elliofur wrote:svarti sambo wrote:Svo er 46" ódýrari fyrir 20" felgur. Held að það muni einhverjum 100 kalli á ganginum.
Þú verður fljótur að vinna þann gróða upp í felgukostnaði :)
Annars mjög flottar pælingar hér, eins og ég hef áður sagt :) Spennandi þráður.
Sæll Elli og takk fyrir það.
Það má vel vera að munurinn hverfi í felgur, en ég þarf hvort eða er að græja 16" felgur fyrir þetta, svo það er sennilega best að græja bara eina til að byrja með, og sjá svo til með restina. Fékk 16" felgur undan land rover og þarf að toga þær og teigja, til að þetta passi. Það er örugglega hægt að finna 20" felgur undan gömlum Case eða þess háttar, fyrir lítinn aur. Mér sýnist hvort eða er, að þessi gatadeiling sem ég er með 8x170. Vera vonlaust að fá, nema að maður detti í lukkupottinn.