góðan daginn,
Ég er með LC 90 með common rail. Ég var að skipta um túrbínu í honum. Ég keypti uppgerða túrbínu á Ebay og hún virkar ekki, hún virðist ekki koma inn og bíllinn vinnur eins og hann sé túrbínulaus. Einhver sem á skýringu á þessu? Eða er ég með gallaða vöru?
Tek fram að hin túrbínan virkaði en var komið hljóð í hana og aðeins farin að smita olíu. Þannig að mig langar að vita hvort einhver veit hvað gæti verið að áður en ég set gömlu í aftur.
kv, Siggi
Land cruiser 90 trúbínuves.
-
- Innlegg: 1164
- Skráður: 05.maí 2011, 14:49
- Fullt nafn: Sveinn Haraldsson
- Bíltegund: Toyota hilux
- Staðsetning: Dalvík
Re: Land cruiser 90 trúbínuves.
Er hræddur um að þú sért með ónýta vöru. Þessar Ebay bínur eru voða misjafnar. Maður hefur heyrt um að þær séu stundum að endast ágætlega og svo að þær nánast ónýtar um leið.
Ég t.d pantaði mér af Ebay og borgaði um 70 þús fyrir en endist ekki nema í 1500 kílómetra þá var hún gjörsamlega búin. Ég kvartaði við sellerinn og fékk nýja Sen ég reyndar setti aldrei í er bara uppí hillu.
Þetta er svolítið lotterí.
Gangi þér vel með þetta
Ég t.d pantaði mér af Ebay og borgaði um 70 þús fyrir en endist ekki nema í 1500 kílómetra þá var hún gjörsamlega búin. Ég kvartaði við sellerinn og fékk nýja Sen ég reyndar setti aldrei í er bara uppí hillu.
Þetta er svolítið lotterí.
Gangi þér vel með þetta
Sveinn Haraldsson
Toyota hilux 38"
Toyota hilux 38"
Re: Land cruiser 90 trúbínuves.
Takk fyrir þetta, ég var að skoða þetta áðan. Þetta er rafstýrð túrbína, það er ekki bypass loki á henni heldur breytist stigningin á blöðunum til að stýra þrýstingnum. Ég var að reyna að hreyfa til arminn sem stýrir þessu en hann viðist alveg fastur, þetta hefur alltaf verið hjólliðugt á hinni og maður hefur séð hvernig þetta vinnur þegar bíllinn er í gangi og honum er gefið, nú gerist ekkert.
Ríf þetta úr á morgun og hendi gömlu í aftur.......
Ríf þetta úr á morgun og hendi gömlu í aftur.......
-
- Innlegg: 1273
- Skráður: 15.okt 2013, 19:45
- Fullt nafn: Elías Róbertsson
- Bíltegund: F350 38,5"
- Staðsetning: Ólafsvík
Re: Land cruiser 90 trúbínuves.
En hefur þú kannað hvað framtak blossi tekur fyrir að skifta um legur og hreinsa gömlu túrbínuna.
Fer það á þrjóskunni
Re: Land cruiser 90 trúbínuves.
svarti sambo wrote:En hefur þú kannað hvað framtak blossi tekur fyrir að skifta um legur og hreinsa gömlu túrbínuna.
Síðast þegar ég athugaði með það þá sögðust þeir ekki hafa græjur í að stilla inn raftýrðar túrbínur eins og þessa. En það er reyndar 1,5 ár síðan ég athugaði með það, gæti hafa breyst síðan þá.
Re: Land cruiser 90 trúbínuves.
Tók hana úr aftur og það kom í ljós að spjöldin í henni eru föst þannig að ég setti bara gömlu í aftur. Ætla síðan að gera tilraun til að endursenda hana og helst fá endurgreitt.
-
- Innlegg: 1697
- Skráður: 01.feb 2010, 08:46
- Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
- Bíltegund: F-250 Powerstroke
- Staðsetning: Akranes
Re: Land cruiser 90 trúbínuves.
Smurðir þú inn á hana áður en þú gangsettir ?
Heilagur Henry rúlar öllu.
Re: Land cruiser 90 trúbínuves.
jeepcj7 wrote:Smurðir þú inn á hana áður en þú gangsettir ?
Já gerði það og lét starta þangað til smurljósið slökknaði og aðeins lengur.
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur