Þá er þessi til sölu. Hér að neðan eru heilmiklar upplýsingar um jeppann en fyrir þá sem vilja vita og sjá meira vísa ég á tvö myndaalbúm á Facebook sem og breytingarþáð hér á jeppaspjallinu. Þar eru mjög margar myndir af smíði jeppans og heilmiklar upplýsingar. Bíllinn er virkilega heill og góður, bæði vélbúnaður og boddý.
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=5&t=7311&p=44327&hilit=cherokee+gormav%C3%A6%C3%B0ing#p44327
https://www.facebook.com/profile.php?id=100000570254985&sk=photos&collection_token=100000570254985%3A2305272732%3A69&set=a.102578683104473.5749.100000570254985&type=3
https://www.facebook.com/profile.php?id=100000570254985&sk=photos&collection_token=100000570254985%3A2305272732%3A69&set=a.303763762985963.92479.100000570254985&type=3






• Tegund: Jeep Cherokee XJ
• Árgerð: 1997
• Dekkjastærð: 38x15,5 r15 Dick Cepek Mud Country, mikið skorin og með mörgum nöglum. Dekkin eru nær óslitinn og gúmmíið er í 100% standi, ekki til ein einasta sprunga í þeim.
• Felgur: 13“ breiðar stálfelgur með alla kanta valsaða, deiling 5x4,5“ eða 5x114,3mm.
• Vél: 4.0 ltr. 6 cyl. línuvél. 2,5“ púst með opnum Cherry Bomb Vertex kút og túbu, útborað throttle body, kalt loftinntak með K&N síu og hægt að tengja loftinntak inn í bíl.
• Skipting: Aisin Warner AW4, 4 gíra, 2 stk. aukakælar + kælir í vatnskassa.
• Millikassi: NP231 með Advance Adapters setti til að styrkja hann, færa dragliðinn á skaptið og stytta hann. Hlutföll í háa = 1:1, lága = 2,72:1. Hraði í lága drifi = 94 km/klst
• Hásingar:
Aftan: 9“ Ford úr ´74 Bronco, stærri hjólalegurnar. Breikkuð svo í henni eru tveir lengri öxlar, 28 rillu. Bremsudiskar að framan úr Cherokee og Subaru bremsudælur.
Framan: Dana 30 reverse. Liðhúsi hm. breytt, stýrisendi hækkaður um 7 cm.
• Læsingar: Eaton True Track Torsen læsingar framan og aftan.
• Drifhlutföll: 1:4,56
• Lagnir og loftnet fyrir VHF
• Fjöðrun:
Aftan: Sérsmíðuð gormafjöðrun með Koni dempurum, fjöðrunarsvið er 29 cm og þar af eru um 17 cm saman. Stífuuppsetning er A-link, Bens fóðringar frá ET og aftaná A- stífunni er stýrisendi úr vörubíl.
Framan: Moog progressive gormar og Koni demparar. Fjöðrunarsvið 26 cm. Orginal stífur fyrir utan efri enda á þverstífu, þar er fóðring í stað spindilkúlu.
• Stýri er styrkt með stífu frá hálsi stýrismaskínunnar yfir í grind hægra megin og millibilsstöngin er styrkt.
• Prófílbeisli að framan og aftan með mjög öflugum festingum við bíl.
• Öndun á tank breytt til að auka lítrafjöldann sem hann tekur, er yfir 80 l.
• Vandað aukarafkerfi inni í bíl.
• AC dæla með smurkerfi og þrýstistilli, úttak í bensínloki.
• Annað: Stærsta breytingin á bílnum er afturhásingarfærslan og afturfjöðrunin. Hásingin fór 21 cm aftur og smíðuð slaglöng gormafjöðrun. Þessu fylgdi mikil smíðavinna þar sem m.a. „grindin“ undir bílnum var styrkt frá afturenda undir miðjan bíl ásamt því að færa tank aftar, endurforma hann og færa áfyllingarlokið ofar og aftar.
Ýmislegt annað:
• Fór í síðustu viku athugasemdalaust í gegnum bifreiðaskoðun.
• Bíllinn var óbreyttur þar til 2010 og er ekinn innan við 30.000 km eftir að breytingar hófust.
• Þyngd jeppans er rúmlega 1.700 kg tómur og er rúm 2 tonn. í helgarferð.
• Þyngdardreyfing í ferð er kringum 1.200 kg. fr. og 900 kg. aft. eða 57% fr. og 43% aft.
• Hjólhaf org. er 2,57 m. en afturhásingin fór 21 cm aftur og framhásingin 3 cm fram svo hjólhafið er 2,81 m.
• Akstur: 125.000 km.
Mjög góð smurbók.
Hef 2x frá því ég eignaðist hann úðað ryðvarnarvaxi í holrými: Sílsa, gluggapósta, topp, grindarbita, afturbretti o.fl.
Frá 2010 hefur mikið verið endurnýjað í jeppanum. Mikið til er það vegna breytinga en einnig viðgerðir og svo fyrirbyggjandi viðhald. Allir hlutir eru keyptir nýir, það sem snýr að vél er alltaf orginal frá Chrysler/Mopar:
• Nær allt í hásingum: Hlutföll og legur í drifum, afturlás, koni demparar fr. + aft., allar hjólalegur, spindilkúlur, krossar í framöxlum, millikassi styttur og styrktur, bæði drifsköft ný frá A-Ö, allir felguboltar + rær, millikassapúði o.fl.
• Diskar og klossar að framan og aftan, bremsudælur bm. framan.
• Stýrismaskína, stýrisdæla, stýrislagnir, stýrisendar.
• Vatnskassi, ssk. kælir, bensíndæla, tankmótstaða, bensínsía (með innbygðum þrýstijafnara), súrefnisskynjari, sveifarásskynjari, kveikjulok, kveikjuhamar, kertaþræðir, kerti, viftureim, rafgeymir, framrúða o.fl.
Slatti af nótum til sem geta fylgt bílnum.
Ásett verð = 1.390.000
Engin skipti, hvorki upp né niður.
Freyr: freyr86@hotmail.com, S: 661-2153