Síða 1 af 1

Loftdælur

Posted: 19.jan 2022, 09:45
frá mxestro
Daginn

Hvaða fælur eru menn að taka fyrir 38” dekk
Er 72L/mín nóg, eða er maður að fara í 150-160L/mín?

Re: Loftdælur  SELT!

Posted: 19.jan 2022, 09:51
frá Lada
Ég keypti svona í sumar en er ekki búinn að nota hana mjög mikið. En hún lofar góðu og virðist vera mjög öflug og fljót að dæla í 35"

https://mckinstrymotorsport.is/is/produ ... ela-300l-m

Re: Loftdælur

Posted: 19.jan 2022, 12:36
frá mxestro
Er þessi dæla fyrir 12v eða 24v?

Re: Loftdælur

Posted: 19.jan 2022, 16:20
frá jongud
mxestro wrote:Daginn

Hvaða fælur eru menn að taka fyrir 38” dekk
Er 72L/mín nóg, eða er maður að fara í 150-160L/mín?


72L/mín er EKKI nóg fyrir 38 tommur nema þú sért MJÖG þolinmóður.
Þessi dæla sem Lada er að benda á myndi ég telja lágmark.

Re: Loftdælur

Posted: 19.jan 2022, 20:43
frá snowflake
Ég keypti svona dælu eins og Lada benti á sem varadælu. Gerði smá tilraun, var um 3:30 min að pumpa úr 4psi í 30psi 40”cooper dekk með slöngunni sem fylgdi og beint á geymi. Kom lika á óvart að hún var ekki ærandi af hávaða