dakota 38" ?

User avatar

Höfundur þráðar
Palli
Innlegg: 82
Skráður: 06.feb 2010, 20:18
Fullt nafn: Páll I. Pálsson
Staðsetning: Akranes city

dakota 38" ?

Postfrá Palli » 31.jan 2011, 19:43

sælir. hefur einhver vitneskju um það eða þekkir til hvort svona bíll sé að meika það á 38" með orginal drifbúnaði ss. dana 35 að framan með klöfum og chrysler 8.25 hásing að aftan?

svona bíll
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

kv.



User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: dakota 38" ?

Postfrá Stebbi » 31.jan 2011, 19:58

Sé ekki afhverju þetta ætti ekki að drífa, þetta er um 2 tonn og með 235 hestöfl og 400nm í tog.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

Höfundur þráðar
Palli
Innlegg: 82
Skráður: 06.feb 2010, 20:18
Fullt nafn: Páll I. Pálsson
Staðsetning: Akranes city

Re: dakota 38" ?

Postfrá Palli » 31.jan 2011, 20:03

já fullt af afli en er bara að pæla hvort hásingarnar séu góðar, þekki þetta ekki nógu vel..


juddi
Innlegg: 1247
Skráður: 08.mar 2010, 10:45
Fullt nafn: Dagbjartur L Herbertsson

Re: dakota 38" ?

Postfrá juddi » 31.jan 2011, 20:21

Þetta var til vandræða í eldri bílnum og síðan var gatadeilingin spes svo erfit var að fá felgur
Daggi S:6632123 snurfus@gmail.com


Þorri
Innlegg: 322
Skráður: 02.feb 2010, 12:55
Fullt nafn: Þorvarður Lárusson
Bíltegund: Musso cherokee ofl

Re: dakota 38" ?

Postfrá Þorri » 31.jan 2011, 20:25

Svipaður styrkur og í tacoma mig minnir að þeir séu á 8.25 að framan og 8 að aftan voru allavega með eitthvað pínulítið stærra framdrif en afturdrif. Þetta eru svipað stórir bílar svo þetta ætti alveg að geta gengið.
Kv. þorri


Lada
Innlegg: 171
Skráður: 31.jan 2010, 23:38
Fullt nafn: Ásgeir Bjarnason
Bíltegund: Subaru Outback
Staðsetning: Reykjavík

Re: dakota 38" ?

Postfrá Lada » 31.jan 2011, 22:00

Ég átti gamla boddýið af svona bíl og það var alger martröð að finna felgur sem pössuðu en það á að vera liðin tíð. Gatadeilingin er hætt að vera vandamál þar sem fleiri bílar eru farnir að koma með þessa deilingu ss. nýji Pathfinder-inn ofl. En svo er spurning hvort það sé einhver leið að finna felgur í 15" eða 16"

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: dakota 38" ?

Postfrá Tómas Þröstur » 01.feb 2011, 08:37

Eldri bílarnir í kringum 1992 voru með styrkleikavandamál í framhásingu. Öxlar brotnuðu út við hjól og mig minnir að dekkin hafi brotnað af í leiðinni. Allavega vandamál í átta sílendra bílunum með 38" Veit ekki hvort yngri bílar séu með sama framhjólabúnað.


antonmar
Innlegg: 4
Skráður: 25.jan 2011, 21:57
Fullt nafn: Anton Már Egilsson

Re: dakota 38" ?

Postfrá antonmar » 01.feb 2011, 21:41

Það er í þessum bíl 8" Chrysler framdrif ekki Dana og Chrysler 9.25 afturdrif. Það hefur allavega ekkert brotnað hjá mér hingað til.

kv.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur