Síða 1 af 1
Jeppi ársins
Posted: 11.jan 2018, 12:16
frá jongud
Hvað segja síðustjórnendur um að hafa kosningu um jeppa ársins, nú þegar áramót eru nýliðin?
Re: Jeppi ársins
Posted: 11.jan 2018, 18:35
frá Járni
Ójá, til í það. Hvernig eigum við að hafa fyrirkomulagið?
Re: Jeppi ársins
Posted: 12.jan 2018, 08:24
frá jongud
Járni wrote:Ójá, til í það. Hvernig eigum við að hafa fyrirkomulagið?
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?t=8093&start=20Þessi þráður virðist hafa heppnast vel, spurning um að hafa tilnefningar í eina viku og kosningu eftir það?
Ég tilnefni þennan;
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=34371
Re: Jeppi ársins
Posted: 12.jan 2018, 09:21
frá Járni
Já, flott, tökum við tilnefningum til og með 19. jan. Læsi svo þessum þræði og skelli svo í kosningu!
Við reynum að redda verðlaunapakka!
Re: Jeppi ársins
Posted: 12.jan 2018, 20:10
frá elli rmr
Re: Jeppi ársins
Posted: 13.jan 2018, 12:40
frá Sævar Örn
Ég er hrærður við tilnefninguna, og þakka mikið vel. Þó vil ég leggja inn punkt, mína skoðun.
Jeppi ársins er vítt hugtak. Það er margt að gerast í jeppaheiminum á íslandi sem ekki ratar inn á þessa síðu, ýmislegt sem ég veit um sem aðrir vita ekki um, og svo öfugt. Því vil ég tilnefna 8 hjóla ofurtrukkinn, gula monsterið úr mosfellsbæ, þvílíka smíðin á þeim bíl, agndofa!
Ég geri kannski skemmtilegan þráð til að lesa og skoða myndir af, en þegar öllu er á botninn hvolft er ég bara með gamlan Hilux sem er nærri alveg eins og hann var þegar honum var breytt árið 2000.
Legg ég því til að ef atkvæðagreiðsla fer í gang, verði gerð krafa um að menn gefi mynd/ir og amk. grunn upplýsingar um tækið sem um ræðir, auk ástæðu þess að þeir velji tiltekið tæki sem "jeppa ársins."
kv, sævar
Re: Jeppi ársins
Posted: 13.jan 2018, 12:48
frá Járni
Skemmtilegast er auðvitað að það sé þráður á spjallinu um verkefnið, það er nú tilgangurinn með þessu öllu saman.
En við skulum ekki láta það stoppa okkur, teljum til það sem gott er, hvort sem það er nýjasta og svalasta smíðin eða vel uppfærðir þræðir sem skilja eftir fullt af myndum og upplýsingum.
Ég bætti við hlekk á innleggið hans Ella hérna fyrir ofan, en er til smíða þráður fyrir gula 8x8?
Re: Jeppi ársins
Posted: 13.jan 2018, 12:57
frá Sævar Örn
til smá upprifjunar
viewtopic.php?f=2&t=21437ég fann mynd af gula, hef séð myndir birtar af honum á facebook þannig þar gætu leynst frekari upplýsingar, undirvagninn er MAN trukkur
![22789198_10156852814512907_6785011389514576529_n[1].jpg](./download/file.php?id=28053&sid=666850aed1d4978ca5822dc97b82200d)
- 22789198_10156852814512907_6785011389514576529_n[1].jpg (151.5 KiB) Viewed 27081 time
Re: Jeppi ársins
Posted: 13.jan 2018, 13:03
frá Járni
Gott mál, þá eru komnar þrjár tilnefningar!
Re: Jeppi ársins
Posted: 17.jan 2018, 18:51
frá Járni
Sælir, við skulum hafa lengri tíma til tilnefninga, höfum það til 26. janúar, svo kosning eftir það.
Endilega tilnefnið líka leyniverkefnin, stelist bara til að taka myndir ef þær eru ekki til :)
Við erum að vinna í því að redda vinningum!
Sjálfur tilnefni ég Ívar Markússon, hann er svo duglegur að halda úti project þræðinum:
viewtopic.php?f=9&t=34316
Re: Jeppi ársins
Posted: 18.jan 2018, 05:07
frá grimur
Video af gulu langferðabifreiðinni:
https://youtu.be/cmjWggSqLkYÉg fylgdist svolítið með þessu verkefni hjá Guðna og félögum af hliðarlínunni. Fyrir þá sem ekki vita eiga þeir mikið í því að jeppabreytingar voru ekki bannaðar með öllu á sínum tíma þar sem þeir fóru í að semja við Umferðareftirlitið um breytingareglugerð. Ef það framtak hefði ekki komið til værum við ekki á þessum stað í dag.
Held að gula tröllið sé ágætlega að þessu komið, þar sem þetta er virkilega framsækið verkefni og sýnir að dellan deyr aldrei og heldur áfram að þróast, jafnvel hjá "gömlu skörfunum".
Kv
Grímur
Re: Jeppi ársins
Posted: 18.jan 2018, 08:08
frá jongud
Ef ég má tilnefna fleiri en einn þá vil ég endilega bæta við jeppanum hjá Val Smára.
Þó að hann sé ekki nærri því tilbúinn.
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=34037
Re: Jeppi ársins
Posted: 18.jan 2018, 08:15
frá Járni
Já já, því ekki það, bæði skemmtileg verkefni þó þau séu mjög ólík!
Re: Jeppi ársins
Posted: 29.jan 2018, 09:56
frá Járni
Jæja, síðasti séns að bæta við!
Stór, lítil, bensín, dísel, rafmagns og leyniverkefni öll velkomin!
Re: Jeppi ársins
Posted: 29.jan 2018, 17:41
frá íbbi
ég var nú að spá í að taka húmorinn á þetta og tilnefna minn eigin bíl. mér til hvatningar
en ég ætla tilkynna sævar og hiluxinn,
persónulega finnst mér ekki málið að tilnefna jeppa sem eru ekki tengdir spjallinu, en það eru þræðir eins og þráðurinn hans sævars sem halda spjallinu á lífi, upllýsandi og skemmtilegu fyrir aðra smurapa að fylgjast með
Re: Jeppi ársins
Posted: 29.jan 2018, 19:32
frá Járni
íbbi wrote:ég var nú að spá í að taka húmorinn á þetta og tilnefna minn eigin bíl. mér til hvatningar
en ég ætla tilkynna sævar og hiluxinn,
persónulega finnst mér ekki málið að tilnefna jeppa sem eru ekki tengdir spjallinu, en það eru þræðir eins og þráðurinn hans sævars sem halda spjallinu á lífi, upllýsandi og skemmtilegu fyrir aðra smurapa að fylgjast með
Bæði þú og Sævar eruð nú þegar komnir með tilnefningu :)
Re: Jeppi ársins
Posted: 29.jan 2018, 19:37
frá Robert
Ég er sammála það er Ívar og Sævar sem halda þessu alveg gangandi þessi feiti á Sigló hefur líka verið rosalega duglegur.
Finnst ekki hægt að veita velja einhvern sem er ekki á spjallinu.
þá er nú líka sjúkur Jeep XJ með Audi vélinni.
(Mér finnst Guðni æðislegur)
Re: Jeppi ársins
Posted: 29.jan 2018, 22:29
frá íbbi
Járni wrote:íbbi wrote:ég var nú að spá í að taka húmorinn á þetta og tilnefna minn eigin bíl. mér til hvatningar
en ég ætla tilkynna sævar og hiluxinn,
persónulega finnst mér ekki málið að tilnefna jeppa sem eru ekki tengdir spjallinu, en það eru þræðir eins og þráðurinn hans sævars sem halda spjallinu á lífi, upllýsandi og skemmtilegu fyrir aðra smurapa að fylgjast með
Bæði þú og Sævar eruð nú þegar komnir með tilnefningu :)
heyrðu nei andsk.. þetta fór framhjá mér, ég þakka :D
Re: Jeppi ársins
Posted: 31.jan 2018, 20:47
frá elli rmr
Robert wrote:þá er nú líka sjúkur Jeep XJ með Audi vélinni.
(Mér finnst Guðni æðislegur)
Misti af þessum hvar er sà þràður?
Re: Jeppi ársins
Posted: 31.jan 2018, 21:05
frá Járni
elli rmr wrote:Robert wrote:þá er nú líka sjúkur Jeep XJ með Audi vélinni.
(Mér finnst Guðni æðislegur)
Misti af þessum hvar er sà þràður?
Hann er svakalegur, listasmíði. En ég held að hann sé því miður bara á Facebook.
Re: Jeppi ársins
Posted: 31.jan 2018, 22:03
frá Járni
Man einhver nafnið á XJ Audi manninum? Tilvalið að leyfa honum að vera memm
Re: Jeppi ársins
Posted: 01.feb 2018, 07:59
frá Járni
Upplagt að Almar sé með!
viewtopic.php?p=176540
Re: Jeppi ársins
Posted: 01.feb 2018, 09:20
frá íbbi
algjörlega, var búinn að gleyma þessum
Re: Jeppi ársins
Posted: 01.feb 2018, 10:53
frá Ragnare
Járni wrote:Man einhver nafnið á XJ Audi manninum? Tilvalið að leyfa honum að vera memm
https://www.facebook.com/profile.php?id ... 386&type=3Eiríkur Böðvar er að vinna í ágætis verkefni
Re: Jeppi ársins
Posted: 12.feb 2018, 22:08
frá Járni
Jæja, látum þessar tilnefningar nægja. Ég set inn könnun eftir smá stund!