulögn, slöngu eða rör og verkið taki inn loft og gangi illa út af því en þetta með olíuþrýstinginn er eitthvað sem myndi hræða mann.

Kv Jón Garðar


Höfundur þráðar
saesiben
Innlegg: 19
Skráður: 09.jún 2010, 11:41
Fullt nafn: Sævar Örn Benjamínsson

Re: patrol gangtruflun

Postfrá saesiben » 23.apr 2011, 01:20

þetta er 2.8 94 árg eg skipti um olíudælu og skoðaði kjallarann og það virtist allt vera í góðu lagi þar, hvað er það sem skeður þegar olíuþrystingurinn fellur niður, og eftir smá tíma rikur hann í eðlilegan þrysting þegar maður er í keyrslu

User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: patrol gangtruflun

Postfrá Freyr » 23.apr 2011, 01:46

99% líkur á að smurpungurinn sé ónýtur, það er LANG algengasta ástæðan þegar smurþrýstimælar falla, byrja á að prófa annann smurpung og sjá hvort þrýstivandamálið hverfi ekki við það. Dettur samt líka í hug að það sé eitthvað vesen með heddpakkninguna, t.d. gölluð pakkning, snýr vitlaust (ef það er möguleiki á þessari vél), vitlaus hersla.


Höfundur þráðar
saesiben
Innlegg: 19
Skráður: 09.jún 2010, 11:41
Fullt nafn: Sævar Örn Benjamínsson

Re: patrol gangtruflun

Postfrá saesiben » 23.apr 2011, 18:02

þakka ykkur fyrir
en problemið var hráolíusían skipti um hana og allt komið í lag


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur