Jeep Cherokee 1991

User avatar

Höfundur þráðar
Doror
Innlegg: 323
Skráður: 10.apr 2010, 23:02
Fullt nafn: Davíð Örn Svavarsson

Jeep Cherokee 1991

Postfrá Doror » 09.apr 2011, 20:15

Sælir,

ég keypti mér þennan forláta Cherokee um daginn.

Image
Image

Þetta er 1991 árgerð með 4.0 I6 High output vélinni. Hann er á 36" mödderum og með 4.56 hlutföll í orginal hásingum.
Orginal gormar að framan og fjaðrir að aftan.

Það er ARB loftlás í afturdrifi og dæla fyrir hann í honum. Ólæstur að framan.

Fyrsta sem að ég þurfti að gera þegar heim var komið var að rífa afturdrifið úr þar sem að það söng gífurlega mikið í því. Kom þá í ljós mjög eyddur pinion ásamt 2 slöppum legum. Núna stendur hann svona og bíður eftir nýum legum og hlutföllum frá Ameríku.

Image

Bíllinn er ótrúlega heill á body og undirvagni. Mjög lítið ryð í honum og honum virðist hafa verið vel breytt á sínum tíma. Vélin og skiptingin virðast vera mjög heil en eitthvað hefur verið farið í vélina á hennar 225.000 km þar sem að það er ekki orginal þétting á heddi. Hann er líka heillegur að innan fyrir utan að einhver fyrri eigandi hefur farið illa með mælaborðið þegar hann var að koma fyrir hitamæli fyrir sjálfskiptingu og hátalaraköpplum.

Framundan hjá mér er:
Koma nýju hlutföllunum og legunum í.
Skipta út einu 36" dekkinu sem er með kappaviðgerð.
Síkka aðeins aftari festingu á fjöðrunum til að auka fjöðrun að aftan.
Tengja loftdæluna fyrir afturlæsinguna.
Tengja CB stöðina sem að fylgdi.
Færa hitamælin á fallegri stað í innréttingunni.
Skella fremra drifskaptinu í en það var einn ónýtur kross í því.
Láta skoða gripinn og þrífa hann að utan og innan.

Helst vildi ég gera þetta allt í vikunni nema kannski skoðunina þar sem að mig langar í litlunefndarferðina sem er skipulögð næsta laugardag. Ef að það gengur ekki þá er það bara einhver skemmtileg páskaferð ef að öllum snjó hefur ekki ringt niður.

Framtíðarplön eru svo að útvega mér AC dælu til að dæla lofti í dekkinn.
Aussie locker í framdrifið.
Ryð viðgerðir á lakki.
Bæta auka ventli í felgurnar.
VHF og GPS.
Skoða mögulega að setja hann á 38" eða kaupa betri 36" dekk.
Nett grind að framan fyrir kastara.
Dana 44 að aftan og þá jafnvel gormavæðing.
Síðast breytt af Doror þann 04.maí 2011, 19:51, breytt 1 sinni samtals.


Davíð Örn


steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Re: Jeep Cherokee 1991

Postfrá steinarxe » 09.apr 2011, 22:22

Flottur bíll, en geturðu nokkuð upplýst mig um hvernig læsing aussie locker er?

User avatar

Höfundur þráðar
Doror
Innlegg: 323
Skráður: 10.apr 2010, 23:02
Fullt nafn: Davíð Örn Svavarsson

Re: Jeep Cherokee 1991

Postfrá Doror » 10.apr 2011, 01:05

Það er ódýrasta útgáfa af No spin nokkurn vegin. Fer beint inní húsið og er því ódýrari en No spin. Læsir 100% þegar þú keyrir beint en slippar í beygjum.
Davíð Örn

User avatar

Höfundur þráðar
Doror
Innlegg: 323
Skráður: 10.apr 2010, 23:02
Fullt nafn: Davíð Örn Svavarsson

Re: Jeep Cherokee 1991

Postfrá Doror » 04.maí 2011, 19:38

Varð mér útum álfelgur og 33" dekk til að nota í sumar. Akstureiginleikar bíllsins gjörbreyttust vægast sagt þar sem að hann var á ónýtum 36" dekkjum fyrir.

Svolítið lítill svona en sleppur alveg.

Image
Image
Image
Davíð Örn


tommi3520
Innlegg: 210
Skráður: 31.mar 2010, 19:18
Fullt nafn: Tómas Karl Bernhardsson

Re: Jeep Cherokee 1991

Postfrá tommi3520 » 08.maí 2011, 19:58

Mjög flottur jeppi og vafalaust öflugur á fjöllum líka. Hann hefur greinilega elst vel.

User avatar

Höfundur þráðar
Doror
Innlegg: 323
Skráður: 10.apr 2010, 23:02
Fullt nafn: Davíð Örn Svavarsson

Re: Jeep Cherokee 1991

Postfrá Doror » 09.maí 2011, 12:45

tommi3520 wrote:Mjög flottur jeppi og vafalaust öflugur á fjöllum líka. Hann hefur greinilega elst vel.


Takk fyrir það,, já hann hefur eldst ágætlega. Þarf samt að setja smá ryðviðgerðir á ToDo lista sumarsins.
Davíð Örn


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur