GPSmap.is uppfærsla með uppfærðum jöklum og sprungukorti

Fyrir allt sem tengist leiðsögu- og fjarskiptatækjum.
User avatar

Höfundur þráðar
GPSmap.is
Innlegg: 15
Skráður: 31.mar 2014, 17:32
Fullt nafn: Ívar Kjartansson
Bíltegund: Opel Astra OPC
Staðsetning: Reykjavík
Hafa samband:

GPSmap.is uppfærsla með uppfærðum jöklum og sprungukorti

Postfrá GPSmap.is » 04.apr 2026, 11:26

Góðann daginn allir,

Ég vona að það sé í lagi að ég pósti hér smá tilkynningu um nýja útgáfu sem er komin af Íslandskorti GPSmap.is en útgáfa 2026.11 er stærsta útgáfa í mörg ár. Meðal þess eru glænýjar jöklaupplýsingar þar sem jöklarnir hafa hopað nokkuð greinilega og svo glænýtt spurngukort sem kom út í mars 2026.

Image Image

https://www.gpsmap.is/is

Uppfærslur - Náttúrufræðistofnun
• Nýtt lag sem varpar ljósi á hafsvæði sem eru berskjölduð við fjöru
• Uppfærsla á allri strandlengju
• Allar hæðarlínur
• Allar ár og lækir, þar með talið nöfn
• Öll vötn og tjarnir, þar með talið nöfn
• Öll örnefni með yfir 3000 nýjum bætt við, þar á meðal vötn, fossar og fjöll
• Öll hraunrennsli frá eldfjöllum á Reykjanesi undanfarin ár, þar á meðal uppfærslur sem endurspegla breytingar á vegum á svæðinu

Uppfærslur - Veðurstofa Íslands
• Allir jöklar uppfærðir með glænýjum gögnum frá 2025 og nákvæmari en nokkru sinni fyrr
• Sprungukort á jöklum uppfært með nýjum útgefnum gögnum sem komu út í mars 2026

Uppfærslur - Vegagerðin
• Allar brýr og undirgöng

Uppfærslur - OpenStreetMap
• Allar stígar og gangstígar
• Allir fjallstindar með hæðartölum
• Allir skógar
• Algjörlega nýir áhugaverðir staðir: Hleðslustöðvar, bensínstöðvar, fjallstindar, vitar, bankar, hraðbankar, barir, kvikmyndahús, skyndibitastaðir, líkamsræktarstöðvar, sjúkrahús, hótel, kaffihús, bókasöfn, söfn, pósthús, veitingastaðir, skólar, stórmarkaðir, leikhús og fleira

Uppfærslur - ANDROID kort
• NÝTT göngukort: Auk fjögurra korta sem við höfum boðið upp á hingað til höfum við nú bætt við tveimur fyrir gönguferðir til að varpa ljósi á göngusvæði á afskekktum svæðum. Gönguleiðir eru nú sýnilegar með hærri aðdráttarstigum (zoom out)
• Bekkjum, umferðarljósum og/eða hverfis endurvinnslutunnum hefur verið bætt við eða uppfært á eftirfarandi stöðum: Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Akureyri
• Bættar merkingar á nöfnum stöðuvatna og lækja þannig að hvert heiti birtist aðeins einu sinni, sem kemur í veg fyrir tvíteknar merkingar í OruxMaps
• Flest tákn hafa verið hönnuð eða uppfærð: Bílastæði, bílakjallari, hleðslustöðvar, hótel, veitingastaðir, skyndibitastaðir, líkamsræktarstöðvar, skólar, kaffihús og fleira

Aðrar uppfærslur
• Ísafjörður - Uppfærðar vegir á iðnaðarsvæðum
• Selfoss - Uppfærðar byggingar og vegir
• Minniborgir - Nýir ómalbikaðir vegir
• Akureyri - Naustahverfi uppfært
• Blönduós - Uppfærðar byggingar og vegir


Íslandskort GPSmap.is er fyrir Garmin GPS tæki, MapSource, nRoute og OruxMaps (Android).

Skoðið heimasíðuna a http://www.GPSmap.is


kaos
Innlegg: 132
Skráður: 08.okt 2014, 22:52
Fullt nafn: Kári Össurarson

Re: GPSmap.is uppfærsla með uppfærðum jöklum og sprungukorti

Postfrá kaos » 01.maí 2026, 13:33

Er hægt að kaupa þessi kort án þess að stofna Paypal reikning? Ég sé að núna eru þeir farnir að safna nafnskírteinanúmerum, og það er kaftæði sem ég vil ekki taka þátt í. Er mögulegt að millifæra greiðsluna?

--
Kveðja, Kári.

User avatar

jongud
Innlegg: 2732
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: GPSmap.is uppfærsla með uppfærðum jöklum og sprungukorti

Postfrá jongud » 02.maí 2026, 08:04

kaos wrote:Er hægt að kaupa þessi kort án þess að stofna Paypal reikning? Ég sé að núna eru þeir farnir að safna nafnskírteinanúmerum, og það er kaftæði sem ég vil ekki taka þátt í. Er mögulegt að millifæra greiðsluna?
--
Kveðja, Kári.


Ég held að það sé hægt að stofna PayPal reikning og nota t.d. gjafakort frá bönkunum. Þannig ertu ekki að gefa upp "raunverulegt" kreditkortanúmer.
Annars hef ég notað sama Paypal reikning í örugglega 20 ár og get ekki sagt að þeir hafi neitt verið að spamma mann.


kaos
Innlegg: 132
Skráður: 08.okt 2014, 22:52
Fullt nafn: Kári Össurarson

Re: GPSmap.is uppfærsla með uppfærðum jöklum og sprungukorti

Postfrá kaos » 02.maí 2026, 08:33

Ég hef ekkert á mṕti því að gefa upp kreditkortanúmer, a.m.k. til aðila sem ég treysti. Það er eiginlega óhjákvæmilegt ef maður vill eiga viðskipti á netinu. Í þeim skilningi eru gjafakort bankanna líka kredit (eða debet-) kort. Ef menn vilja lágmarka áhættuna er hægt að nota fyrirframgreidd kreditkort eða gjafakort.

Núna er PayPal hins vegar einnig farið að heimta nafnskírteinisnúmer (eða vegabráfsnúmer minnir mig) og það eru persónunjósnir sem ég sé enga afsökun fyrir.

Mér þætti líka gott að geta einfaldlega keypt vöru án þess að vera þvingaður til þess að stofna varanlegan reikning hjá þriðja aðila, hver sem það er.

--
Kveðja, Kári.

User avatar

jongud
Innlegg: 2732
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: GPSmap.is uppfærsla með uppfærðum jöklum og sprungukorti

Postfrá jongud » 04.maí 2026, 08:13

kaos wrote:Ég hef ekkert á mṕti því að gefa upp kreditkortanúmer, a.m.k. til aðila sem ég treysti. Það er eiginlega óhjákvæmilegt ef maður vill eiga viðskipti á netinu. Í þeim skilningi eru gjafakort bankanna líka kredit (eða debet-) kort. Ef menn vilja lágmarka áhættuna er hægt að nota fyrirframgreidd kreditkort eða gjafakort.

Núna er PayPal hins vegar einnig farið að heimta nafnskírteinisnúmer (eða vegabráfsnúmer minnir mig) og það eru persónunjósnir sem ég sé enga afsökun fyrir.

Mér þætti líka gott að geta einfaldlega keypt vöru án þess að vera þvingaður til þess að stofna varanlegan reikning hjá þriðja aðila, hver sem það er.

--
Kveðja, Kári.


Það gæti nú líka einfaldlega verið vegna alþjóðasamninga. Það er t.d. verið að taka á peningaþvætti á alþjóðavísu og fyrirtæki eins og Paypal sem velta tugmilljörðum verða að gera grein fyrir því hver er á bak við færslur. Og þá dugir ekki bara tölupóstfang til.


Til baka á “Ferlar og fjarskipti”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 2 gestir