Því miður hefur skráning í ferðina ekki staðið undir væntingum. Skráðir jeppar eru á þessum tímapunkti ekki nema 8-9 svo það eru um 12 pláss laus enn (12 bílar, um 24 manns). Fyrst ekki hrúguðust inn skráningar eftir félagsfund 4×4 í kvöld höfum við ákveðið að opna ferðina. Hún er s.s. ekki lengur hugsuð eingöngu fyrir nýliða heldur er öllum velkomið að skrá sig og koma með, reynsluboltar jafnt sem nýliðar og allt þar á milli.
Varðandi skráningu í ferðina þá eru á blaði nokkrir 33 og 35″ bílar. Við leyfðum þeim að skrá sig með það í huga að ef vitað væri að færi yrði auðvelt mættu þeir koma með. Hinsvegar er ljóst miðað við úrkomu síðustu daga og þá næstu að færi getur verið erfitt. Því er ferðin einungis fyrir bíla stærri dekkjum en það.
Upplýsingar um ferðina: http://www.f4x4.is/2013/12/30/nylidaferd-f4x4/
Skráning í ferðina: http://www.f4x4.is/event/nylidaferd-f4x4/
Kveðja, Freyr og Styrmir
PS. Minni á kynningarkvöld á morgun, þriðjudag, kl. 20.00 hjá Arctic Trucks á kletthálsi. Farið létt í nokkur atriði fyrir ferðina ásamt jeppaskoðun þáttakenda. Mikilvægt að þáttakendur mæti á jeppanum sínum ef kostur er. Eins verður brottfarartími ræddur ásamt því að 15% aflsáttur verður í verslun.
Opin öllum - Nýliðaferð 4x4
Re: Opin öllum - Nýliðaferð 4x4
Minnum á þetta
Re: Opin öllum - Nýliðaferð 4x4
er þetta kynningarkvöld bara fyrir þá sem ætla í ferðina ?
Ívar Eyfjörð
781-9033
781-9033
Re: Opin öllum - Nýliðaferð 4x4
Við erum ekki svo ferkanntaðir, mönnum er frjálst að mæta.
Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur