Sælir félagar.
Það er orðið lang síðan ég hef sett eitthvað hérna inn, en ég hef samt gaman að fylgjast með á síðunni.
Nú er bara að rifja upp hvernig maður setur inn myndir.
Ég er með 4 gamla Land Cruisera í notkun og ætla ég að byrja á smá grindarviðgerð á 1999 bílnum sem ber nafnið skólabíllinn, því þetta er bíll sem ég keypti í niðurrif 2018 með brotið framdrif. Ég asnaðist til að aftengja framdrifið og keyra hann heim. Mér fannst svo frábært að keyra hann þannig að ég týmdi ekki að rífa hann og keypti því annan í niðurrif og færði framdrifið á milli. Síðan hefur hann verið notaður barn fram af barni til að keyra sig í FSU á Selfossi frá Hvolsvelli.
Það var komið eitthvað tíst í bílinn, og við ransókn kom í ljós að húsfestingarnar að aftan voru sundur ryðgaðar.
Gott að komast að boltum þegar neðsti parturinn af vösunum aftan við afturhjól er ryðgaður burtu.
Svona lýtur gólfið alltaf út eftir að Krúsarnir koma inn í skúr.
Pantaði mér nýjar húsfestingar. Helvíti fínar suður á þessu frá Toyota.
Búið að laga grindarendana og sjóða nýju húsfestingarnar á.
Búið að laga allt annað sem fannst að grindinni.
Notaði tækifærið til að sandblása og mála varadekksdæmið og dráttarbeislið. Að sjálfsögðu settir nýir original boltar í allt.
Gerði svo við stigbrettafestingarnar áður en þau fóru á.
Land Cruiser dund.
Re: Land Cruiser dund.
Sílsarnir voru eitthvað farnir að fúna og var ráðist í að gera við vestur hliðina áður en síðasta barnið fengi bílpróf.
Hefði kanski verið snjallt að gera eitthvað í þessu fyrir nokkrum árum.
Byrjað að skera og skoða og máta nýja sílsinn.
Svo var ekkert annað að gera en skéra síls úr einu hræinu sem ég á og ná sér í fleiri ryðbætingarstykki. Þau voru svo sandblásin, ryðbætt og máluð.
Og fyrst búið var að skera sílsana í burtu var alveg upplagt að taka fjöðrunarkúluna úr og sandblása grindina meðan gott væri að komast að. Og fyrst fjöðrunarkúlan var komin úr var upplagt að sandblása hana og mála.
Þegar mikið er sandblásið er gott að eiga góða loftpressu.
Svo er sílsinn smíðaður upp í allt að 4 lögum á köflum.
Að lokum er svo smíðaður langur pensill til að geta málað yfir suðurnar inni í sílsinum.

Svo var haldið suður eftir vestur hliðinni og skipt um hjólboga.
Búið að skera úr.
Mátun á nýja hjólboganum.
Meiri úrskurður.
Búið að sjóða nýju stykkin í.
Þurfti að smíða upp meiripartinn af innra birðinu.
Smíðavinnu lokið.
Svo er bara að spalsa, Setja pensilkítti ýfir innra birðið og mála.

-
jongud
- Innlegg: 2732
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Land Cruiser dund.
Það er aldeilis!
Ekki smá vinna við svona lagað. En þar sem kramið í þessum bílum er nánast ódrepandi er um að gera að lappa upp á þá þegar þeir ryðga.
Ekki smá vinna við svona lagað. En þar sem kramið í þessum bílum er nánast ódrepandi er um að gera að lappa upp á þá þegar þeir ryðga.
Re: Land Cruiser dund.
Áfram með smjörið.
Framgólfið vestan megin hefði mátt vera betra og við því þarf að bregðast.
Upplagt að skipta út ryðguðum boltum meðan gott er að komast að þeim.
Enn komu varahlutabílarnir sterkir inn þegar vantar ryðbætingastykki.
Búið að sandblása, sjóða og mála gólfið.
Botninn á afturgólfinu sandblásinn og málaður í áföngum þar sem það er aðeins lýjandi að sandblása upp fyrir sig. Þar þarf svo að skipta út bitum við tækifæri.
Framrúðunni kippt úr og þar voru áframhaldandi ævintýri.
Þá er hægt að fara að huga að málningu og þá þarf að setja upp loftræstinguna.
Búið að gusa yfir hliðina og toppinn.
Ákvað að skipta út hurðunum þar sem ég átti betri eintök og ákvað að mála þær þrátt fyrir að þær væru í réttum lit. Svo voru hliðarlistarnir farnir að flagna og ákvað ég þá bara að samlita þá.
Svo þurfti bara að raða öllu saman.

jongud wrote:Það er aldeilis!
Ekki smá vinna við svona lagað. En þar sem kramið í þessum bílum er nánast ódrepandi er um að gera að lappa upp á þá þegar þeir ryðga.
Jú þetta er soldil vinna, en kemur sér að ég hef gaman af þessu. En kramið er jú ástæðan fyrir því að maður stendur í þessu. Þetta keyrir bara og keyrir með til þess að gera litlu viðhaldi.
Kv. Smári.
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 60 gestir