Mér áskotnaðist í dag 94 árg. af Nissan dobblara (Diesel) sem tók upp á því að velta sér á bakið! Það er ekkert stórmál að tjakka hann til svo hann haldi vind og vatni og ég set það ekkert fyrir mig þótt straumlínulögunin sé ögn afbökuð á boddíinu. Mig langar að skrúfa hann dálítið upp og koma undir hann 35", en helst 38". Ég hef aldrei stúderað þessa bíla að neinu viti og veit í raun ekkert hvort menn hafi yfir höfuð sett svona bíla á 38". Er ekki einhver snillingur þarna úti sem hefur reynslu af þessu og búinn að stúdera þetta enda á milli. Hvernig eru t.d. með drifin í þessu, er eitthvað hægt að nýta úr patrol, drif/hlutföll, fjöðrun og jafnvel framhásingu? Það væri frábært ef þið gætuð vísað mér á einhverjar slóðir og jafnvel myndir á netinu!
...PS. í öllum bænum ausið úr ykkur svo ég hunsi ekki konuna allveg með því að sökkva mér í leitarvélarnar
Nissan Doublecap breytingar...
Re: Nissan Doublecap breytingar...
Ef þú ætlar í 38" mundi ég fara strax í patrol rör
Daggi S:6632123 snurfus@gmail.com
Re: Nissan Doublecap breytingar...
Ég kíkti undir kvikyndið í dag og mér til furðu tók ég eftir því að drifið og millikassaúrtakið er bílstjóramegin og ef mig misminnir ekki þá er það hinum megin á pattanum sem útilokar það (nenni ekki að fara út það að velta hásingu), en þá opnar það möguleika fyrir allt Ameríska hásingadraslið.
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2493
- Skráður: 31.jan 2010, 17:44
- Fullt nafn: Hörður Bjarnason
- Bíltegund: 1988 Ford Econoline
Re: Nissan Doublecap breytingar...
Hmm, stendur Mosi ekki lengur undir þörfum eigandans?
Re: Nissan Doublecap breytingar...
Ekki mikið mál að snúa hásinguni en það er nú ekki nema fáar usa hásingar neð kúluna v/m
Daggi S:6632123 snurfus@gmail.com
Re: Nissan Doublecap breytingar...
Jú Mosi hefur sko staðið undir þörfum eigandans og gerir enn, ann hefur hlotið sérstakan heiðursess og er nú einungis notaður fyrir sértæk og krefjandi verkefni, auk þess að gleðja augu annara á sólríkum tillidögum hahaha
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Google [Bot] og 1 gestur