Vantar alternator í 1992 bensín 2.4 hilux. Lenti í því að drekkja honum í drullu og sat þar fastur í klukkutíma, var einnig að spá hvort að einhver hafi lent í þessu og náð að þrífa hann og fengið hann til að virka aftur.
Var að keyra þúsund vatna leið og keyrði vitlaust í sirka 1.2m djúpan drullupoll fyrir neðan veginn bíllinn sat þar í klukkutíma fastur með alternatorinn undir, þegar það var dregið hann upp náðum við að draga hann í gang (var rafmagnslaus í pollinum). Þá prófaði ég að slökkva á honum og setja hann aftur í gang og hann rauk í gang, ég veit að hann hlóð eitthvað inná sig þar sem að hann neitaði að starta leið og það var búið að draga hann upp. Keyrði hann síðan nánast alla leið í bæinn og þá slökknuðu öll ljós í mælaborði og mælarnir hættu að virka, svo sirka 200m frá að það gerðist deyr á öllu rafmagni ljósum hassard svo loks bílnum. Síðan var reynt að draga hann í gang en ekkert gerðist. Hef ekkert reynt eftir það. Ekki er ég svo heppinn að einhver kunni einhverjar kúnstir til að þurfa ekki að taka hann upp eða þá að þurfa að kaupa nýjan.
Alternator vesen.. hjálp
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 5
- Skráður: 03.okt 2016, 14:34
- Fullt nafn: Kristófer Orri Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Hilux 1992
Re: Alternator vesen.. hjálp
Ekkert annað að gera en að taka hann úr bílnum og opna hann. Svo er bara að þrífa hann skoða hvort kolin nái vel sambandi eða hvort einhvað er að sjá að dótinu. Svo er hægt að mæla allskonar dót eins og díóðubrúnna, hvort statorvöfin séu rofin eða leiði mikið til jarðar.
Ég myndi byrja þarna og sjá svo til.
Kv Jón Garðar
Ég myndi byrja þarna og sjá svo til.
Kv Jón Garðar
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 5
- Skráður: 03.okt 2016, 14:34
- Fullt nafn: Kristófer Orri Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Hilux 1992
Re: Alternator vesen.. hjálp
Takk takk reddaði þessu með hamri.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur