Sælir ;)
Hafa menn eitthverja reynslu af 3.2 DID diesel pajero (2002-04)
Vinnsla, Vandamál, Eyðsla eða aðrar ábendingar ?
Mælið þið kannski frekar með 3.5 GDI ?
Matti.
3.2 DID Pajero ?
-
- Innlegg: 19
- Skráður: 26.sep 2015, 14:41
- Fullt nafn: Bjarni Þór Gylfason
Re: 3.2 DID Pajero ?
Sæll, átti 05 pajero í 10 ár, 3.2 DID. Var á 33", Anterra breytingin. Varð að eyða svona c.a. 14 minnir mig í blönduðum akstri. Ég passaði alltaf upp á smur, lét skipta á öllu t.d. í 100 þús km, lét dæla 2x i gegnum skiptingu og skipta um kælivökva. Eina sem 'bilaði' á þessum 10 árum var að hjólalegurnar að framan fóru. Annars bara gekk hann, og þræl skemmtilegir bílar. Ég myndi ekki fara í bensínbílinn.
-
- Innlegg: 1157
- Skráður: 01.aug 2010, 12:02
- Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
- Bíltegund: Nissan Patrol '98
Re: 3.2 DID Pajero ?
Kíktu á grein sem byrjar á síðu 5 í þessu pdf skjali, (síða 8 í FÍB blaðinu) http://www.fib.is/myndir/FIBbl13%202012.pdf
Þetta er sorgleg harmsaga um mann sem átti Pajero með 3,2 DID
Þetta er sorgleg harmsaga um mann sem átti Pajero með 3,2 DID
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"
-
- Innlegg: 19
- Skráður: 26.sep 2015, 14:41
- Fullt nafn: Bjarni Þór Gylfason
Re: 3.2 DID Pajero ?
Þetta er rosaleg lesning. Ótrúlegt hvað eigandinn þurfti að ganga í gegnum. Ég er á mínum 4 pajero, og get sagt það og skrifað, að þó mér finnist þessir bílar frábærir þá er umboðið eitt það lélegasta á landinu, því miður.
En ég hef alltaf passað mig á því að oliur og kælivökvi sé í lagi, skipti um kælivökva á mínum 3.2 á 80 þús km fresti, og lét þá sprauta i gegnum kerfið x2.
En ég hef alltaf passað mig á því að oliur og kælivökvi sé í lagi, skipti um kælivökva á mínum 3.2 á 80 þús km fresti, og lét þá sprauta i gegnum kerfið x2.
Re: 3.2 DID Pajero ?
Startarinn wrote:Kíktu á grein sem byrjar á síðu 5 í þessu pdf skjali, (síða 8 í FÍB blaðinu) http://www.fib.is/myndir/FIBbl13%202012.pdf
Þetta er sorgleg harmsaga um mann sem átti Pajero með 3,2 DID
Er þetta ekki frekar áfellisdómur yfir íslensk verkstæði? Held að það sé hægt að grafa upp svona hryllingssögur um flestar bílategundir.
----------------------------------------------
Guðm. Þ.
Pajero 1998 V6 3000/3500 24V
Guðm. Þ.
Pajero 1998 V6 3000/3500 24V
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur