Bestu kaup á 35" jeppa.


Höfundur þráðar
Fjalla-Brá
Innlegg: 31
Skráður: 20.mar 2011, 12:23
Fullt nafn: Guðjón Ingi Kristjánsson
Bíltegund: PATROL

Bestu kaup á 35" jeppa.

Postfrá Fjalla-Brá » 20.mar 2011, 12:28

Mig vantar álit á nokkrum jeppum og kosti þeirra og galla.
Ætla að fjárfesta í 35 tommu breyttum bíl sem verður að vera 7 manna og í þeim flokki eru Patrol-Pajero-Trooper-Toyota.Ég er að leita að bíl árg 1998-2000 ca og langar að vita hvað menn hafa segja um þessa bíla og hvernig þeira hafa reynst, td eyðsla, bilanatíðni, gallar, kostir og bara gæði yfir höfuð.

Með hvaða bíl mælir þú með og hvers vegna ???

Endilega tjáið ykkur



User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: Bestu kaup á 35" jeppa.

Postfrá hobo » 21.mar 2011, 19:44

Ætli menn séu ekki orðnir þreyttir á að svara algengum spurningum.
Prófaðu leitina efst í hægra horni og þú munt finna margar umræður og reynslusögur um flesta jeppa.

User avatar

Doror
Innlegg: 323
Skráður: 10.apr 2010, 23:02
Fullt nafn: Davíð Örn Svavarsson

Re: Bestu kaup á 35" jeppa.

Postfrá Doror » 21.mar 2011, 21:44

Ég myndi hiklaust segja Trooper ef að það á ekki að jeppast mikið. Eyðir temmilega og hægt að fá 35" bíla á 4-500 þúsund. Patrolinn er mun dýrari og eyðir meira og Toyotan er margfallt dýrari fyrir 7 manna.

Mögulega væri líka hægt að fá fínan Terrano á lítin pening.
Davíð Örn

User avatar

MattiH
Innlegg: 477
Skráður: 21.jún 2010, 12:29
Fullt nafn: Matthías Hálfdánarson
Bíltegund: LC90

Re: Bestu kaup á 35" jeppa.

Postfrá MattiH » 21.mar 2011, 22:26

Ég hef allavega bara gott að segja um Pajeroinn, Er mjög sáttur við minn. (98 2.8tdi 35")

Þægilegur ferðabíll, Fer þær fjallaferðir sem ég þarf að fara og nóg pláss.
Maður situr "rétt" í honum annað en í öðrum jeppum og þreytist lítið í langakstri.

Ég prufaði marga bíla áður en ég keypti þennan og mér fannst Pajeroin bera af í akstri og þægindum.
Toyota LC90 41" Irok


Höfundur þráðar
Fjalla-Brá
Innlegg: 31
Skráður: 20.mar 2011, 12:23
Fullt nafn: Guðjón Ingi Kristjánsson
Bíltegund: PATROL

Re: Bestu kaup á 35" jeppa.

Postfrá Fjalla-Brá » 22.mar 2011, 09:03

Já ég átti Trooper 33" í 4 ár og líkaði hann mjög vel en ég fékk að kynnast aðeins þeim göllum varðandi vél sem hafa verið að hrjá þessa bíla en það er spurnig þegar búið er að skipta þeim hlutum út og endurnýja að þeir séu til friðs eftir það.
Og varðandi Pajero þá hefur maður oft heyrt það að þetta væru mjög góðir og skemmtilegir ferðabílar og vel að þeim látið yfir höfuð með annað.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur