Jæja sérfræðingar.
Hvað er að gerast í arb læsingu þegar dælan gengur eins og enginn sé morgundagurinn þegar komið er í kulda en allt virkar eins og það á að virka inn á verkstæðisgólfi?  ATH læsingin virkar fullkommlega inn á gólfi en ekki alltaf þegar komið er út og kuldinn herjar.
			
									
									Leki ARB
Re: Leki ARB
Nei ekki vatn í drifi og ég held ekki í loftlögnum.  Þetta er bara svona á afturdrifinu en sama dæla sér um bæði og framdrifið er alltaf í lagi þ.e.a.s. læsingin á því
			
									
										
						- 
				villi58
 
- Innlegg: 2137
- Skráður: 10.maí 2011, 10:51
- Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
- Bíltegund: Toyota Hilux
- Staðsetning: Ittoqqortoormiit
Re: Leki ARB
stone wrote:Jæja sérfræðingar.
Hvað er að gerast í arb læsingu þegar dælan gengur eins og enginn sé morgundagurinn þegar komið er í kulda en allt virkar eins og það á að virka inn á verkstæðisgólfi? ATH læsingin virkar fullkommlega inn á gólfi en ekki alltaf þegar komið er út og kuldinn herjar.
Ef loft lekur út um öndunina á hásingunni þá er það væntanlega þétting sem læsir drifinu eða O-hringir á lögninni inn í hásingunni. Skoðaðu fyrst hvort það komi loft út um öndunina á hásingarrörinu áður en þú kippir kögglinum úr.
Re: Leki ARB
er I sama veseni. loftið er að leka ut með segullokanum. grunar að eg þurfi að rífa í sundur og þrífa...
			
									
										
						Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur