Er með þennan eðalvagn til sölu
Bíltegund: Volvo 960
Árgerð: 1995
Ekinn: 200.XXX
Skoðaður: 2011 (3)
Skipti: Já, BMW e36 eða álíka
Litur: Metallic grænn
Skipting: ssk með W, E og S stillingum
Vél: 2,5L - 170hö
Aukabúnaður: Beige leður - rafmagn í öllum rúðum og speglum - hitari í afturrúðu og hliðarspeglum - fjarstýrðar samlæsingar (fjarstýringin ónýt, ný fæst hjá Brimborg) - Barnabílstóll í miðjuaftursæti með uppdaganlegum hauspúða.
Ástand bílsins:
Lakk er ágætlega farið, mætti þó massa það, eitthvað komið af kústarispum frá fyrri eiganda. Ryð er í algjöru lágmarki, eina sem ég hef séð er undir einum drullusokkinum, en ætti ekki að vera neitt mál að laga það.
EGR er eitthvað að trufla vélina, hann eyðir aðeins meiru en æskilegt væri ég hef ekki gefið mér tíma í að kanna það frekar, en LAMBDA ljósið logar í mælaborðinu og Brimborg segir að það sé EGR, meira veit ég ekki. Vélin gengur þó mjög vel og engar gangtruflanir. ABS skynjari er farinn hægra megin að framan og kostar um 20 þús minnir mig í Brimborg. Persónulega finnst mér bílar allt í lagi án ABS bremsukerfis svo ég hef ekki verið að stressa mig á að laga það.
Það sem ég er búinn að gera síðan ég fékk hann:
- Ný tímareim/strekkjari/hjól (skipt í 185 þús km minnir mig)
- Nýjar fóðringar í ballansstöng og í neðri spyrnum að framan báðum megin.
- Nýjar ballansstangir báðum megin að framan.
- Ný upphengja fyrir hljóðkút
- Ný smurður (10.01.11)
...svo er ég örugglega að gleyma einhverjum smáatriðum.
Nýlega skipt um afturdempara og nýjir með hleðslujafnara settir í. Aðgerð upp á 320 þúsund að sögn fyrri eiganda.







Barnabílstóllinn :)


Ásett verð er 490 þúsund.
Hægt er að hafa samband við mig í PM eða á email: hafsteinn92@gmail.com
eða bara hringja, 845-7434 (Hafsteinn)