Besta kortaforrit+kortagrunnur fyrir Windows spjaldtölvur.

Fyrir allt sem tengist leiðsögu- og fjarskiptatækjum.

Höfundur þráðar
kaos
Innlegg: 132
Skráður: 08.okt 2014, 22:52
Fullt nafn: Kári Össurarson

Besta kortaforrit+kortagrunnur fyrir Windows spjaldtölvur.

Postfrá kaos » 20.apr 2026, 09:05

Sælt veri fólkið,

Nýlega fékk björgunarsveitin okkar, Bræðrabandið, Dell Latitude 7212 spjaldtölvu að gjöf frá Eimskip. Þetta er hin verklegasta tölva, "ruggedized" og með innbyggðum GPS móttakara. Einn notkunarmöguleikinn fyrir verkfærið er augljóslega sem plotter. Svo að nú langar mig að spyrja viskubrunn Jeppaspjallsins hvaða forrit og kortagrunn væri best að nota. Þeir möguleikar sem ég veit af eru:
1: Ozi Explorer. Þrautreynt forrit, en ég hef ekki fundið neinn sem er að auglýsa kortagrunn fyrir það í dag.
2: Garmin Nroute. Þetta forrit notaði ég á árum áður, þegar "car-PC" var í tísku. Líkaði vel, og það er fáanlegur nýr kortagrunnur sem á að virka með því. Hins vegar er notkun á forritinu sjálfu kannski á dálítið gráu svæði. Mér sýnist að það sé ekki fáanlegt frá Garmin lengur, og þó ég lumi á "öryggisafriti" þá líður mér ekki alltof vel með að nota það í björgunarsveitartæki.
3: Orux Maps. Þetta er auðvitað Android forrit, en mögulega hægt að keyra undir Windows í emulator. Hef samt áhyggjur af því hvernig gengur að fá það til að tala við GPS móttakarann. Einhver með reynslu af því?

Allar upplýsingar og tillögur vel þegnar.

--
Kveðja, Kári.




Höfundur þráðar
kaos
Innlegg: 132
Skráður: 08.okt 2014, 22:52
Fullt nafn: Kári Össurarson

Re: Besta kortaforrit+kortagrunnur fyrir Windows spjaldtölvur.

Postfrá kaos » 20.apr 2026, 20:30

Jæja, núna er ég búinn að eyða smá tíma í að reyna að ná Orux maps í gang í gegnum tvo Android herma, Bluestacks og Memu, sem báðir fá góða dóma á netinu. Án þess að hafa um það mörg orð, sem hvort eð er væru óprenthæf, þá er árangurinn er svoleiðis að ég held ég afskrifi þessa aðferð nema einhver geti bent mér á hermi/aðferð sem virkar. Þá stendur Ozi explorer eða Garmin nroute eftir, nema einhver geti bent mér á eitthvað annað.

--
Kveðja, Kári.

User avatar

Snæri
Innlegg: 70
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Besta kortaforrit+kortagrunnur fyrir Windows spjaldtölvur.

Postfrá Snæri » 21.apr 2026, 19:26

Veit nú ekki hvernig windows spjaldtölvu umhverfið er, en hefuru skoðað Gaia? ég nota það mikið bæði á hjóli og í bíl. er ekki viss á hvaða formatti ískort/gpsmaps gefa sín kort út í, en ef það virkar í orux/avenza ætti það að virka í gaia, KML skrár virka allavegana til að nota sprungukortin.

Untitled.jpg
Untitled.jpg (341.81 KiB) Viewed 298 times

Untitled2.jpg
Untitled2.jpg (106.09 KiB) Viewed 298 times


Höfundur þráðar
kaos
Innlegg: 132
Skráður: 08.okt 2014, 22:52
Fullt nafn: Kári Össurarson

Re: Besta kortaforrit+kortagrunnur fyrir Windows spjaldtölvur.

Postfrá kaos » 25.apr 2026, 12:39

Takk, fyrir uppástunguna. Mér sýnist þetta hins vegar vera Android og Ios eingöngu, rétt eins og Orux maps, og miðað við reynsluna af því held ég að ég gái ekki að því á þessu spjaldi. Ég ætti kannski að taka fram að það var ekki Orux maps sem slíkt sem olli mér vadræðum, heldur að fá það til að tala við GPSið í gegnum emulatorinn. Ég væri alveg til í að skoða Orux maps eða Gaia betur ef ég verð einhvern tíman með native Android eða Ios.

--
Kveðja, Kári.


Til baka á “Ferlar og fjarskipti”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 5 gestir