Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
-
- Innlegg: 3176
- Skráður: 31.jan 2010, 16:02
- Fullt nafn: Gísli J Gíslason
- Bíltegund: Nissan patrol
- Staðsetning: Þarna fyrir austan.
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Hlutirnir virðast bara ganga útá eitt í RVK Það er að vera fyrstur.
Kv. Gísli
Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn
Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Ég keyri alltaf eins og hálviti í höfuðborginni,enda er ég alltaf að drífa mig í gegn þarsem maður nennir ekki alltaf að keyra kjöl til að komast frammhjá þessum andskota;)
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
jeepson wrote:Hlutirnir virðast bara ganga útá eitt í RVK Það er að vera fyrstur.
Jamm, verst með þessa landsbyggðamenn sem eru að hanga fyrir manni ;)
_________________________________
Jón H. Guðjónsson
1981 Chevrolet Blazer K5 Silverado
1986 Pontiac Firebird Transam
2000 VW Passat 1,6
2006 Trek 5200 (racer)
2007 Jeep Grand Cherokee Laredo
2012 Cube LTD Race (fjallahjól)
Jón H. Guðjónsson
1981 Chevrolet Blazer K5 Silverado
1986 Pontiac Firebird Transam
2000 VW Passat 1,6
2006 Trek 5200 (racer)
2007 Jeep Grand Cherokee Laredo
2012 Cube LTD Race (fjallahjól)
-
- Innlegg: 3176
- Skráður: 31.jan 2010, 16:02
- Fullt nafn: Gísli J Gíslason
- Bíltegund: Nissan patrol
- Staðsetning: Þarna fyrir austan.
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
JHG wrote:jeepson wrote:Hlutirnir virðast bara ganga útá eitt í RVK Það er að vera fyrstur.
Jamm, verst með þessa landsbyggðamenn sem eru að hanga fyrir manni ;)
Við landsbygðarmenn kunnum bara að keyra :) Svo liggur okkur ekki svona á heldur ;)
Kv. Gísli
Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn
Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn
-
- Innlegg: 2098
- Skráður: 31.jan 2010, 22:59
- Fullt nafn: Stefán Stefánsson
- Bíltegund: Eitthvað blátt
- Staðsetning: Hafnarfjörður
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Nú er ég ekki uppalinn í borg óttans og tek þessa borgarpésa í nefið á morgnana á leið til vinnu. :) Áfram dreifbýlistúttur.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
-
- Innlegg: 288
- Skráður: 05.okt 2010, 15:05
- Fullt nafn: Stefán Örn Steinþórsson
- Bíltegund: Jeep Wrangler
- Staðsetning: Akureyri
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Það kemur að því að menn fatta að lífið er ekkert skárra þegar komið er á áfangastað og hætta að flíta sér...
Svo komast þeir skörpustu að því að eina vitið sé að flíta sér út úr borginni :)
Svo komast þeir skörpustu að því að eina vitið sé að flíta sér út úr borginni :)
-
- Innlegg: 101
- Skráður: 02.feb 2010, 01:55
- Fullt nafn: Bragi Þór Jónsson
- Bíltegund: Ford F-150 FX4
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafa samband:
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Brjótur wrote:http://f4x4.is/index.php?p=155397&jfile=viewtopic.php&option=com_jfusion&Itemid=228#p155375
því miður kann ég ekki að gera þetta öðruvísi, en þar sem að ég er ekki með skrifaðgang á f4x4 þá ætlaði ég að koma smá skilaboðum til Braga um þórsmerkurrúnt, ef þú ekki þorir einn með ferðamenn þangað þá ættir þú að láta fagmenn um málið.
Ja hérna, gaman að þessu :D en ég var að rekast á þennan þráð í dag.
Ég bara verð að svara þessu, þar sem Helgi var að reyna að koma skilboðunum til mín.
Já, gaman að sjá hvernig úlfaldi verður til úr mýflugu þegar menn skrifa svona (vonandi í fljótfærni) illa ígrundaða setningu en það er þetta með þorið, að segja að einhver þori ekki.
Ég verð nú að segja það að þegar ég las þetta, þá varð ég verulega móðgaður, móðgaður yfir því að einhver (Helgi í þessu tilfelli), sem þekkir mig hvorki persónulega né að öðru leyti, skuli skrifa svona hrokafullar "ráðleggingar".
Mér fannst það virkilega niðrandi og að mér vegið.
Eftir því sem ég las neðar í þráðinn, var ég að vonast til að viðkomandi myndi sjá að sér, sérstaklega eftir plammeríngar annarra, og myndi afsaka orðalagið og biðja mig afsökunar á þessum tilmælum. En sú varð ekki raunin, þó hann hefði tilgreint það að hann væri ekki manna heppnastur á lyklaborðið.
Reyndar hef ég séð áður ýmis misjafnleg skrif hjá Helga.
Ég er ekki atvinnubílstjóri, hvorki á fjöllum né í bæ en tel mig nokkuð áreiðanlegan og ábyrgan og reyni að gera betur í dag en í gær.
Ég tel mig seint vanan eða góðan bílstjóra, þótt ég hafi verið undir stýri síðan um 6 ára aldur, og finnst að allir ættu að hugsa eins, þar sem meiri líkur væru þá á því að menn væru þá að reyna að gera alltaf betur.
Þetta virðist ill-ómögulega að sjá hjá t.d. mörgum leigubílstjórum sem og stætisvagnastjórum, alla vega í borg óttans.
Fylgir þetta með meiraprófinu í Reykjavík ??
Varðandi ferðina góðu, þá benti einn mér á veðurspánna en hana hafði ég kynnt mér og vissi það að veðrið er yfirleitt betra í Þórmörk en spár segja til um. Sannaðist það og fengum við þetta líka fína veður, sólskin á köflum og dúnalogn með smá snjómuggu fram eftir degi.
Við höfðum ákveðið að þennan sunnudag færum við, fjölskyldan, í Þórsmörk með tengdaforeldra mína, sem voru í vikuheimsókn frá Danaveldi.
Við leigðum 7 manna Terrano II, á 35" dekkjum hjá CheapJeep, þar sem við vorum of mörg í minn fjallatrukk (sjá prófílmynd). Ég hef ósjaldan farið í Þórsmörk og geri mér fyllilega grein fyrir því hvernig aðstæður geta þar orðið.
Eins og fram hefur komið, þá spurði ég hvort einhverjir yrðu á svæðinu tiltekinn sunnudag, þar sem ég væri VHF laus og var ég að vonast eftir að fá kannski eins og eitt símanr. eða í það minnsta jákvætt svar, svona ef ske kynni að eitthvað kæmi fyrir. Það er nú þannig hjá mér, að þegar um lánsbíl er að ræða sem ég þekki ekki eins vel og minn eigin, þá örlar fyrir eilitlu vantrausti á áreiðanleikann. Stóð þessi Terrano II þó fyrir sínu og kom okkur heilum og höldum, fram og til baka. Ég tók með þann búnað sem ég taldi nauðsynlegan til ferðarinnar, s.s. verkfæri, loftdælu, dekkjaviðgerðarsett og nægan mat fyrir hópinn ásamt fatnaði.
Á leið okkar hittum við svo fjóra vel útbúna bíla og þar með urðu "einbíla" áhyggjurnar úr sögunni.
Ég hef oft farið einbíla um landið okkar góða, þmt. margar ferðir í Þórsmörk og kem líklega til með að gera það áfram um ókomna tíð.
Ég tel mig ekkert minni "fagmann" þótt ég geri ekki sérstaklega út á það og sé ekki með meiraprófið.
Og Helgi, ef þú þarft að koma slíkum "ráðleggingum" á mig seinna, þá er gsm númerið mitt á F4x4 prófílnum og emailið mitt hér í fætinum ;)
Góðar stundir.
Bragi (at) trukkurinn.com
http://trukkurinn.com
http://trukkurinn.com
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Á að senda vælubílinn á ykkur alla hérna ???? ef ég væri að fara með tengdaforeldra mína í jeppaferð þá myndi ég fara með þau en ekki einhvern her af öðru fólki, en já ég er beinskeyttur og það þola það ekki allir og allra síst þeir sem eiga sneiðarnar, og það sýnir sig alltaf best á svörunum, og Bragi minn ég er nú búinn að lesa þræðina þína nánast frá byrjun, og,,,, jahá,,, og það er bara ekkert neikvætt við það að segja þér að nota fagmenn í málið, erum við bíleigendur ekki hvattir til að versla ekki við fúskara og skúraviðgerðarmenn??? Svo hver er munurinn? á þetta ekki líka við í þessari grein?? þetta er sama málið kæru spjallverjar, og hættið svo að vera svona hörundsárir, þó sannleikurinn sé stundum sagður :)
kveðja einhver Helgi
kveðja einhver Helgi
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Það er gott að hætta að moka þegar þú sérð ekki lengur uppúr holuni.
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"
Arctic cat M8000 162"
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2493
- Skráður: 31.jan 2010, 17:44
- Fullt nafn: Hörður Bjarnason
- Bíltegund: 1988 Ford Econoline
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Það sem byrjaði sem hagsmunapot endaði sem skot í fótinn..
-
- Innlegg: 8
- Skráður: 28.des 2010, 22:29
- Fullt nafn: vignir m sigurðsson
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
Sumir er bara meiri faggmenn en aðrir
Re: Ráðlegging til Braga um akstur í þórsmörk
vona bara að það sé FAGGGMAÐUR á vælubílnum ;)
Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 0 gestir