Besta kortaforrit+kortagrunnur fyrir Windows spjaldtölvur.

Fyrir allt sem tengist leiðsögu- og fjarskiptatækjum.

Höfundur þráðar
kaos
Innlegg: 128
Skráður: 08.okt 2014, 22:52
Fullt nafn: Kári Össurarson

Besta kortaforrit+kortagrunnur fyrir Windows spjaldtölvur.

Postfrá kaos » Í dag, 09:05

Sælt veri fólkið,

Nýlega fékk björgunarsveitin okkar, Bræðrabandið, Dell Latitude 7212 spjaldtölvu að gjöf frá Eimskip. Þetta er hin verklegasta tölva, "ruggedized" og með innbyggðum GPS móttakara. Einn notkunarmöguleikinn fyrir verkfærið er augljóslega sem plotter. Svo að nú langar mig að spyrja viskubrunn Jeppaspjallsins hvaða forrit og kortagrunn væri best að nota. Þeir möguleikar sem ég veit af eru:
1: Ozi Explorer. Þrautreynt forrit, en ég hef ekki fundið neinn sem er að auglýsa kortagrunn fyrir það í dag.
2: Garmin Nroute. Þetta forrit notaði ég á árum áður, þegar "car-PC" var í tísku. Líkaði vel, og það er fáanlegur nýr kortagrunnur sem á að virka með því. Hins vegar er notkun á forritinu sjálfu kannski á dálítið gráu svæði. Mér sýnist að það sé ekki fáanlegt frá Garmin lengur, og þó ég lumi á "öryggisafriti" þá líður mér ekki alltof vel með að nota það í björgunarsveitartæki.
3: Orux Maps. Þetta er auðvitað Android forrit, en mögulega hægt að keyra undir Windows í emulator. Hef samt áhyggjur af því hvernig gengur að fá það til að tala við GPS móttakarann. Einhver með reynslu af því?

Allar upplýsingar og tillögur vel þegnar.

--
Kveðja, Kári.



Til baka á “Ferlar og fjarskipti”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 0 gestir