Síða 1 af 1

fuel cut eliminator fyrir diesel.

Posted: 08.des 2010, 21:49
frá danfox
Veit einhver hvar ég fæ fuel cut eliminator fyrir LC 90 tdi common rail ??

Lét setja 2,5" opið púst undir bílinn og eftir það blæs túrbínan of miklu þ.e of hátt boost á milli 2300 till 3000 rpm, sem veldur því að common rail tölvan lokar fyrir eldsneytis flæðið.

Þetta veldur því að vélin " hikstar " aðeins á þessum snúning.
Það eru bara tvennt að gera, loka á þennan skynjara eða stífla pústið aftur sem ég vil helst ekki.

Kv Siggi Már

Re: fuel cut eliminator fyrir diesel.

Posted: 09.des 2010, 09:41
frá Freyr
Hvað er "fuel cut eliminator"???????

Ef þú blokkar skynjarann sem nemur þrýstinginn frá túrbínunni fer vélartölvan alveg í kerfi og bíllinn höktir í besta falli áfram ef hann fer í gang á annað borð.

Freyr

Re: fuel cut eliminator fyrir diesel.

Posted: 09.des 2010, 16:28
frá danfox
Freyr wrote:Hvað er "fuel cut eliminator"???????

Ef þú blokkar skynjarann sem nemur þrýstinginn frá túrbínunni fer vélartölvan alveg í kerfi og bíllinn höktir í besta falli áfram ef hann fer í gang á annað borð.

Freyr



Sæll Freyr, þetta er kannski ekki nóguvel orðað.

Fuel Cut Eliminator er græja til að plata MAP skynjarann þannig að hann nemi ekki að túrbínan sé að blása of miklu.

MAP skynjarinn í LC 90 common rail lokar á eldsneytið við 14 - 15 psi.

En hvað með það, það er búið að finna lausn á þessu, þeir hjá Samrás eru búnir að finna lausn við þessu vandamáli fyrir allnokkrum árum síðan ;)

Kv Siggi Már