Breytingaskoðun
Breytingaskoðun
Sælir félagar, hvað þarf ca. að gera fyrir breytingaskoðun á jeppa sem er búið að græja fyrir 36-38" dekk. td kostnaður?.Kv.
-
- Innlegg: 3133
- Skráður: 07.feb 2010, 13:19
- Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson
Re: Breytingaskoðun
Sæll vigtun og hjólastilling hraðamæla vottorð sem þeir gefa út sjálfir að ég held og svo skoðunargjaldið fer þetta ekki í 50.000 með öllu. kveðja guðni sem á þetta eftir allt saman
Re: Breytingaskoðun
Takk fyrir þetta Guðni,allt kostar þetta stóra aura, en er nokkuð vit annað en að gera þetta þó bíllinn sé orðinn gamall?.Kv.
-
- Innlegg: 578
- Skráður: 06.feb 2010, 10:41
- Fullt nafn: Jón Hrafn Karlsson
- Staðsetning: Keflavík south
Re: Breytingaskoðun
Það er ekkert hjá því komist svo þetta sé nú löglegt. Í hjólastillingunni þarftu að biðja um Hjólastöðuvottorð sem þú tekur með þér í breytingaskoðunina.
Re: Breytingaskoðun
Takk fyrir ,gott að afla sér uppl. hjá mönnum sem vita svona hluti það sparar mikinn tíma í þessu ferli.Kv.
Re: Breytingaskoðun
Þá kemur önnur spurning um hvar sé hagstætt að láta hjólastilla og fá hraðamælabreytingu og vottorð.? Kv.
-
- Innlegg: 1929
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Breytingaskoðun
Ég veit að Bílaverkstæði Högna í Hafnarfirði gefur út hjólastöðuvottorð á bíla á allt að 38" dekkjum
Hraðamælavottorð þarftu ekki ef mælirinn er nokkuð réttur, vikmörk eru að mig minnir 6km á 30 og 4km á 60, getur gáð með GPS, ef mælirinn er innan marka þá fer skoðunarmaðurinn og tékkar á því í akstri með hand gps tæki
Vigtunarvottorð þarftu og það þarf að gerast með fullan eldsneytistank og gildir seðillinn í 7 daga frá útgáfu hans ólíkt hjólastöðuvottorðinu
Svo þarftu að vera viss um að ökutækið sé með fulla aðalskoðun, eða tilbúið til aðalskoðunar áður en breytingarskoðun af nokkru tagi fer fram, breytingarskoðun getur farið fram samhliða aðalskoðun ef við á
Svo þarftu í tæki sem skráist sem "Torfæruökutæki" að hafa Slökkvitæki og sjúkrakassa
Í reglugerð um gerð og búnað ökutækja segir svo
Hraðamælavottorð þarftu ekki ef mælirinn er nokkuð réttur, vikmörk eru að mig minnir 6km á 30 og 4km á 60, getur gáð með GPS, ef mælirinn er innan marka þá fer skoðunarmaðurinn og tékkar á því í akstri með hand gps tæki
Vigtunarvottorð þarftu og það þarf að gerast með fullan eldsneytistank og gildir seðillinn í 7 daga frá útgáfu hans ólíkt hjólastöðuvottorðinu
Svo þarftu að vera viss um að ökutækið sé með fulla aðalskoðun, eða tilbúið til aðalskoðunar áður en breytingarskoðun af nokkru tagi fer fram, breytingarskoðun getur farið fram samhliða aðalskoðun ef við á
Svo þarftu í tæki sem skráist sem "Torfæruökutæki" að hafa Slökkvitæki og sjúkrakassa
Í reglugerð um gerð og búnað ökutækja segir svo
24.03 Slökkvitæki.
(1) Slökkvitæki í ökutæki skal vera af viðurkenndri gerð fyrir A, B og C brunaflokka og skal vera komið fyrir í festingum sem því er ætlað.
(2) Á slökkvitæki skulu vera leiðbeiningar á íslensku um notkun þess.
(3) Ef áskilið slökkvitæki er dufttæki skal það vera með innan við ársgamla vottun frá viðurkenndri slökkvitækjaþjónustu um að slökkvitækið sé í lagi. Ef áskilið slökkvitæki er halontæki skal þrýstingsmælir sýna eðlilegan þrýsting.
(4) Áskilið slökkvitæki skal vera merkt skráningarnúmeri bifreiðar.
24.04 Sjúkrakassi.
(1) Innihald áskilins sjúkrakassa skal vera skv. fyrirmælum landlæknis.
(2) Áskilinn sjúkrakassi skal vera merktur skráningarnúmeri bifreiðar.
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
-
- Innlegg: 250
- Skráður: 20.mar 2013, 08:43
- Fullt nafn: Elmar þór Benediktsson
- Bíltegund: ssangyong musso
Re: Breytingaskoðun
Ég fór í Hjólastillingar ehf Hamarshöfða 3 borgaði 11.500 kr með vottorði, en það gilti bara í 14 daga.
-
- Innlegg: 1929
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Breytingaskoðun
Já rétt er það, hjólastöðuvottorðið gildir 15 daga frá útgáfu
Almennt um útgáfu hjólastöðuvottorða
http://ww2.us.is/content/%C3%BAtg%C3%A1 ... tor%C3%B0a
sjá einnig vottorðið sjálft:
http://ww2.us.is/sw_documents/2691
Aðilar með leyfi til útgáfu vottorða
http://ww2.us.is/sw_documents/681
Almennt um útgáfu hjólastöðuvottorða
http://ww2.us.is/content/%C3%BAtg%C3%A1 ... tor%C3%B0a
sjá einnig vottorðið sjálft:
http://ww2.us.is/sw_documents/2691
Aðilar með leyfi til útgáfu vottorða
http://ww2.us.is/sw_documents/681
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is
Re: Breytingaskoðun
Já, þetta er talsvert mál að gera þetta, en ?....
-
- Innlegg: 2098
- Skráður: 31.jan 2010, 22:59
- Fullt nafn: Stefán Stefánsson
- Bíltegund: Eitthvað blátt
- Staðsetning: Hafnarfjörður
Re: Breytingaskoðun
Þetta er ekkert mál, hafðu bara bílinn nýlega skoðaðan eða skoðunarhæfan. Fáðu svo hjólastöðuvottorð og vigtunarseðil og farðu í breytingaskoðun. Ef að bíllinn er með aðalskoðun þá kostar þetta bara smá pening og fyrirhöfn.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
-
- Innlegg: 176
- Skráður: 17.des 2012, 23:29
- Fullt nafn: Þórjón P. Pétursson
- Bíltegund: Patrol Y61
Re: Breytingaskoðun
Er að fara í þennan pakka í næstu viku en hvar í fjandanum fer ég í þessa ágætu vigtun :) alveg "blanco" þar,,, ætla svo upp á Höfða að láta hjólastilla,, var mælt með þeim af Renniverkstæði Ægis og þá fer maður bara þangað LOL
-
- Innlegg: 2098
- Skráður: 31.jan 2010, 22:59
- Fullt nafn: Stefán Stefánsson
- Bíltegund: Eitthvað blátt
- Staðsetning: Hafnarfjörður
Re: Breytingaskoðun
Ferð á vigtina í Hafnarfirði eða vigtina við Vörubílastöðina á Sævarhöfðanum.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Re: Breytingaskoðun
Höfði er ódýrari en Hafnarfjörðurinn.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur