Síða 3 af 4
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 25 janúar
Posted: 17.mar 2021, 10:43
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 17 mars
Posted: 17.mar 2021, 14:56
frá Járni
Vá, vel gert, þvílíkt upplífgandi að sjá þetta svona fínt og á leið saman, parast frábærlega með hækkandi sól =)
Áfram gakk!
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 17 mars
Posted: 23.mar 2021, 13:02
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 17 mars
Posted: 23.mar 2021, 13:21
frá Járni
Blessaður vertu, endurnýjaðu pikkuppið úr tanknum!
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 17 mars
Posted: 28.mar 2021, 09:04
frá Óskar - Einfari
Járni wrote:Blessaður vertu, endurnýjaðu pikkuppið úr tanknum!
Það er svona í skoðun... búinn að finna partnúmer en gengur illa að fá varahlutinn. Ég sendblés pikkubið og það eru aðalega stútarnir sem eru svona ljótir. Ef maður styttir rörin um stútana má gefa þessu frammhaldslíf þótt ég hefði kosið að fá ný rör.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 28.mar 2021, 09:27
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 28.mar 2021, 22:32
frá elli rmr
Hrikalega flottur metnaður :) verður gamann hjá þér að nota hann
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 02.apr 2021, 06:39
frá Óskar - Einfari
elli rmr wrote:Hrikalega flottur metnaður :) verður gamann hjá þér að nota hann
Takk fyrir það.... m.v. hvað mikið af fóðringum er illa farið eða ónýtt þá hlakkar mig doldið mikið til að vita hvernig það verður að keyra hann eftir þetta :o
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 02.apr 2021, 07:08
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 02.apr 2021, 20:05
frá Gisli1992
Virkilega vel að verki staðið maður hálfgerlega skammast sín eftir að maður les yfir þráðinn hjá þér hvað maður er hrikalega latur að vinna í sínum eigin jeppa.... virkilega flott vinnubrögð bíð spenntur eftir næsta innleggi
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 03.apr 2021, 09:34
frá Óskar - Einfari
Gisli1992 wrote:Virkilega vel að verki staðið maður hálfgerlega skammast sín eftir að maður les yfir þráðinn hjá þér hvað maður er hrikalega latur að vinna í sínum eigin jeppa.... virkilega flott vinnubrögð bíð spenntur eftir næsta innleggi
Takk fyrir það, gott að heyra að einhverjir hafa gaman af þessu brasi!
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 12.apr 2021, 09:52
frá Óskar - Einfari
Þetta stoppar ekkert.... flest kvöld og allur laus tími endalaus vinna! þetta skal takst. Undanfarin kvöld er ég búin að vera að klára lausa enda. Ef ég hef eitthvað lært þá er að passa sig á að vera ekki með endalaust af ókláruðu. Það getur verið freystandi að fara í næsta spennandi verkefni en þá klárast aldrei neitt. Markmiðið hjá mér var alltaf að klára allt sem þarf að gera í grindinni áður en farið er á fullt að vinna í kofanum. Þetta er nokkurnvegin að takast. Vélin er komin í og föst, pústið komið og búið að smíða pústfesingar, bremsulagnir komnar og búið að breyta/smíða bremsulagnir fyrir hásingafærsluna, tankarnir komnir í þar er búið að endurnýja allar klemmur og megnið af hosum, búinn að gera upp startaran, búið að þrífa soggrein, EGR og inntak og það er allt komið í með nýjum pakkningum, kláraði að skipta um báðar pinionpakkdósir, víralúm fyrir afturhlutan er komið í og allskonar svona fleiri lausir endar hafa safnast hafa verið kláraðir. Í gær var svo kofinn tekinn inn og mátaður aðeins ofaná. Hann er ekki festur heldur er ég bara að tilla honum aðeins á til að skoða hvað ég er að fara í þar. Ég mun svo kippa kofanum aðeins af aftur til að sandblása og mála botnin.
- Búið að hreinsa uppsafna sót og drullu úr soggrein
- 01.jpg (505.22 KiB) Viewed 16725 times
- Búið að hreinsa uppsafna sót og drullu úr EGR ventli
- 02.jpg (400.48 KiB) Viewed 16725 times
- Enn ein sendingin komin frá PartSouq núna með pakkningum o.fl í vélina
- 03.jpg (444.83 KiB) Viewed 16725 times
- Það er alltaf ótrúlega góður frágangur og pökkun hjá þeim í Dubai. Viðkvæmir hlutir eins og t.d. pakkningar koma hér pakkaðir inn í tvær krossviðsplötur.
- 04.jpg (336.36 KiB) Viewed 16725 times
- Nýr loki á EGR kælinn. Þessi loki lokar fyrir hringrás inn í EGR kælinn til að flýta fyrir því að vélin nái vinnuhita.
- 05.jpg (365.96 KiB) Viewed 16725 times
- og fleiri pakkningar komnar, þetta sinn frá Kauptúninu
- 06.jpg (482.18 KiB) Viewed 16725 times
- Sogrein, EGR og EGR kælir komið á vélina aftur. Eina sem vantar er spíss sem er von á um miðjan Apríl
- 07.jpg (627.08 KiB) Viewed 16725 times
- Lagnavinna í kringum tankana. Tengja saman aukatanka + aðaltank, koma fyrir áfyllingu, rafmagni, lofti, bremsum o.fl
- 08.jpg (748.29 KiB) Viewed 16725 times
- Nýjir boddípúðar
- 09.jpg (508.61 KiB) Viewed 16725 times
- Bremsur lagnir fyrir hásingafærsluna. Bremsuslöngurnar eru fyrir frammdælurnar.
- 10.jpg (581.62 KiB) Viewed 16725 times
- Boddíið komið af stað
- 11.jpg (740.1 KiB) Viewed 16725 times
- Ætli þetta passi á aftur?
- 12.jpg (611.56 KiB) Viewed 16725 times
- Það er var óneytanlega vinalegt að sjá kofan kominn á aftur þótt mikið sé í land ennþá. Ég fann fyrir söknuði og langaði helst í bíltúr eitthvað til fjalla. Þetta eru ákveðin kaflaskipti í ferlinu, nú fer maður í boddívinnu!
- 13.jpg (576.77 KiB) Viewed 16725 times
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 13.apr 2021, 23:22
frá gislisveri
Frábær þráður, hvetur okkur hina til dáða.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 18.apr 2021, 00:18
frá Axel Jóhann
Já, heldur betur, vildi óska þess að maður hefði tíma og nennu í svona almennilega skveringu!
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 22.apr 2021, 09:44
frá Óskar - Einfari
Jæja þá er maður byrjaður í boddívinnu og úrklippu. Þetta fer aðeins hægt af stað að skipta svona um gír, fara að vinna og pæla í allt öðrum hlutum. En það er aðeins að koma skrið á þetta. Ég hef ákveðið að klippa úr innri brettum eins og mögulegt er. Ég hef verið að nota máta fyrir 44" Nokian dekk. Það er hinsvegar ljós að neðri hurðarlömin í frammhurðunum mun vera takmarkandi þátturinn. Ég er að reyna að hækka bílinn ekki meira, sem gæti reynst erfitt. 42" goodyear, 44" DC væri vel hægt, en Nokian dekkin eru svo hrikalega breið að sennilega mun það ekki ganga nema með 20-30mm boddíhækkun ef hann fer einhverntíman á svoleiðis dekk. Það er lítið orðið eftir af dyrastafnum, áður en ég held áfram að vinna eitthvað í boddíinu eða færa það til þarf ég styrkja dyrastafinn svo þetta fari ekkert af stað.... allt er þetta tímafrekt, mikil heilbrot og hönnunarvinna.
- Komið að því að opna sílsahorn, hvalbak og dyrastaf þar sem gamla úrklippaan er til að skoða ástandið þar.
- 01.jpg (493.8 KiB) Viewed 16125 times
- Af sjálfsögðu er komið rið eftir 14 ára notkun. En þar sem frágangurinn á gömlu breytingunni var mjög góður þá hefur það bjargað því að hér voru engin ryðgöt og ekkert farið að ryðga upp með lokuðum hólfum nema á nokkrum stöðum undir gólfinu.
- 02.jpg (558.47 KiB) Viewed 16125 times
- Byrjað að klippa úr með máta fyrir 44" Nokian. Hérna var nú hjartslátturinn farinn að aukast aðeins þegar ég sá hvað myndi verða lítið eftir af dyrastafnum
- 03.jpg (470.08 KiB) Viewed 16125 times
- Búið að klippa inn í vélarsal, á eftir að snyrta þetta aðeins til. Það mun þurfa að breyta geymafestingu og öryggjaboxinu.
- 04.jpg (542.69 KiB) Viewed 16125 times
- jæja hér fóru heilastarfsemin á yfirsnúning. Neðri lína er 42" og efri línan 44" Nokian. Þetta er í fullri beygju og fullum samslætti og skilur ekkert pláss eftir fyrir dekkið. Götin þrjú eru fyrir lömina og eins og sést þá verður lömin einfaldlega bara að ráða. Jafnvel fyrir 42" mun ég þurfa að skera báða boltana í burtu, setja nýja bolta innar á lömin og einnig sjóða lömina fasta á húsið. Nýjar lamir eru komnar í pöntun þar sem það var komið smá slag í hinar.
- 05.jpg (381.98 KiB) Viewed 16125 times
- Maður á studum aulamóment þegar langt er liðið framm á kvöld með mikilli heilaleikfimi. Ég var að bölva því að ég fann ekki hlífðargleraugun, svo ég náði mér í önnur gleraugu..... jæja þið sjáið á myndinni hvar hin gleraugun voru síðan.
- 06.jpg (290.74 KiB) Viewed 16125 times
- Byrjað að útbúa stól/styrkingu í gólfið sem festist við styrkingu sem nær niður í síls og síðan upp með dyrastafnum.
- 07.jpg (527.93 KiB) Viewed 16125 times
- Fyrir allar styrkingar sem þarna koma verður notað 3mm S355 stál. Þar sést hvernig styrkingin nær niður í botn á sílsinum og festist þar utan á orginal burðarbita sem er í sílsinum.
- 08.jpg (492.2 KiB) Viewed 16125 times
- Næst er að hanna styrkingu sem kemur innan á dyrastafin og nær eitthvað upp með úrklippuni
- 09.jpg (486.13 KiB) Viewed 16125 times
- Tímafrekt var það.. en í annari tilraun varð þessi lengja til sem nær frá styrkingunni í gólfinu, upp með dyrastafnum og aðeins upp í hvalbak.
- 10.jpg (254.85 KiB) Viewed 16125 times
- Það er ekki í boði að spenna neitt til, þá er einfaldlega hætta á að hlutirnir fari bara af stað. Þannig að styrkingin er beyggð hingað og þangað þannig að hún dettur bara í þann stað sem hún á að vera.
- 11.jpg (277.99 KiB) Viewed 16125 times
- Eftir alla þessa vinnu við þessa einu styrkingu er búið að punkta hana í.... þá áttaði ég mig á því að það sést ekkert utan á bílnum að nokkuð hafi gert. Stundum er það þannig.... mesta vinnan sést minnst. Þarna er búið að tilla þessu í og a myndinni ætu að sjást þrír suðupunktar fyrir ofan hvalbakinn þar sem styrkingin endar.
- 12.jpg (445.89 KiB) Viewed 16125 times
- Hér þarf svo að snyrta til alla enda, hreinsa rið og gera fínt áður en farið að loka öllum þessum litlu hólfum. Þar nota ég líka 3mm plötustál og tengi allar þessa búta saman til að fá sem mestan styrk í þetta allt.
- 13.jpg (402.19 KiB) Viewed 16125 times
- Ég var nokkuð ánægður með kvöldverkið bara. Vonandi gengur þetta hraðar fyrir sig núna þegar boltinn er farinn að rúlla.
- 14.jpg (410.09 KiB) Viewed 16125 times
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 22.apr 2021, 10:23
frá Sævar Örn
Flott það er einmitt þetta tímafrekustu verkin er erfiðast að sýna á mynd en það veitir manni sjálfum hugarró að vita af vönduðu verki.
Þetta lítur vel út hjá þér og skot gengur alveg miðað við allt og allt.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 23.apr 2021, 21:32
frá TF3HTH
Ekki hugmynd hversu auðvelt/erfitt það er en kannski mætti færa báðar lamir ofar. Líka hægt að færa bara neðri, en betra að hafa svipað bil á milli og orginal annars er of mikið álag á þá neðri.
-haffi
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 26.apr 2021, 15:03
frá Óskar - Einfari
TF3HTH wrote:Ekki hugmynd hversu auðvelt/erfitt það er en kannski mætti færa báðar lamir ofar. Líka hægt að færa bara neðri, en betra að hafa svipað bil á milli og orginal annars er of mikið álag á þá neðri.
-haffi
Það er auðvitað allt hægt en það er ekkert rosalega gott að færa þetta í þessum Hilux. 15-20mm kanski ef maður vill bara bora ný göt. Meira en það þá er maður kominn í vésen með hvernig þetta er stansað út. Lömin komin á loft og skinnið komið frá stansinum sem er fyrir innan. Allt er þetta vafalaust hægt að leysa. Þessi löm hefur hingað til aðalega verið skorin í sundur, boltagöt færð innar í lömin og lömin síðan soðin. Ég hugsa að ég fari þá leið bara og það verður bara það sem ræður. Ef það þarf meira en það einhverntíman fyrir einhver dekk, þá verður það bara smá boddílift :)
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 26.apr 2021, 16:46
frá jongud
Ég veit af einni aðferð sem var notuð á 4runner (yngri en 1997)
Þá var ekkert skorið úr hvalbaknum, heldur var allt boddíið og kramið fært aftar um 8-10 cm og afturhásingin færð um þetta 20-25cm minnir mig.
Það þýddi að vísu að það þurfti að færa ALLAR boddífestingarnar aftar og upp en mér fannst þetta afar sniðug upphækkun.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 28.apr 2021, 01:03
frá Axel Jóhann
Ég hef einmitt velt því mikið fyrir mér, þaes að færa bara boddý allt aftar til að auka plássið, það eru samr glettilega margir hlutir sem þarf að breyta við þá aðgerð, eins og stýrisleggur og jafnvel lenga grindina aftur uppá prôfílbeislið að gera.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 28.apr 2021, 07:02
frá Óskar - Einfari
Þetta hefur verið gert á svona bíl skilst mér. Þá var það reyndar bíll sem var eitthvað mikið tjónaður, var gerður upp og boddíið fært einhverjum cm aftar í leiðinni.
Re: Einfari fær uppgerð
Posted: 15.maí 2021, 09:27
frá Óskar - Einfari
Jæja maður er alltaf að. Þetta gengur svosem vel en manni vantar bara fleiri klukkutíma í sólahringinn. Sílsarnir og ryðviðgerðir á botninum er núna komið, búið að sandblása botnin, næt er að sandblása aðeins innri bretti og frammhluta.
- Til að fá betra aðgengi að botni og sílsu skellti ég boddíinu upp á gamlan stál vinnupall svo ég gæti fært það til.
- 01.jpg (501.7 KiB) Viewed 15086 times
- Botnin leit ekkert sérstaklega vel út
- 02.jpg (497.01 KiB) Viewed 15086 times
- Maður hefur alveg séð það verra.... en líka mikklu betra. Þetta þarf allavega að sandblása!
- 03.jpg (389.62 KiB) Viewed 15086 times
- Ég opnaði sílsana og var ljóst að þar var komið ryð ofan í botnin a sílsum á nokkrum stöðum. Sumstaðar þar sem ég skar hætti að koma neistaflug þannig að sílsana þarf að skipta um. Eins og sést þá var sem betur fer ekkert ryð farið að leita upp í burðin sem var ákveðinn léttir
- 04.jpg (356.82 KiB) Viewed 15086 times
- Þá er að þurrka sand. Þar sem ég þarf að sandblása svona stóran hlut úti þá mun ég tapa efninu. Fyrir svoleiðis nota ég bara pússningarsand sem ég þurrka og síðan sigta.
- 05.jpg (525.59 KiB) Viewed 15086 times
- Meiri sandur þurrkaður.... gólfið reyndist eiginlega best í þetta. Þótt það væri meiri hiti þar sem borðið er var það of lokað rými þannig að rakin slapp ekki út.
- 06.jpg (465.82 KiB) Viewed 15086 times
- Boddíið komið út og allt klárt fyrir blástur
- 07.jpg (705.48 KiB) Viewed 15086 times
- Það er aðeins annað að sjá þetta núna. Ég náði bara að klára botninn, sandurinn kláraðist áður en ég komst í innri bretti og frammhluta.
- 08.jpg (402.71 KiB) Viewed 15086 times
- Eftir sandblástur kom í ljós að það var orðið ansi þunnt í bílstjóragólfinu. Hérna þarf að skipta um smá bút.
- 09.jpg (414.16 KiB) Viewed 15086 times
- Þetta er subbuleg vinna svona undir bílnum og inni í þröngum rýmum. Ég skellti mér nú í sturtu áður en ég fór að sofa svo mér væri ekki bara sparkað frammúr aftur.
- 10.jpg (431.12 KiB) Viewed 15086 times
- Þá er að skella í nýjum sílsum. Sílsana fékk ég hjá Augnablikk, þeir eru með alllt settið undir bílinn á fínu verði!
- 11.jpg (480.51 KiB) Viewed 15086 times
- Til að láta nýja sílsinn passa skar ég í gegnum bæði sílsinn og boddíið. Það kom nokkuð vel út. Nema hérna bílstjóramegin var ég heldur nálægt brotinu, smá byrjendamistök... ekkert alvarlegt samt verður bara smá meiri vinna að vinna fyrir sprautun.
- 12.jpg (314.98 KiB) Viewed 15086 times
- Sílsinn allavega kominn í, bara eftir að klára að sjóða
- 13.jpg (471.89 KiB) Viewed 15086 times
- Þá er komið innri hliðinni. Bílstjóramegin var þetta ekki svo illla farið.
- 14.jpg (440.82 KiB) Viewed 15086 times
- Þetta var nokkuð fljótgert
- 15.jpg (482.7 KiB) Viewed 15086 times
- Farþegamegin var hinsvegar falið ryð í burðinu/innri sílsinum
- 16.jpg (491.75 KiB) Viewed 15086 times
- Eins og sést var þessi bútur af borðinu doldið vel ryðgaður en sem betur fer var þetta bara á litlu svæði.
- 17.jpg (419.01 KiB) Viewed 15086 times
- Þarna kom sér vel að hafa búið til beygjuvél fyrir tæpu ári síðan. Hún var hinsvegar ekki alveg nógu breið þannig að ég þurfti að gera þennan bút í tveimur hlutum..... sem var kanski pínu svekkjandi en ég var alllavega ekki stopp.
- 18.jpg (405.72 KiB) Viewed 15086 times
- Farið að sjá fyrir endan á þessu, allir sílar komnir í og búið að sjóða!
- 19.jpg (493.07 KiB) Viewed 15086 times
- Innri hliði farþegamegin komin
- 20.jpg (477.36 KiB) Viewed 15086 times
- Búið að bæta í gólfið
- 21.jpg (676.74 KiB) Viewed 15086 times
- Farþega hliðin komin líka
- 22.jpg (469.35 KiB) Viewed 15086 times
- Alltaf þegar maður heldur að maður sé búinn finnur maður eitthvað. Smá bútar í sílsahorni, aftur mjög staðbundið en illa farið, það var ekki hægt að slæda bara frammhjá þessu.
- 23.jpg (503.66 KiB) Viewed 15086 times
- Það var bara drifið af, beygla smá smá bút, teikna og síðan sjóða.
- 24.jpg (415.56 KiB) Viewed 15086 times
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 15 maí
Posted: 15.maí 2021, 22:13
frá elli rmr
Þú lætur mann lýta ut fyrir að veta allveg húð latur...... en virkilega vel gert hjá þér verður svakalega flottur þegar þú verður búinn :)
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 15 maí
Posted: 17.maí 2021, 09:54
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 15 maí
Posted: 17.maí 2021, 10:02
frá jongud
Snilld að hugsa svona vel fyrir hlutunum og nota rær , bæði til að festa í OG til að geta sprautað inn í hólfin seinna.
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 15 maí
Posted: 17.maí 2021, 11:09
frá Óskar - Einfari
jongud wrote:Snilld að hugsa svona vel fyrir hlutunum og nota rær , bæði til að festa í OG til að geta sprautað inn í hólfin seinna.
Maður hefur fengið nokkur góð ráð hjá snillingum í þessu :)
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 15 maí
Posted: 17.maí 2021, 15:18
frá Sæfinnur
Þvílík afköst. Maður gæti haldið að þú værir með fjölda manns í vinnu við þetta
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 15 maí
Posted: 04.jún 2021, 13:11
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 6 júní
Posted: 09.jún 2021, 10:09
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 9 júní
Posted: 14.jún 2021, 18:51
frá Sævar Örn
flott Óskar þetta er frábært og vel gert hjá þér, ég hef verið í flutningum og var því fyrst að sjá þetta hjá þér núna.. er að flytja úr bænum og hætta á verkstæðinu eftir rúmlega 10 ára leigu og ýmis verkefni, en segja má að lengingin á mínum bíl frá síðastliðnum vetri hafi komið sér vel í flutningunum.
Þú nærð alveg hálendinu svona þegar snjóa leysir seinna í sumar sýnist mér! kannski sjáumst við á fjö-llum kv. sævarörn
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 9 júní
Posted: 16.jún 2021, 11:40
frá Óskar - Einfari
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 9 júní
Posted: 16.jún 2021, 12:19
frá Óskar - Einfari
Sævar Örn wrote:flott Óskar þetta er frábært og vel gert hjá þér, ég hef verið í flutningum og var því fyrst að sjá þetta hjá þér núna.. er að flytja úr bænum og hætta á verkstæðinu eftir rúmlega 10 ára leigu og ýmis verkefni, en segja má að lengingin á mínum bíl frá síðastliðnum vetri hafi komið sér vel í flutningunum.
Þú nærð alveg hálendinu svona þegar snjóa leysir seinna í sumar sýnist mér! kannski sjáumst við á fjö-llum kv. sævarörn
Takk fyrir það :)
Ég er búinn að sjá nokkrar myndir af þínum Hilux í vetur. Þetta lítur mjög vel út og verður gaman að vita hvernig þetta reynist með pallhýsi. Ég velti þessari leið oft fyrir mér áður, að lengja hjólabilið duglega til að fá betri þyngdardreyfingu undir pallhýsi. Afturhásingin er nefnilega heldur framarlega á þessum litlu japönsku pallbílum. En það eru komin alveg þrjú börn síðan ég var í einhverjum svoleiðis pælingum þannig að það er of seint núna haha :)
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 16 júní
Posted: 16.jún 2021, 21:30
frá andrig
Hvar verslaru þetta Titan shell?
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 16 júní
Posted: 17.jún 2021, 02:28
frá íbbi
þetta er þrælflott allt saman, vinnubrögðin til sóma
hörku gangur í þessu líka.
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 16 júní
Posted: 19.jún 2021, 20:42
frá Óskar - Einfari
andrig wrote:Hvar verslaru þetta Titan shell?
Poulsen selur Titan Shell frá 4CR.
Síðan er Orka líka með 2K Polyurethan kit frá MIPA
Málningarvörur eru síðan með Raptor fra U-Pol
Allir selja annaðhvort svart eða glært sem er hægt að lita.
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 16 júní
Posted: 19.jún 2021, 20:44
frá Óskar - Einfari
íbbi wrote:þetta er þrælflott allt saman, vinnubrögðin til sóma
hörku gangur í þessu líka.
Takk fyrir það.... þetta er harður lokasprettur. Það verður ágætt að kynnast fjölskyldunni aftur í júlí :)
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 16 júní
Posted: 22.jún 2021, 22:44
frá StefánDal
Þetta er glæsilegt og djöfull ertu búinn að halda vel áfram!
Stór plús í kladdann að nota svo raptor þar sem hann á heima :)
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 16 júní
Posted: 23.jún 2021, 08:19
frá jongud
StefánDal wrote:Þetta er glæsilegt og djöfull ertu búinn að halda vel áfram!
Stór plús í kladdann að nota svo raptor þar sem hann á heima :)
Einmitt, Raptor á ekki heima ofan við sílsa
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 16 júní
Posted: 23.jún 2021, 10:04
frá StebbiHö
Poulsen selur Titan Shell frá 4CR.
Síðan er Orka líka með 2K Polyurethan kit frá MIPA
Málningarvörur eru síðan með Raptor fra U-Pol
Allir selja annaðhvort svart eða glært sem er hægt að lita.
Sæll, glæsileg vinna hjá þér og bíllinn hel flottur, til hamingju með hann.
Eru þessi efni svo sem Títan þá ekki upplögð á felgur, er að sanda niður orginal felgur undan LC 120 sem ég ætlaði að sprauta en væri þetta ekki heppilegra efni til að endast betur?
Kv Stefán
Re: Einfari fær uppgerð - uppfært 16 júní
Posted: 23.jún 2021, 12:29
frá Óskar - Einfari
StebbiHö wrote:Poulsen selur Titan Shell frá 4CR.
Síðan er Orka líka með 2K Polyurethan kit frá MIPA
Málningarvörur eru síðan með Raptor fra U-Pol
Allir selja annaðhvort svart eða glært sem er hægt að lita.
Sæll, glæsileg vinna hjá þér og bíllinn hel flottur, til hamingju með hann.
Eru þessi efni svo sem Títan þá ekki upplögð á felgur, er að sanda niður orginal felgur undan LC 120 sem ég ætlaði að sprauta en væri þetta ekki heppilegra efni til að endast betur?
Kv Stefán
Ég hef alveg velt því fyrir mér að nota þetta á felgur og sé ekki hvað ætti að mæla gegn því!. Gæti verið talsvert ódýrara en políhúðun Þetta er orðið notað talsvert á sílsa, hurðarföls, stuðara, dráttarbeisli og fleiri staði sem mæðir mikið á. Það sem þarf kanski að passa helst með felgurnar er að setja alls ekki þykkt lag á flangsinn sem leggst upp að nafinu.
Eins og með allt.... því betri sem undirvinnan er því betur endist efnið