- Á meðan grindin var í sandblæstri var farið í að ganga frá allskona lausum endum
- 01.jpg (436.54 KiB) Viewed 16634 times
- búinn að ganga frá og sjóða allar festingar á hásingu
- 02.jpg (331.52 KiB) Viewed 16634 times
- næst var að losa brotna bolta. Best virkaði að sjóða ró á boltan
- 03.jpg (460.35 KiB) Viewed 16634 times
- og síðan hita draslið!
- 04.jpg (388.9 KiB) Viewed 16634 times
- varahlutir byrjaðir að tínast inn. Pakkningarsett til að gera upp fox dempara
- 05.jpg (475.1 KiB) Viewed 16634 times
- Grindin komin, sandblásin og máluð. Hérna má segja að það sé búið að ná ákveðnum núllpunkti og hægt að byrja að vinna í hina áttina!
- 06.jpg (580.44 KiB) Viewed 16634 times
- Verið að sandblása spindilarma. Ég áttaði mig fljótlega á að það að sandblása í opnu rými var ekki alveg að ganga. Megnið af efninu tapaðist og sandur út um allt.
- 07.jpg (836.36 KiB) Viewed 16634 times
- Svo ég tíndii saman afganga af allskonar tréverki og fór að smíða sandblásturskassa
- 08.jpg (716.21 KiB) Viewed 16634 times
- Allt koma saman í ágætis kassa
- 09.jpg (418.31 KiB) Viewed 16634 times
- Trektin komin!
- 10.jpg (484.06 KiB) Viewed 16634 times
- Kassin að mestu tilbúin. Ég er búinn að nota hann slatta núna og það munar svakalega að vinna þetta svona. Mikið minni undirbúningstími og frágangur.
- 11.jpg (380.33 KiB) Viewed 16634 times
- Ég ákvað að fjárfesta á sprautukönnu svona þar sem frammundan er slatt sprautuvinna
- 12.jpg (305.96 KiB) Viewed 16634 times
- Afturhásing sandblásin og grunnuð
- 13.jpg (523.61 KiB) Viewed 16634 times
- og síðan búið að mála
- 14.jpg (490.23 KiB) Viewed 16634 times
- Meira komið af varahlutum og búið að mála flesta stóra hluti
- 16.jpg (762.56 KiB) Viewed 16634 times
- Stundum milli stríða (eða varahlutasendinga) fór ég aðeins að pæla í drifskaptslengingu.
- 17.jpg (329.18 KiB) Viewed 16634 times
- Næst er að yfirfara frammdrif. Skipta um þéttihringi í ARB lás
- 18.jpg (330.38 KiB) Viewed 16634 times
- Frammdrifið komið á sinn stað.
- 19.jpg (530.24 KiB) Viewed 16634 times
- Samsetning komin á fullt. Boltar fara í þetta sinn saman með koparfeiti.
- 20.jpg (397.65 KiB) Viewed 16634 times
- Stýrismaskína fékk nýja enda og nýjar fóðringar.
- 21.jpg (388.5 KiB) Viewed 16634 times
- Fóðringarnar í stýrismaskínuni voru vel fastar svona eins og allar aðrar fóðringar sem ég hef þurft að eiga við. Lausnin var að brenna gúmmíið þannig að ég gat náð hólknum úr og síðan stinga sagablaði í gegnum og saga fóðringuna í sundur.
- 22.jpg (422.66 KiB) Viewed 16634 times
- Slatta af blótsyrðum síðar eru fóðringarnar komnar úr.
- 23.jpg (296.7 KiB) Viewed 16634 times
- Fóðringarnar eru ekki þjónustaðar af Toyota svo ég notaði Ástralska poly fóðringar sem fást hjá Stál og Stönsum
- 24.jpg (329.17 KiB) Viewed 16634 times
- Ég endurnýjaði allar spyrnur nema eina sem var í það fínu standi að ég bara sandblés hana og setti í hana nýjar fóðringar.
- 25.jpg (359.23 KiB) Viewed 16634 times
- Afturfjöðrun að púslast saman
- 26.jpg (510.75 KiB) Viewed 16634 times
- og frammfjöðrun komin af stað
- 27.jpg (396.21 KiB) Viewed 16634 times
- allt komið saman í frammfjöðrun, bara bremsulagnir eftir
- 28.jpg (389.58 KiB) Viewed 16634 times