Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu uppfært 27.06.16

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

birgiring
Innlegg: 179
Skráður: 03.feb 2010, 14:31
Fullt nafn: Birgir Þór Ingólfsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá birgiring » 13.okt 2013, 22:23

Það vill svo til að ég kom á vígstöðvarnar í dag,en annaðhvort faldir þú þig eða varst fjarverandi.Ég get látið þig hafa lok á hanskahólfið á mjög sanngjörnu verði.Einnig mælaborðskappann.




Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 13.okt 2013, 23:32

Sæll Biggi takk fyrir það en settu inn síman minn hjá þér gsm 8925426 kveðja guðni


grimur
Innlegg: 891
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá grimur » 13.okt 2013, 23:52

Ég á örugglega 2 svona hraðamælis-unit, sting einu í vasann þegar ég fer næst norður sem verður mjög fljótlega.
Tannhjólin eru pottþétt í lagi.

PS. Það er ekkert nema heiður að stinga þó ekki sé nema smáhlut í púkkið á frægustu breytingasögu ársins :-)
kv
Grímur

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1397
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Járni » 14.okt 2013, 00:15

Já, ég sting upp á því að Guðni haldi úti lista af pörtum sem vantar. Það verður svo siðferðisleg skylda allra að tæma þann lista.

Jeppaspjallsjeppinn, allir út að ýta.
Land Rover Defender 130 38"


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 14.okt 2013, 08:00

Sælir strákar takk fyrir hugmyndina við klárum þetta einhvernvegin. Grímur hlakka til að sjá þig alltaf velkominn í skúrinn og auðvitað allir aðrir jeppaspjallverjar. kveðja Guðni


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 15.okt 2013, 14:44

Sælir félagar nú er manni létt kominn lausn á því að komast um borð í geymstöðina. Þriggja þrepa rúllustigi eða þannig. Tvívirkur loft tjakkur sem er tengdur inn á kút og rofi í hurðarfalsinu eins og ljósarofinn sem opnar segullokana þegar hurðin er opnuð og rúllustiginn kemur niður. Veit að Snilli fér létt með að smiða rúllustiga handa mér. Guð er í tröppunni Amma sagði Megas eða var það ekki. kveðja Tilli
Viðhengi
þetta verður sko staðalbúnaður í big foot . Samt aðeins endurbætt og verður smíðaur rúllustigi.JPG
þetta verður sko staðalbúnaður í big foot . Samt aðeins endurbætt og verður smíðaur rúllustigi.JPG (582.8 KiB) Viewed 10484 times
Guð er í tröppunum amma.JPG
Guð er í tröppunum amma.JPG (552.39 KiB) Viewed 10484 times
DSC04101.JPG
DSC04101.JPG (560.61 KiB) Viewed 10484 times

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá ellisnorra » 15.okt 2013, 18:35

Þetta er geðveikt flottur búnaður, þarf að græja svona í subbann hjá mér líka fyrir konuna og börnin :)
http://www.jeppafelgur.is/


nicko
Innlegg: 51
Skráður: 15.feb 2011, 23:19
Fullt nafn: Kristinn M Símonarson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá nicko » 15.okt 2013, 22:39

Sammála Árna járna. Gæti átt ehv. En hvernig verður með málningarvinnu á skeppnunni?


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 16.okt 2013, 08:04

Sælir félagar ég er búinn að grunna tvær hurðar og gera þær þokkalegar. Með málingar dæmið þá er í bígerð að blanda herlitinn góða sem ég er svo hrifinn af þennan dökk græna. Samanstendur af 1 l. af svörtu og 1 l. af krómgulu og dass af bláu og pensla svo geymstöðin í góðum hita það mun kosta um 20.000 með grunn. kveðja Snilli og Tilli


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 17.okt 2013, 13:15

Sælir fórum og náðum í boddýið og er það eins og nýtt eða þannig allavega mjög verðmætt og eru sirka 100 ryðgöt sjánleg og bara gaman framundan. Þannig að það verður nóg að gera við að skera úr og sjóða í og trebba og líma og mun það verða stór varasamt að versla þennan bíl þegar þar að kemur. Set þetta inn til öryggis svo ekki verði minnst á leynda galla þegar fram líða stundir og maður verður síður stimplaður svikari ef þetta verkefni okkar félaga verður selt einhvern tíman. kveðja Guðni
Viðhengi
DSC04105.JPG
Kominn á lyftuna algjör gullmoli eða kanski ryðmoli
DSC04105.JPG (554.52 KiB) Viewed 10211 times
eina sem er nokkuð heilt olíutankurinn.JPG
eina sem er nokkuð heilt olíutankurinn.JPG (580.37 KiB) Viewed 10211 times
flott ryðgöt.JPG
flott ryðgöt.JPG (566.91 KiB) Viewed 10211 times
hjólskál.JPG
hjólskál.JPG (596.87 KiB) Viewed 10211 times
Humm slatti ryðgað.JPG
Humm slatti ryðgað.JPG (596.97 KiB) Viewed 10211 times
ryð hér og ryð þar og ryð alstaðar best að henda handsprengju í þetta.JPG
ryð hér og ryð þar og ryð alstaðar best að henda handsprengju í þetta.JPG (532.21 KiB) Viewed 10211 times


Bjarni Ben
Innlegg: 82
Skráður: 23.nóv 2011, 10:12
Fullt nafn: Bjarni Benedikt Gunnarsson
Bíltegund: Willys

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Bjarni Ben » 17.okt 2013, 20:55

Þið bara græjið þetta almennilega svo aldrei þurfi væna ykkur um eitt eða neitt :) Miðað við vinnubrögðin á því sem maður hefur séð hingað til þá getið þið ekkert sætt ykkur við neitt minna en að gera þetta 100% :) Og ef hann verður of þungur fyrir skoðun, þá er ekkert annað að gera en að lyfta bílnum af hásingunum og selja þær og þá áttu þennan fína nýuppgerða landcruiser sem þarf bara að smíða minni hásingar undir og málið dautt:)
Bjarni Benedikt
Willysdellukall


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 17.okt 2013, 21:14

Sælir félagar. Bjarni þakka peppið og góð hugmynd set næst Volvo Valphásingar undir ef þessar verða of þungar . Áfram með verkið og ekkert væl.Ég er kominn á fulla ferð í ryðbætingum og kem með fleiri myndir á morgun. Ég fann milligír á hraðamælabarkanum og nú verður hægt að skipta um hlutföll en hann er með gamlan ökumæli á hinum endanum. Notum okkur það. Ryð kveðjur. kveðja Tilli og Snilli
Síðast breytt af sukkaturbo þann 17.okt 2013, 21:41, breytt 2 sinnum samtals.


Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Aparass » 17.okt 2013, 21:17

Hey!
Og þarna áttu þetta fína hraðamælisdrif sem er hægt að nota til að breyta hraðamælinum.
Sparar stórfé á því að eiga þetta.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 18.okt 2013, 19:31

Sælir félagar lítið gert í dag lenti í að elda mat fyrir vélaverkstæðið við hliðina og var grillaður skrokkur í heilu.En ég náði að taka olíutankan undan og var ég hissa er ég sá að allt var heilt og fínt þar undir en hann er festur upp í gólfið og var tankurinn sjálfur heill og þrifalegur en búið að breita honum. Fór í að berja úr gólfinu fram í tjöru motturnar sem eru þar orginal og skera úr allt ryð í gólfunum bílstjóramegin og farþegamegin og tókst það bara vel og það sem þarf að skipta um er vel innan við fermetir. Tók allar hurðalamir af og alla þétti lista svo hægt verði að grunna og mála síðar. kveðja Tilli
Viðhengi
búið að skera hægramegin og taka tjörumottuna sem er orginal.JPG
búið að skera hægramegin og taka tjörumottuna sem er orginal.JPG (577.63 KiB) Viewed 10019 times


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 19.okt 2013, 17:15

Sælir félagar byrjaði 06.00 í morgun að ryðhreins og skera og fara í gegnum rafmagn og vann til 17.00 gekk það hægt en örugglega. Fékk sendingu frá Grími jeppavini og var það hraðamæladrif í millikassan sem leysir af rafdrifið sem er orginal og kann ég honum mikklar þakkir. Andrés læknir færði mér þetta. Hann reiknaði út svona af gammni hraðan á geimstöðinni miðað við snúning vélarinnar og það að hann færi í overdrive og hefði afl til að snúa hjólunum og kæmist yfirleitt af stað. Hérna er smá tafla um það. kveðja tilli
Viðhengi
DSC04117.JPG
DSC04117.JPG (587.16 KiB) Viewed 9927 times
DSC04116.JPG
DSC04116.JPG (466.1 KiB) Viewed 9927 times


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 19.okt 2013, 22:37

Sælir félagar nú er ég að leita eftir sjálfskipti handfanginu í 60 Cruserinn og öllu sem því fylgir til kaups og svo vantar mig úr Patrol handbremsubarkan og handfangið svo ég geti klárað smíðina á handbremsunni. væri gott að fá mail ef einhver á þessa hluti gudnisv@simnet.is eða hringja í gsm 8925426 kveðja tilli

User avatar

Doddi23
Innlegg: 194
Skráður: 14.jún 2012, 21:59
Fullt nafn: Þórður Már Björnsson
Bíltegund: Jepp Cherokee 91 4,0
Staðsetning: Rvk

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Doddi23 » 20.okt 2013, 10:15

Þessi gæti átt það sem þig vantar úr Patrol

viewtopic.php?f=31&t=18062

Kv.
Doddi


birgiring
Innlegg: 179
Skráður: 03.feb 2010, 14:31
Fullt nafn: Birgir Þór Ingólfsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá birgiring » 20.okt 2013, 10:50

Ég á sjálfskipti handfang með öllu ( þar með talin skipting) og þú getur fengið að hirða hvað af því sem þú vilt,nema ég vildi halda millikassanum.
Kv. Birgir


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 20.okt 2013, 14:53

Sælir félagar þessi síða bregst ekki ferkar en venjulega og takk fyrir linkinn Doddi ég hringdi í Reynir og tók hann mér vel og hann átti þetta til og ekki málið sagði hann að láta mig hafa þetta. Biggi mikið takk ræðum verð og afhendingu í síma. Biggi á eftir að rífa skiptinguna úr?? kveðja Guðni


Jóhann
Innlegg: 141
Skráður: 01.feb 2010, 05:01
Fullt nafn: Jóhann Þröstur Þórisson
Staðsetning: Grindavík

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Jóhann » 20.okt 2013, 15:19

Er ekki verið í skúrnum ídag? Var að kíkja við en engin ásvæðinu. Kv
Kv Jóhann Þ


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 20.okt 2013, 16:15

Sæll var frá 08.00 til 14.30 fór þá heim því konan var að baka kleinur og ég hroðalega svangur. Verð mættur 09.00 í fyrramálið. kveðja Guðni


Jóhann
Innlegg: 141
Skráður: 01.feb 2010, 05:01
Fullt nafn: Jóhann Þröstur Þórisson
Staðsetning: Grindavík

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Jóhann » 20.okt 2013, 16:41

Já hef þá rétt mist af þér erum að landa hér og förum út á eftir kíki kanski næst ef við komum aftur.
kv
Kv Jóhann Þ


birgiring
Innlegg: 179
Skráður: 03.feb 2010, 14:31
Fullt nafn: Birgir Þór Ingólfsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá birgiring » 20.okt 2013, 17:07

Mótorinn er farinn úr svo það ætti ekki að vera lengi gert að ná skiptingunni.
Kv. Birgir s:8948242


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 21.okt 2013, 13:20

Sælir félagar reif vinstri aftur gluggan úr og var þar allt ónýtt af ryði og mikil vinna að byggja það svæði upp bæði að innan og utan. Blandaði tvo liti hergrænt og grátt og sett til prufu.
Viðhengi
herlitur farinn að þorna.JPG
herlitur farinn að þorna.JPG (588.94 KiB) Viewed 9600 times
afturgluggi slæmur.JPG
afturgluggi slæmur.JPG (605.42 KiB) Viewed 9600 times
fyrsta bótin.JPG
fyrsta bótin.JPG (535.46 KiB) Viewed 9600 times
ekki fallegt.JPG
ekki fallegt.JPG (551.91 KiB) Viewed 9635 times
búið að skera bílstjóra gólf.JPG
búið að skera bílstjóra gólf.JPG (615.41 KiB) Viewed 9635 times


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 22.okt 2013, 17:30

Sælir félagar gengur hægt en öruggleg Snilli er að smíða festingar fyrir stýristjakkinn og ég er að drullumalla í ryðbætingum.kveðja Tilli
Viðhengi
DSC04133.JPG
Vélin orðin gangfær og eins og ný
DSC04133.JPG (619.21 KiB) Viewed 9514 times


Jóhann
Innlegg: 141
Skráður: 01.feb 2010, 05:01
Fullt nafn: Jóhann Þröstur Þórisson
Staðsetning: Grindavík

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Jóhann » 23.okt 2013, 14:48

Kíkti við hjá þessum snillingum áðan og mikið er gaman að koma í heimsókn hjá svona mönnum sem láta hlutina gerast :)
Kv Jóhann Þ


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 23.okt 2013, 18:23

Sælir alltaf gaman að fá heimsókn í skúrinn og takk fyrir að líta við Jóhann.En þá er stýristjakkurinn kominn á sinn stað í nýjum festingum.
Viðhengi
Svona voru festingarnar a stýristjakknum áður og bara virkaði held ég.JPG
Svona voru festingarnar a stýristjakknum áður og bara virkaði held ég.JPG (597.27 KiB) Viewed 9375 times
stýristjakkurinn kominn á sinn stað.JPG
stýristjakkurinn kominn á sinn stað.JPG (538.52 KiB) Viewed 9375 times
festing fyrir stýristjakk.JPG
festing fyrir stýristjakk.JPG (531.32 KiB) Viewed 9375 times


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 23.okt 2013, 19:30

Sælir að gefnu tilefni þá var ekki notaður trebbi í ryðbætinguna í Cruser gamal heldur 1 mm stál og var það punktað og soðið eftir kúnstarinnar reglum síðan grunnað og sett límkítti yfir suður ofan og neðan og bitar lagaðir undir gólfi og nýtt ytrabyrði á sílsana en innrabyrðið var möjg heillt og meira að segja litur á því. Einnig var notað Russtopp innan í hurðar og í rifur og samskeyti mjög þunnt efni sem smígur vel.Líka var soðið yfir og undir og borað í gegnum plöturnar og soðið í gatið það var ábending frá Lecter og það þræl virkar. Á morgun verður settur einhverskonar Tectil í allan undirvagninn og boddýið híft á á sunnudaginn.Eyði ekki meiri texta og myndum af þessum ryðbætingum frekar leiðinlegt efni og leiðinleg vinna. kveðja Tilli og Snilli


gráni
Innlegg: 143
Skráður: 14.okt 2013, 22:36
Fullt nafn: Sigurður Vignir Ragnarsson
Bíltegund: ford

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá gráni » 23.okt 2013, 23:56

Tilli það væri gaman að fá nýjar fréttir af verkefninu ykkar Snilla.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 24.okt 2013, 08:24

Sæll Gráni það gengur hægt í ryðbætingum enda mikið verk og ég ekki sá klárasti í því að ryðbæta, þannig að það er lítið nýtt að frétta, svo afsakið það en vonandi stendur það til bóta. En það er unnið samanlagt hjá okkur félögunum um 10 tímar á dag sjö daga vikunnar í þessu dóti öllu. Vonandi verður einhver hreifing á hlutum í næstu viku og meira um myndir. kveðja Snilli og Tilli


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 24.okt 2013, 16:56

Sælir félagar fór í það í dag að sprauta Tectil neðan í botninn á bílnum og inn í alla bita. Farnar voru tvær umferðir. Síðan var toppurinn málaður og hvalbakurinn. Dröslaði grindinn undir boddýið og fer í það á morgun að stilla af og dúlla eitthvað. Bíllinn verður í þessari stöðu fram á sunnudag. Þurfum að smíða pústið og klára bremsurör í grind og niður á hásingar og eitthva fleira smálegt. kveðja Tilli
Viðhengi
verið að stilla af.JPG
verið að stilla af.JPG (530.26 KiB) Viewed 9172 times
grindin á leiðinni undir búið  að mála toppinn og hvalbakinn.JPG
grindin á leiðinni undir búið að mála toppinn og hvalbakinn.JPG (511.45 KiB) Viewed 9172 times
búið að ryðverja í botninn og alla bita og skúffur 2 umferðir.JPG
búið að ryðverja í botninn og alla bita og skúffur 2 umferðir.JPG (594.17 KiB) Viewed 9172 times


gráni
Innlegg: 143
Skráður: 14.okt 2013, 22:36
Fullt nafn: Sigurður Vignir Ragnarsson
Bíltegund: ford

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá gráni » 24.okt 2013, 21:56

Tilli þetta er alveg frábært hjá ykkur félögum þér og Snilla, það er unaður að fylgjast með þessum þræði ykkar, er að byrja aftur í jeppunum eftir langt hlé, er að leita mér að góðum bíl, alvöru bíl svo ef þú hefur einhverjar hugmyndir þá væri gaman að heyra í þér. Ég og Unnar bróðir við erum hér í Keflavík við stefnum að því að heimsækja ykkur félagana fljótlega(kæmi ekki á óvart að það væri þá gaman að grilla eitt stk læri! Kveðja Gráni.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 24.okt 2013, 23:35

Sæll Siggi og takk fyrir það við setjum lambabóg í ofninn þegar þið komið. Það verður ekki vandamál með að finnan eitthvað sniðugt í bílamálum. Skilaðu kveðju til Unnars.


gráni
Innlegg: 143
Skráður: 14.okt 2013, 22:36
Fullt nafn: Sigurður Vignir Ragnarsson
Bíltegund: ford

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá gráni » 25.okt 2013, 15:57

Tilli sæll , ég er búin að vera að vinna í mínum málum siðan ég heyrði í þér síðast, er búin að finna bíl er að hugsa um að kaupa Toyotu Tacoma 2006 sem var í eigu björgunarsveitarinnar á V'ík, er á 38 tommu , ætla að setja hann á 41 Irok sem eg fæ hjá Unna bró, þetta er flottur bíll og lítið ekinn, ætla að setja í hann ló gír. Eina sem hrellir mig er það að hann er sjálfskiptur, vil hafa bíla beinskipta, sjálfskipting er fyrir bíla til að fara á út í búð. Var að spá í það hvort þú gætir sett fyrir mig gaseldavél í hann þannig að ég og Unni bró getur eldað okkur læri í ferðunum. Við erum eins og sumir! dáldið mikið fyrir góðan mat!, erum ekkert af þessari diet kynslóð. ÞEgar ég verð búin að ganga frá málunum með bílinn þá er aldrei að vita nema við rennum á Sigló og kíkjum á ykkur Snilla. Kveðja Gráni.


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 25.okt 2013, 17:10

Sælir félagar ekki málið Siggi eldavél og örbylgju ofn til að þýða lærið ef það skildi vera Þýskt. Þá er boddýið komið á og framundan er mikil vinna í hinu og þessu eins gengur. Rafmagn loftkerfi talstöðvar og aðalljós. Nú vantar mig aðal ljósker með háum og lágum geysla til að setja í stuðarann. Eitthvað mun draga úr myndum og texta frá mér því lítið gengur frá manni í svona fokki og hætta á því að maður staglist sífellt á því sama. En mun gera mitt besta til að halda uppi þræðinum. kveðja Snilli og Tilli
Viðhengi
húsið komið á nokkuð sáttir félagarnir.JPG
húsið komið á nokkuð sáttir félagarnir.JPG (554.7 KiB) Viewed 8976 times
DSC04159.JPG
DSC04159.JPG (592.27 KiB) Viewed 8976 times
mikil vinna framundan.JPG
mikil vinna framundan.JPG (541.91 KiB) Viewed 8976 times
verið að stilla af.JPG
verið að stilla af.JPG (530.26 KiB) Viewed 8976 times
verið að klára pústið 2,5 rústfrítt.JPG
verið að klára pústið 2,5 rústfrítt.JPG (585.41 KiB) Viewed 8976 times
Startarinn eins og nýr og komið jarðsamabnd í grindina var slitið.JPG
Startarinn eins og nýr og komið jarðsamabnd í grindina var slitið.JPG (569.39 KiB) Viewed 8976 times

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá ellisnorra » 25.okt 2013, 20:23

Ógeðslega gaman að fylgjast með þessu, þetta er svo æðislega öðruvísi :)
http://www.jeppafelgur.is/


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 26.okt 2013, 07:19

Sællir félagar og takk Elli maður. Byrja að tengja vélina í dag og svo förum við Snilli að hanna framenda á þetta og kanta næstu vikurnar.


Bjarni Ben
Innlegg: 82
Skráður: 23.nóv 2011, 10:12
Fullt nafn: Bjarni Benedikt Gunnarsson
Bíltegund: Willys

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Bjarni Ben » 26.okt 2013, 11:22

Þetta gerist svo hratt hjá ykkur að maður er farinn að kíkja tvisvar á dag eftir myndum! Hrikalega sem þetta lítur allt vel út.
Bjarni Benedikt
Willysdellukall


Höfundur þráðar
sukkaturbo
Innlegg: 3133
Skráður: 07.feb 2010, 13:19
Fullt nafn: Guðni Þór Sveinsson

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá sukkaturbo » 26.okt 2013, 12:56

Sælir félagar nú vantar mig smá aðstoð við rafkerfið. Mig langar rosalega að hafa rafkerfið svo næst sem orginal þetta er 60 Cruser 86 turbo disel . Á einhver teikningar eða myndir af þessum lúmum og vírum sem eru vélinni nauðsynlegar. kveðja Guðni


Valdi B
Innlegg: 657
Skráður: 18.feb 2011, 13:16
Fullt nafn: þorvaldur björn matthíasson
Staðsetning: Suðurland

Re: Snilli og Tilli skoða 5,4" breitingu

Postfrá Valdi B » 26.okt 2013, 13:31

gráni wrote:Tilli sæll , ég er búin að vera að vinna í mínum málum siðan ég heyrði í þér síðast, er búin að finna bíl er að hugsa um að kaupa Toyotu Tacoma 2006 sem var í eigu björgunarsveitarinnar á V'ík, er á 38 tommu , ætla að setja hann á 41 Irok sem eg fæ hjá Unna bró, þetta er flottur bíll og lítið ekinn, ætla að setja í hann ló gír. Eina sem hrellir mig er það að hann er sjálfskiptur, vil hafa bíla beinskipta, sjálfskipting er fyrir bíla til að fara á út í búð. Var að spá í það hvort þú gætir sett fyrir mig gaseldavél í hann þannig að ég og Unni bró getur eldað okkur læri í ferðunum. Við erum eins og sumir! dáldið mikið fyrir góðan mat!, erum ekkert af þessari diet kynslóð. ÞEgar ég verð búin að ganga frá málunum með bílinn þá er aldrei að vita nema við rennum á Sigló og kíkjum á ykkur Snilla. Kveðja Gráni.


sæll gráni, þessi tacoma er snilldar bíll ! hef keyrt hann aðeins og væri alveg til í að eiga hann sjálfur, en hann þarfnast þess að það verði sett í hann 9.5" drif að aftan , því þessi bíll er búinn að fara með mörg 8" drif , ég er í björgunarsveitinni í vík og sé mikið eftir þessum bíl úr henni :)

kv.valdi
Ford Bronco 1974 (Z-444)
Ford Bronco 1968 33"(L-1029)
Toyota Hilux dc 38" 2000
Toyota LandCruizer 90 31" 2000


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur