Land Rover Discovery II Td5 árg. 1999
Ekinn 284000 km. Sjálfskiptur, 5 cyl diesel 7 manna. Ný heddpakkning, nýir demparar allan hringinn, allt nýtt í bremsum að framan, nýlegar fóðringar og ballansstangarendar aftan. Nýlegar hjólalegur að framan. Skjáir í hnakkapúðum með fjarstýringum og þráðlausum heyrnatólum (original hnakkapúðar fylgja), er á nýlegum 33“ dekkjum. Mjög heilt boddý og ryðlaus grind, innrétting stráheil, búið að bólstra bílstjórasæti og klæða setuna með leðri á hliðum. Original Webasto olíumiðstöð sem virkar. Það sem hrjáir bílinn núna eru óvirkar samlæsingar og letinginn á þurrkunum virkar ekki. Einnig er komið smá ryð í toppinn eftir illa frágengin framrúðuskipti. Og “the three amigos“ logar í mælaborðinu, en það er trúlega vegna villumeldingar frá ABS skynjara, er búinn að skipta um skynjarann (alla hjólaleguna) en það verður að slökkva ljósin í tölvu.
Þetta er alveg æðislegur ferðabíll, og er búinn að skila okkur vítt og breitt um landið í vor og sumar með bros á vör allan hringinn, en núna verð ég því miður að selja hann. Ég ætla að setja á hann 800 þúsund til að gefa einhverja verðhugmynd, en ég er líka opinn fyrir skiptum á ódýrari bíl og 400-500 þúsund í peningum. Öllum spurningum svarað hér eða í síma 848 6739
Discovery II Td5 SELDUR!
Discovery II Td5 SELDUR!
- Viðhengi
-
- 19.jpg (500.46 KiB) Viewed 3963 times
-
- 18.jpg (382.01 KiB) Viewed 3963 times
-
- 17.jpg (378.76 KiB) Viewed 3963 times
-
- 15.jpg (557.82 KiB) Viewed 3963 times
-
- 14.jpg (461.41 KiB) Viewed 3963 times
-
- 13.jpg (307.06 KiB) Viewed 3963 times
-
- 11.jpg (353.71 KiB) Viewed 3963 times
-
- 08.jpg (412.33 KiB) Viewed 3963 times
-
- 07.jpg (185.79 KiB) Viewed 3963 times
-
- 06.jpg (144.52 KiB) Viewed 3963 times
-
- 05.jpg (146.57 KiB) Viewed 3963 times
-
- 04.jpg (314.03 KiB) Viewed 3963 times
-
- 03.jpg (262.56 KiB) Viewed 3963 times
-
- 02.jpg (290.49 KiB) Viewed 3963 times
-
- 01.jpg (247.94 KiB) Viewed 3963 times
Re: Discovery II Td5
Þessi er enn til, hverjum vantar ekki alvöru Land Rover með upphitaðri framrúðu og Webasto olíufýringu? Verðið er ekkert heilagt, góður afsláttur við staðgreiðslu.
-
- Innlegg: 3133
- Skráður: 07.feb 2010, 13:19
- Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson
Re: Discovery II Td5
sæll viltu þennan upp í Dodge Durango 2000 ágerð 5,9 v-8 góður bíll 7 manna á 32" dekkum sk.16 mjög þéttur ekkert ryð.
- Viðhengi
-
- durango.jpg (433.55 KiB) Viewed 3457 times
Re: Discovery II Td5
Ekki akkúrat það sem ég hafði í huga, en ekkert ómögulegt samt. Hvað viltu borga í milli?
-
- Innlegg: 3133
- Skráður: 07.feb 2010, 13:19
- Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson
Re: Discovery II Td5
veit ekki bara eitthvað sem er sanngjarnt og eðlilegt og þú værir sáttur við. ég er með síma 8925426 kveðja guðni
Re: Discovery II Td5
Af gefnu tilefni vil ég benda á að ég er ekki að reyna að selja Roverinn af því að mig langi svo mikið í annan bíl. Þess vegna er tilgangslaust að bjóða mér bíla á svipuðu verði uppí hann. Ef mig vantaði ekki peningana, þá myndi ég aldrei vilja selja hann. Er tilbúinn að selja hann á 600.000,- í staðgreiðslu, sem er alltof lítið fyrir þetta farartæki.
Re: Discovery II Td5
Búið að tölvulesa og slökkva á "The three Amigos" þannig að ABS, TC og HDC er komið í lag. Er alveg til í að taka eitthvað bilaða bíla uppí + pening á milli, bara ekki ryðgaða bíla.
Re: Discovery II Td5
Bara að minna á þennan
-
- Innlegg: 3133
- Skráður: 07.feb 2010, 13:19
- Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson
Re: Discovery II Td5
ég er tilbúin með durango
Re: Discovery II Td5
Takk fyrir það Guðni, held enn í vonina að selja þennan eðalgrip í beinni sölu, en eins og staðan er núna þá ert þú efst á listanum yfir áhugaverð skipti. Verð í sambandi við þig fljótlega.
Re: Discovery II Td5
Þessi er enn til
Re: Discovery II Td5
Enn til
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur