Til sölu Land Cruiser 90 '97 árgerð ekinn ca 306.000 km
vél 3L túrbó, front mount intercooler, tölvukubbur og manual boost controller. boost og afgashitamælar. virkar ágætlega. sett nýtt hedd, heddpakkning og spíssar gerðir upp 2014, búið að keyra 10-15 þús á því
Hann er beinskiptur og er kominn með 60 cruiser framhásingu, 4link fjöðrun að framan og range rover gormar framan og aftan, nýir old man emu demparar framan og aftan, loftlæstur framan og orginal rafmagnslás aftan, arb loftdæla fyrir lásinn. 5.29 drifhlutföll
Mjög lítið slitinn 41.5 tommu Pitbull Rocker radial dekk, vel negld á 15x15 tommu galvaniseruðum felgum með ventli og krana. dekkin voru keypt í nóvember 2013 og eru keyrð hámark 5000 km
Cb talstöð og lagnir fyrir vhf
álaukatankur
Ný framrúða og búið að laga smá ryð sem var komið í gólf og innan á sílsum, grind virðist í fínu lagi. sáralítið ryð en lakk er ágætt en farið að eldast. öll gólfteppin voru háþrýstismúluð þegar gólfið var lagað fyrir mánuði síðan
Xenon í framljósuum og hella kösturum að framan, díóðuperur í parkljósum. 6 díóðuvinnuljós á toppnum
ásett 2.2 milljónir, skoða tilboð og skipti á bilum
Þorbergur 8665185 eða ep
Land Cruiser 90 41.5"
Re: Land Cruiser 90 41.5"
Alltaf að rifjast eitthvað upp, Það eru nýjar pinnjónslegur í framdrifi og þéttingar í framlásnum
Re: Land Cruiser 90 41.5"
Sennilega er hægt að ákæra þig og sakfella fyrir utanvegaakstur fyrir þessar myndir!
Re: Land Cruiser 90 41.5"
Já það getur verið, en þessar myndir eru teknar í heimalandi við sveitabæinn hjá mér
-
- Innlegg: 171
- Skráður: 10.aug 2012, 18:47
- Fullt nafn: Agnar Áskelsson
Re: Land Cruiser 90 41.5"
Er þessi breytingarskoðaður fyrir 44"?
Agnar Áskelsson
Er að leita að næsta jeppa.
Keflavík
Er að leita að næsta jeppa.
Keflavík
Re: Land Cruiser 90 41.5"
Nei skráður fyrir 38 sem á að duga í 41.5
Re: Land Cruiser 90 41.5"
Tilboð 1,8 staðgreitt.
Re: Land Cruiser 90 41.5"
Nýr stýrisdempari. Engin skipti nema á amerískum dísel pickup
Re: Land Cruiser 90 41.5"
Engum sem vantar jeppa í jólapakkann. 1.650.000 staðgreitt
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur