Gæti þetta eitthvað tengst ? fór með bílinn í skoðun og fékk aths á að það virkaði ekki þokuljós að aftan, jæja fór og skipti um bremsuklossa á að framan hélt að abs myndi lagast við það nei það gerði það ekki, kíkti á beislið að aftan og ath með tengið þar lýtur allt vel út þar sé ekkert sem getur verið að leiða út? en fæ stundum mikið stöðurafmagn af því að loka hurðini :), hefur einhver lent í þessu með þokuljósin hjá sér og fann útur því, það sem hefur verið bent á á netinu er að kíkja á tengið sem er á beislinu. og að relay gæti verið ónýtt.
þakka fyrir öll svör.
Abs ljós logar í mælaborðinu og þokuljós að aftan virka ekki
-
- Innlegg: 1930
- Skráður: 31.jan 2010, 19:27
- Fullt nafn: Sævar Örn
- Bíltegund: Hilux
- Staðsetning: Reykjavik
- Hafa samband:
Re: Abs ljós logar í mælaborðinu og þokuljós að aftan virka ekki
ABS ljós getur komið af ýmsum ástæðum, eina skilvirka leiðin til að greina vandann er með tölvuaflestri.
Þó eru ýmsar bíltegundir með algenga galla, sbr. brotna talningahringi á Hyundai bílum, skemmd tengi á Chevrolet bílum osfv. - Bíltegund kemur ekki fram hjá þér.
Varðandi þokuljósið er fyrsta vers að greina vandann, þú kveikir öll ljós og svo þokuljós, aftur, hver er bíltegundin? Fólksbifreiðar framleiddar fyrir n-a. markað eru ekki með þokuafturljós - en fyrst skoðunarmenn gera athugasemd hlýtur bíllinn að vera útbúinn þokuljósi og það er bara í ólagi.
Þá er næsta spurning, kemur gaumljós í mælaborðið(eða rofann) um að ljósið sé kveikt?
Ef ekki, skoða öryggi fyrir ljósin fyrst, sennilega merkt "FOG" eða "RR FOG" og varla stærra en 15 Amper var, sé það allt í góðu lagi og gaumljós kvikni er næsta verk að mæla sambandið í tenginu sjálfu, þokuljósið í 7 póla tengi er blár vír en algengt er að 7 pinna tengi þjáist af sambandsleysi, sér í lagi ef óhreinindi komast í bakhluta þeirra þar sem vírarnir eru klemmdir í tengið og valda tæringu.

Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is
Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

- Innlegg: 323
- Skráður: 02.feb 2010, 12:55
- Fullt nafn: Þorvarður Lárusson
- Bíltegund: Musso cherokee ofl
Re: Abs ljós logar í mælaborðinu og þokuljós að aftan virka ekki
Ef þú ert með kerrutengil (7 Pinna tengi) er mjög líklegt að í því sé fjöður sem aftengir þokuljósið aftan á bílnum meðan eitthvað er í sambandi
við tengilinn. Þessi dásamlegi búnaður á það til að festast sökum tæringar og drullu og valda þar með hvimlegri bilun sem lýsir sér með almyrkva í ljóskerum. Ætti ekki að hafa neitt með ABS ljósið að gera þar skaltu láta lesa af honum og fá að vita hvaða skyjari er að valda pirringi.

Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Google [Bot] og 1 gestur