Toyota ævintýrið

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 58
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 11.mar 2026, 21:11

Ég kemst ekki með í stórferð, enda bíllinn langt á eftir áættlun þannig að það var eitthvað potað í smotterý, uppfærði auxbeam brakkettið og er að verða helvíti ánægður með það, en tókst ekki allveg að hitta á rétta gráa litin, en þetta venst þó, reikna samt með að ég haldi áfram að reina að finna samsvarandi gráan lit.
Næst er bara að reyna að finna leið til að herma eftir auxbeam límmiðunum til að græja á þetta, en ég var ekki allveg ánægður með neitt af þessum límmiðum sem fylgdu með.


auxbeambrakk1.jpg
auxbeambrakk1.jpg (644.94 KiB) Viewed 126 times

auxbeam brakk2.jpg
auxbeam brakk2.jpg (291.34 KiB) Viewed 126 times

auxbeam.jpg
auxbeam.jpg (522.95 KiB) Viewed 126 times


fór svo að máta við hásinguna ný bremsurör og slöngur.
Bremsuror.jpg
Bremsuror.jpg (1.13 MiB) Viewed 126 times



Mig langaði að einfalda bremsukerfið töluvert, en mér var góðfúslega bent á það, að þrátt fyrir "breytta bifreið" þá væri samt krafa um að ABS kerfið væri í lægi fyrir skoðun. mig minnir nú samt að þegar ég renndi síðast yfir skoðunarhandbókina þá hefði ég skilið hana sem svo að ef bíllin væri með breytingaskoðun/með fallega rauða miðann sem segir að aksturseiginleikum hafi veirð breytt - þá mætti abs ljósið loga / mætti ég forrita ABS heilan í burtu.

er einhver ykkar sem er með þetta á hreinu?
Viðhengi
Festing_vx.stl
(3.68 MiB) Downloaded 8 times
frontur_vx.stl
(40.02 MiB) Downloaded 5 times



User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1944
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Sævar Örn » 11.mar 2026, 22:19

Sæll þetta lofar góðu hjá þér það er ekki gerð athugasemd í skoðun hérlendis við logandi ABS ljós í breyttum torfærubifreiðum fyrst skráðum fyrir 2013


abs skhb.PNG
abs skhb.PNG (82.88 KiB) Viewed 120 times
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

jongud
Innlegg: 2724
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá jongud » Í gær, 08:55

Flott þetta, gott að vita af .stl skránum ef maður ætlar að setja eitthvað þarna.
Sjálfum finnst mér fínt að vera með ABS kerfið virkt, það virkar fínt með 40 tommu dekkjum, en portal-hásingar eru kannski fullmikið bras.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 58
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » Í gær, 18:16

Takk fyrir þetta Sævar, þetta var akkurat það sem mig minnti að ég hefði lesið - vissi reyndar ekki af þessum aldursfordómum, þeir sem bentu mér á þetta eru að vísu allir á nýrri bíl en 2013.

Vissulega er ABS kerfið öryggistól og allt það og gott meðan það virkar, en ég hef því miður lent óþæginlega oft í því á gömlum breyttum bílum, að það gerir bara illt verra.
Nú síðast bara á Nissaninum, þá lenti ég í því að ABS kerfið ruglaðist eitthvað og fór alltaf á þegar ég reyndi að bremsa.en til lukku þá gerðist þetta um miðja nótt og það var sem betur fer engin umferð um gatnamótin en ABS kerfið kom í veg fyrir að nokkuð gæti gerst þegar stigið var á bremsuna. það var sprunga/gap í tónhringnum sem mig grunar að hafi valdið þessu, en eftir þetta fór abs öryggið úr og var bara sett í rétt á meðan á skoðun stóð.

lennti í svipuðu í cherokee sem ég átti, en hann var alltaf hundleiðinlegur með ABS á malarvegum/slóðum.


jongud wrote:Flott þetta, gott að vita af .stl skránum ef maður ætlar að setja eitthvað þarna.
Sjálfum finnst mér fínt að vera með ABS kerfið virkt, það virkar fínt með 40 tommu dekkjum, en portal-hásingar eru kannski fullmikið bras.

í sjálfusér er þetta ekkert mál þar, það er nýr tónhringur í portölunum og það fylgdu með framlengingar á ABS snúruna.

Ég get látið þig fá .obj (mesh skrárnar frá 3d-skönnuninni) eða .3mf fusion skránna ef þú vilt dunda við að hanna þína eigin útfærslu eða setja eitthvað annað í þetta hólf - spjallið leyfir ekki að setja inn .obj skrár

stokkur.jpg
stokkur.jpg (107.27 KiB) Viewed 72 times

klinkbox.jpg
klinkbox.jpg (39.78 KiB) Viewed 72 times


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 3 gestir