HJ-61 "feiti"

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 27.mar 2011, 13:34

Sælir, þar sem ég ligg bara í bælinu heima í Svíþjóð með ekkert að gera ákvað ég að koma upp svona þræði um kaggan minn, aðeins til að drepa tímann.

keypti djásnið krambúlerað árið 2007 og eyddi svo vetrinum að skverann upp, fór á götuna Maí 2007 minnir mig, tók ekki nema 4 mánuði.

svona var hann þegar ég fékk hann
Image

fékk galloper á 90 í hliðina, hásinginn og grindin að framan í frumeindum. Upphaflega ætlaði ég að rífa hann í FJ-55 cruiser sem ég átti en örlögin höguðu því þannig að sá bíll var að mestu partaður í þennan seinna.
En þar sem boddýið var svona sultugott þá hafði ég það ekki í mér að partann, þannig ég fékk mér bara nýja grind

Image

Á gormum (reyndar lélegum) með barkalæstar hásingar og 4.88 hlutföll.

þá var ekkert annað en að vippa boddýinu af og fara að færa á milli

Image
hlaupaköttur er alveg þyngdar sinnar virði í gullu við svona (og vikta þeir nú slatta)

Image
mótorinn kominn í nýju grindina sem var hreinsuð og ryðvarinn áður.

Svo var bara slakað á aftur
Image

Svo voru steyptir kantar og sett nýtt bretti, bjó svo vel að það voru til mót fyrir þessa kanta uppá lofti :P

Image

Image

skar úr afturköntunum þannig hurðarnar gætu opnast.

svo var bara pússað og pússað þar til hægt var að mála þetta sómasamlega
Image

Image

Var þá bara orðinn nokkuð sneddý fannst mér

og eftir að hafa fengið vægt hjartaáfall þegar ég skoðaði stigbretti ákvað ég bara að smíða mín eigin
Image
smá prufa úr beygjuvélinni

svo var bara beygt
Image

og kom svona sultuvel út fyrir bara brot af því sem brettin kostuðu í bílanausti og ég gat ráðið breiddinni á þeim sjálfur
Image

svo þurfit auðvitað að pósa í sólinni
Image

Image

svo smíðað voða fínt beisli, sem er nú búið að fá að taka aldeilis á því í gegnum árin núna
Image
Image
Fann svo þessa mögnuðu græju aftur uppá lofti, kom úr Benz Atego minnir mig, svo maður væri nú ekki alltaf að stúta perunum þeim kerrum sem ég var að nota
Image

og þar sem þetta er nú óttalegur traktor þá var hann auðvitað notaður sem slíkur í sveitinni, töluvert skemmtilegra að slóðadraga á svona en MF135 :)
Image

og með 3.5 tonna dráttargetu mátti brúka hann töluvert í hestakerrubull
Image
ekki að þegar þessi 7 hesta kerra var vel lestuð þá var ekkert voðalega gaman að fara upp kambana...

Svo fannst mér orginal stuðarinn ekki að vera gera sig þannig ég smíðaði nýjann
Image

svo var málað og fyrst ég var að því þá málaði ég grillið og plöstin að framan líka, kom bara nokkuð vel út fannst mér
Image

Svo kom að því að kæla draslið, var reyndar ekki alveg með það á hreinu hvar þetta skildi komast en fékk hann á ágætis verði :P
Image

en í fór helvítið með smá tilfæringum
Image
var mjög sáttur við bílinn eftir þetta.

svo nýjir hjólbarðar, búinn að keyra yfir 40.000km á þessum og sér ekki á þeim og virka mjög vel í snjó fyrir þetta þungan bíl allavega.
Image

svo stuðarinn skveraður til og sett prófíltengi
Image

smíðaði svo svona brúsastól á hann
Image
orðinn bara feiknarlega góður ferðabíll.
Image

Leðursæti úr imprezu GT
Image

jæja þetta er nóg í bili held ég, vona einhverjir hafi gaman að þessu, veit mér finnst alltaf mjög skemmtilegt að skoða svona myndir frá öðrum þannig maður verður að "pay it forward" :P
Síðast breytt af Hjörturinn þann 27.mar 2011, 14:55, breytt 1 sinni samtals.


Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61

Postfrá Hjörturinn » 27.mar 2011, 13:35

nokkrar myndir af afturstuðaranum sem ég smíðaði

Gerður úr 2mm blikk plötum
Image
Þarna er ég bara að sjóða festingaranar við grindina á svo þetta passi nú
Image
Image
Setti álplötu á toppinn eins og að framan til að hafa eitthvað grip þegar maður stendur á þessu, lookar líka ágætlega

Image

..þarf að fara taka afturhlerann í gegn.

Svo nokkrar action myndir :p
Image
Image
Image
glettilega seigur þegar búið er að læsa að framan og aftan, alger jarðýta

Image
Image
Image

Image
Tekið áðí með brotinn framöxul
Image
Krapaógeð
Síðast breytt af Hjörturinn þann 27.mar 2011, 14:40, breytt 1 sinni samtals.
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61

Postfrá Hjörturinn » 27.mar 2011, 13:35

og vonandi hér líka
Dents are like tattoos but with better stories.


arni_86
Innlegg: 94
Skráður: 03.feb 2010, 22:39
Fullt nafn: Árni Einarsson

Re: HJ-61

Postfrá arni_86 » 27.mar 2011, 13:47

Vel gert!

Hørkubilar . Gott ad menn nenna ad halda thessu vid.


stebbi1
Innlegg: 170
Skráður: 03.feb 2010, 17:23
Fullt nafn: Stefán Grímur Rafnsson
Bíltegund: Nissan Patrol
Staðsetning: Vopnafjörður

Re: HJ-61

Postfrá stebbi1 » 27.mar 2011, 13:55

ég væri nú alveg til í að gefa anann handlegginn fyrir þenann!!
þetta er alveg þræl maggnað hjá þér.
44" Nissan patrol (ofur~patti)
35" Suzuki samurai árg 92
35" suzuki samurai 6x6
Chervolet blazer 74 árg

----------Suzuki half the size twice the guts----------

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: HJ-61

Postfrá ellisnorra » 27.mar 2011, 14:07

Glæsilegur bíll hjá þér, alltaf skemmtilegt að skoða mydnir frá öðrum, sérstaklega af svona verkefnum í ódýrari kantinum :)
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: HJ-61

Postfrá jeepson » 27.mar 2011, 14:13

Held að þetta sé nú bara sá flottasti sem að ég hef séð af þessum cruiserum :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


Rúnarinn
Innlegg: 274
Skráður: 02.feb 2010, 11:50
Fullt nafn: Rúnar ólafsson
Bíltegund: Terrano II

Re: HJ-61

Postfrá Rúnarinn » 27.mar 2011, 14:39

Hann er flottur hjá þér Hjörtur, einmitt alltaf mjög gaman að sjá svona myndir þegar menn eru að breyta og bæta. hvað varð um gamla cruserinn sem þú áttir??

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1397
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: HJ-61

Postfrá Járni » 27.mar 2011, 14:41

Verklegt!
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61

Postfrá Hjörturinn » 27.mar 2011, 14:43

Þakka hlý orð um kaggann :)
Já þessi bíll hefur alltaf verið smíðaður á námsmanna budgeti þannig ég hef eiginlega gert allt í honum sjálfur.

Annars þá seldi ég rauða tröllið eftir að ég var búnað tæta hásingarnar í spað og selja úr þeim og nota í brúna, vona hann komist einhverntímann í stand
hérna er mynd af þeim grip
Image
hrottalega verklegur gripur, þurfti bara alltof mikla vinnu til að verða góður :/
Dents are like tattoos but with better stories.


stebbi1
Innlegg: 170
Skráður: 03.feb 2010, 17:23
Fullt nafn: Stefán Grímur Rafnsson
Bíltegund: Nissan Patrol
Staðsetning: Vopnafjörður

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá stebbi1 » 27.mar 2011, 15:46

Er sá rauði í uppgerð hjá einhverjum eða bara að ryðga einhversstaðar?
44" Nissan patrol (ofur~patti)
35" Suzuki samurai árg 92
35" suzuki samurai 6x6
Chervolet blazer 74 árg

----------Suzuki half the size twice the guts----------

User avatar

JonHrafn
Innlegg: 578
Skráður: 06.feb 2010, 10:41
Fullt nafn: Jón Hrafn Karlsson
Staðsetning: Keflavík south

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá JonHrafn » 27.mar 2011, 16:11

Alltaf gaman að sjá svona uppgerðir.

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 27.mar 2011, 16:23

Er sá rauði í uppgerð hjá einhverjum eða bara að ryðga einhversstaðar?

skilst hann standi bara á Ísafirði (eða einhversstaðar þarna á vestfjörðum)
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá jeepson » 27.mar 2011, 16:44

Hjörturinn wrote:
Er sá rauði í uppgerð hjá einhverjum eða bara að ryðga einhversstaðar?

skilst hann standi bara á Ísafirði (eða einhversstaðar þarna á vestfjörðum)


Gott að boddýið standi ekki í Bolungarvík. Skal bara tékka á því næst þegar ég fer á ísafjörð :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


Guðjón S
Innlegg: 76
Skráður: 20.júl 2010, 16:43
Fullt nafn: Guðjón Smári Guðjónsson

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Guðjón S » 27.mar 2011, 19:19

Flottir og góðir bílar sem hægt er að treysta á. Svo væri eiginlega upplagt að efna til ferðar þar sem þessir LC hj60-61 hafa frumkvæðið, skemmtilegt fyrir eigendur og aðra að skoða og njóta.

Þú ert kannski búinn að sjá þetta.http://www.f4x4.is/index.php?option=com ... mId=252224.

Efnum til stórferðar LC HJ-60-61, er það ekki málið.

Kv, Guðjón S.

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 27.mar 2011, 19:56

Jú grefilli flottur þessi

Annars hefði ég ekkert á móti LC60 ferð, er reyndar í námi í Svíþjóð en kem í 2 vikur yfir páskana, var kominn dagsetning á þetta?
Dents are like tattoos but with better stories.


Guðjón S
Innlegg: 76
Skráður: 20.júl 2010, 16:43
Fullt nafn: Guðjón Smári Guðjónsson

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Guðjón S » 28.mar 2011, 01:01

Nei, engin dagsetning. Var bara að skjóta þessu fram. Þyrfti kannski einhvern annan með til að skipuleggja svona hópferð.


steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá steinarxe » 28.mar 2011, 10:13

Þrusuflottur krúser hjá þér!!snilldar bílar

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 13.aug 2011, 10:25

Nokkrar uppfærslur á kagganum undanfarna daga..

Image
Varð svo frægur um daginn að fá mér nýja gorma :) þá er bara næst að fá sér dempara (námsmannabudget sjáiði til)

Um leið þá boraði ég út og setti 10mm pinnbolta með tengiró sem var með renndann 90 gráðu kón, mjög patent og einföld lausn (þakka rennverkstæði Ægirs fyrir tipsið)

En þar sem toyotu hjartað slær svo taktfast í manni ákvað ég að möndla pinnbolta úr 100 cruiser í restina, fá soldið meira stock lúkk og þá kem ég bremsskálinni af án þess að losa boltana, um leið uppfærði ég felguboltana úr 12mm í 14mm, að aftan eru framboltar úr 100 cruiser (14x1.5) og framan úr Chevy suburban ofl. (14x1.5).

Image
Brotið drasl. (að framan)

Image
ekki brotið og ekki drasl :) (að aftan)
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 13.aug 2011, 10:49

Svo nokkrar ferðamyndir frá Grímsvatnaferð í Júní

Tungnaá
Image

Fann pitt á leiðinni uppá vatnajökul
Image

Manni leið stundum eins á tunglinu þarna..
Image

Svo var nú bara engu líkara en maður væri kominn á sprengisand :/
Image

En það mátti líka leika sér eitthvað austan við grímsvötn
Image
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

MattiH
Innlegg: 477
Skráður: 21.jún 2010, 12:29
Fullt nafn: Matthías Hálfdánarson
Bíltegund: LC90

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá MattiH » 14.aug 2011, 00:14

Mjög flottur hjá þér !
Toyota LC90 41" Irok

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá hobo » 14.aug 2011, 18:43

Þetta er glæsilegt verkefni hjá þér. Og ekki verra að búa að góðri aðstöðu.


jongunnar
Innlegg: 220
Skráður: 14.jún 2011, 21:03
Fullt nafn: Jón Gunnar Mýrdal

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá jongunnar » 14.aug 2011, 20:48

Mér finnst þessi bíll vera alveg þrælflottur hjá þér. Ég féll alveg fyrir stígbrettunum, mig langar að smíða mér svona á minn bíl...
Ef það er ekki olía undir enskum bílum þá er ekki olía á þeim


juddi
Innlegg: 1247
Skráður: 08.mar 2010, 10:45
Fullt nafn: Dagbjartur L Herbertsson

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá juddi » 15.aug 2011, 10:51

Ertu með rendar tengi rær að aftan eða lausan kón og ró og ertu með pinnbolta úr 100 krúser að aftan ? Er að fá svona vandamál inná gólf til min sem þarf að leysa fljótt og örugglega.

Hjörturinn wrote:Nokkrar uppfærslur á kagganum undanfarna daga..

Image
Varð svo frægur um daginn að fá mér nýja gorma :) þá er bara næst að fá sér dempara (námsmannabudget sjáiði til)

Um leið þá boraði ég út og setti 10mm pinnbolta með tengiró sem var með renndann 90 gráðu kón, mjög patent og einföld lausn (þakka rennverkstæði Ægirs fyrir tipsið)

En þar sem toyotu hjartað slær svo taktfast í manni ákvað ég að möndla pinnbolta úr 100 cruiser í restina, fá soldið meira stock lúkk og þá kem ég bremsskálinni af án þess að losa boltana, um leið uppfærði ég felguboltana úr 12mm í 14mm, að aftan eru framboltar úr 100 cruiser (14x1.5) og framan úr Chevy suburban ofl. (14x1.5).

Image
Brotið drasl. (að framan)

Image
ekki brotið og ekki drasl :) (að aftan)
Daggi S:6632123 snurfus@gmail.com

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 15.aug 2011, 12:48

Öðrumegin að aftan er ég með tengirær þar sem ég renndi 90 gráðu kón á endann.
Hinumeginn eru svo pinnboltar úr 100 cruiser með lausum kón, spenniskinnu og ró.

Kóninn á 100 cruiser dæminu er 50 gráður, en ég slípaði bara niður 90 gráðu úrsnara til að geta kónað þetta dýpra.
pinnboltarnir eru svo M10x1.25 snitti.
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

Svenni30
Innlegg: 1164
Skráður: 05.maí 2011, 14:49
Fullt nafn: Sveinn Haraldsson
Bíltegund: Toyota hilux
Staðsetning: Dalvík

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Svenni30 » 15.aug 2011, 13:36

Mjög flottur hjá þér
Sveinn Haraldsson
Toyota hilux 38"

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 15.aug 2011, 23:00

Hurðu svo nýjasta nýtt, 5 bolta stýrisarmur!

Image

Einnig bætti ég við gati neðst á liðhúsið til að tappa af vatni.
Dents are like tattoos but with better stories.


juddi
Innlegg: 1247
Skráður: 08.mar 2010, 10:45
Fullt nafn: Dagbjartur L Herbertsson

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá juddi » 16.aug 2011, 09:40

Aæll aftur en stýri pinnarnir sleptirðu þeim eða smíðaðir nýja ? svo ef einhver lumar á frammfjöðrum eða einu augablaði þá vantar mig það
Daggi S:6632123 snurfus@gmail.com

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 16.aug 2011, 09:55

Nei ég sleppti þeim bara, götin orðinn kjöguð og þeir flestir brotnir, styrkurinn í 10mm boltunum á móti þeim 8mm er svo miklu meiri að ég læt það bara duga

Svo fleirri myndir af liðhúsinu

Image
Image
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 08.jún 2012, 13:07

Búnað vera prufa kaggann á mismunandi dekkjum

Image
Image
41" irok, kom virkilega vel út í mjög þungu færi í Janúar á þessu ári, hefði mátt vera meira flot en þessi dekk eru með allt gripið í heiminum, kom vel út en varð rosalega kjánalegur því þetta er svo mjótt, já og draumur að keyra á þessu og eyðslan minnkaði. (fór með 10l frá Selfossi til hrauneyja, hálka).

Image
Image
Svo auðvitað gleðigúmmíið, auðvitað alveg handónýtt útá vegi en fljóta fyrir allann peningin, lookar líka frekar verklegur á þeim :)
Eyðsla frá selfossi á hrauneyjar um 12-13 lítrar.

já og svo video
http://www.youtube.com/watch?v=2-jUmaU1pxA&feature=plcp
Síðast breytt af Hjörturinn þann 30.okt 2012, 15:17, breytt 2 sinnum samtals.
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá hobo » 08.jún 2012, 14:10

Jájá þú ert alveg með´etta.

Ég væri til í að prófa 41" Irok ef ég hefði hug á að stækka við mig, virðast hafa þokkalegt orð á sér.
En þá þyrfti ég að skipta um bíl..


Hrannifox
Innlegg: 374
Skráður: 19.sep 2011, 20:14
Fullt nafn: Hrannar Sigfússon
Bíltegund: Musso Sport 37''
Staðsetning: Hveragerði

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hrannifox » 11.jún 2012, 19:27

Rosalega fallegur bíll hjá þér.

Ekki getur verið að ég hafi séð hann á ferðinni í fyrradag inni kopavogi ?
sá allavega nákvæmlega eins bíl, þakka guði fyrir að ég hafi ekki snúið mig úr hálslið, munaði litlu þó
Hranni Fúsa
Jeep Grand Cherokee WJ

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 11.jún 2012, 23:51

Þakka fyrir hlý orð, jú það gæti bara hugsast, en sem betur fer sjá menn hann ekki oft í návígi, hann er nefnilega svona fjarskafallegur :)
Skelfilegt hvað þessir bílar eru ryðsæknir :S
Dents are like tattoos but with better stories.


Hrannifox
Innlegg: 374
Skráður: 19.sep 2011, 20:14
Fullt nafn: Hrannar Sigfússon
Bíltegund: Musso Sport 37''
Staðsetning: Hveragerði

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hrannifox » 13.jún 2012, 15:04

tja ég læt það vera að segja að hann sé fjaskafallegur, má nú ekki draga hann niður :)
Hranni Fúsa
Jeep Grand Cherokee WJ

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 01.mar 2013, 15:37

jæja smá update, kominn reimdrifinn dæla í húddið og beadlock á dekkinn, svo búnað kaupa mestallt sem þarf fyrir úrhleypingarkerfi og vélahitara sem fer í á næstu dögum

Image
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá jeepson » 01.mar 2013, 15:47

Hjörturinn wrote:Þakka fyrir hlý orð, jú það gæti bara hugsast, en sem betur fer sjá menn hann ekki oft í návígi, hann er nefnilega svona fjarskafallegur :)
Skelfilegt hvað þessir bílar eru ryðsæknir :S


Drífur hann eitthvað minna aðþví að hann er fjarskafallegur?
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

Höfundur þráðar
Hjörturinn
Innlegg: 651
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hjörturinn » 01.mar 2013, 15:49

Drífur hann eitthvað minna aðþví að hann er fjarskafallegur?

Bara meira ef eitthvað er :)
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá jeepson » 01.mar 2013, 16:44

Hjörturinn wrote:
Drífur hann eitthvað minna aðþví að hann er fjarskafallegur?

Bara meira ef eitthvað er :)


Þá myndi ég ekki hafa neinar áhyggjur af útlitinu :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


Hlynurn
Innlegg: 88
Skráður: 11.feb 2013, 14:10
Fullt nafn: Hlynur Nökkvi Hlynsson
Bíltegund: Hilux

Re: HJ-61 "feiti"

Postfrá Hlynurn » 01.mar 2013, 19:13

Svakalega flottur bíll, hvaða vél er í þessu hjá þér?

edit: hvernig spyr maður :P smá hjálp frá google og svarið blasir við
Síðast breytt af Hlynurn þann 01.mar 2013, 21:33, breytt 1 sinni samtals.


einsik
Innlegg: 116
Skráður: 24.jún 2011, 19:15
Fullt nafn: Einar S. Kristjánsson

Re: HJ-61

Postfrá einsik » 01.mar 2013, 21:22

stebbi1 wrote:ég væri nú alveg til í að gefa anann handlegginn fyrir þenann!!
þetta er alveg þræl maggnað hjá þér.


Get ekki annað en verið sammála þessu.
Skemmtilega fallegur bíll, væri mjög sáttur ef minn liti svona vel út.
Einar Kristjánsson
R 4048


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur