Síða 1 af 1

Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 05.maí 2013, 13:01
frá Hfsd037
Sælir piltar, hvar er best að fá efni eða tilbúna stífuvasa?
Mig vantar tvo stóra 4link vasa að aftan + skástífu vasann
Einnig, 2 stífu vasa að framan + skástífu vasann.

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 05.maí 2013, 13:04
frá juddi
Held að Héðinn í áhaldaleiguni á stórhöfða sé að skera þetta út

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 05.maí 2013, 22:17
frá Hfsd037
Takk, ég checka á því

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 05.maí 2013, 22:43
frá Brjotur
Kaupa plötu i efnissölu .G.A t.d og skera þetta ut með slipirokk :)

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 05.maí 2013, 22:56
frá Hfsd037
Brjotur wrote:Kaupa plötu i efnissölu .G.A t.d og skera þetta ut með slipirokk :)



Já, það er reyndar alveg spurning líka
það fara samt ansi margar skífur í það hehe :)
Vitið þið hvort þeir skeri plöturnar með laser eða vatnsskurði?

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 06.maí 2013, 14:51
frá Þorri
Ég held að Héðinn skeri þetta með plasma. Ath þetta er ekki vélsmiðjan héðinn heldur eigandinn að áhaldaleigunni á stórhöfðanum. Ég hefði getað skorið þetta með vatni en vélin hjá mér er bara svo yfirbókuð á næstunni að ég veit bara ekki hvenær ég kæmist í þetta.

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 06.maí 2013, 21:03
frá Arsaell
Ég las í öðrum þræði hérna á spjallinu: ( viewtopic.php?t=1602 ) að vélsmiðjan Héðin seldi einnig einhver 4-link kit, veit hinsvegar ekki hvort að það sé hægt að fá þetta enþá hjá þeim.

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 06.maí 2013, 21:46
frá Hfsd037
Þorri wrote:Ég held að Héðinn skeri þetta með plasma. Ath þetta er ekki vélsmiðjan héðinn heldur eigandinn að áhaldaleigunni á stórhöfðanum. Ég hefði getað skorið þetta með vatni en vélin hjá mér er bara svo yfirbókuð á næstunni að ég veit bara ekki hvenær ég kæmist í þetta.


Nei ég áttaði mig á því, það er samt mjög auðvelt að rugla þeim tveimur saman hehe, hvenær er vélin laus næst heldurðu?

Arsaell wrote:Ég las í öðrum þræði hérna á spjallinu: ( viewtopic.php?t=1602 ) að vélsmiðjan Héðin seldi einnig einhver 4-link kit, veit hinsvegar ekki hvort að það sé hægt að fá þetta enþá hjá þeim.


Takk fyrir upplýsingarnar, ég þarf að vísu ekki heilt 4link sett þar sem ég er með 4link nú þegar undir hjá mér, hásingin er 4linkuð þannig að ég smelli henni bara undan gömlu grindina og læt hana beint yfir á nýju grindina.

Spurning hvort maður búi ekki bara til mát af 4link settinu sem er undir grindinni núna og láti skera eftir því, það er mjög flott 4link setup undir jeppanum núna, en þarf þó að vera aðeins öðruvísi þar sem ég ætla að færa hásinguna töluvert aftar þannig að stífuvasinn kemur til með að vera á boganum.

Hvort er sniðugra að vera með stífuvasann á eða í boganum? halda staðsetningunni á stífuvasanum sem hann er núna og fá sér lengri stífur í staðinn?

Stífuvasinn er á nákvæmlega sama stað og á þessari mynd
Image

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 06.maí 2013, 23:36
frá Þorri
ég myndi lengja stýfurnar það býður uppá lengri fjöðrun og hreyfingin á fóðringunum er minni.

Re: Hvar fær maður tilbúna eða efni í stífuvasa?

Posted: 07.maí 2013, 08:29
frá Wrangler Ultimate
Þú getur líka farið í Málmtækni upp á höfða , fengið enið og að nota klippurnar ... þær klippa allt að 8mm járni... fljótlegt og einfalt.

kv
Gunnar
Málmtækni :)