Land Cruiser dund.
Posted: 01.maí 2026, 21:06
Sælir félagar.
Það er orðið lang síðan ég hef sett eitthvað hérna inn, en ég hef samt gaman að fylgjast með á síðunni.
Nú er bara að rifja upp hvernig maður setur inn myndir.
Ég er með 4 gamla Land Cruisera í notkun og ætla ég að byrja á smá grindarviðgerð á 1999 bílnum sem ber nafnið skólabíllinn, því þetta er bíll sem ég keypti í niðurrif 2018 með brotið framdrif. Ég asnaðist til að aftengja framdrifið og keyra hann heim. Mér fannst svo frábært að keyra hann þannig að ég týmdi ekki að rífa hann og keypti því annan í niðurrif og færði framdrifið á milli. Síðan hefur hann verið notaður barn fram af barni til að keyra sig í FSU á Selfossi frá Hvolsvelli.
Það var komið eitthvað tíst í bílinn, og við ransókn kom í ljós að húsfestingarnar að aftan voru sundur ryðgaðar.
Gott að komast að boltum þegar neðsti parturinn af vösunum aftan við afturhjól er ryðgaður burtu.
Svona lýtur gólfið alltaf út eftir að Krúsarnir koma inn í skúr.
Pantaði mér nýjar húsfestingar. Helvíti fínar suður á þessu frá Toyota.
Búið að laga grindarendana og sjóða nýju húsfestingarnar á.
Búið að laga allt annað sem fannst að grindinni.
Notaði tækifærið til að sandblása og mála varadekksdæmið og dráttarbeislið. Að sjálfsögðu settir nýir original boltar í allt.
Gerði svo við stigbrettafestingarnar áður en þau fóru á.