Hér eru myndir af Gaz69 í undirbúningi fyrir nýtt lakk, á að taka húdd, bretti og stuðara í sandblástur. Annað verður bara pússað niður. Bíllinn er alveg óryðgaður, gerður upp árið 1980 af góðum manni á Egs. Ég eignaðist bílinn í sumar, bíllinn er í mjög góðu ásigkomulagi að öllu leiti og verður settur á skrá í vor. Fleiri myndir munu koma síðar.
Hér eru myndir af því sem búið er að gera, semsagt sandblása.
Uppfærsla 1.4.2012./
Búið að gera ýmislegt síðan við kíktum hingað inn síðast, enda liðið heilt ár. Góðir hlutir gerast hægt.
Búið er að vinna boodíið alveg og sprauta það ásamt aukahlutum.Ekki þurfti að kveikja á rafsuðu í verkinu því bíllin er stráheill enda verið allasína tíð á héraði.
Síðan voru allir aukahlutir og smáhlutir svo sem skrúfur og skinnur að sjálfsögðu málað líka!
Allar rúður voru teknar úr fyrir verkið og hús pússað mikið. Stefnt er á að klára að raða saman nú um páska og koma fleiri myndir þegar verkið er lokið!
Jæja þá er verkinu lokið, þótt það sé nú þó nokkuð síðan, fór loksins og tók myndir af honum til að sýna ykkur.
Gaz69 árg 66 U 1447 nýjar myndir
Gaz69 árg 66 U 1447 nýjar myndir
Síðast breytt af Rusky þann 18.apr 2013, 21:46, breytt 6 sinnum samtals.
-
- Innlegg: 233
- Skráður: 22.mar 2010, 20:52
- Fullt nafn: Hallgrimur Hrafn Gíslason
- Bíltegund: Mussó, VW , MMC
- Staðsetning: Fellabær
Re: Gaz69 árg 66 unninn fyrir sprautun
þessi er flottur Viddi. Verður sami litur á honum? Hvaða vél í honum.?
Re: Gaz69 árg 66 unninn fyrir sprautun
Grímur Gísla wrote:þessi er flottur Viddi. Verður sami litur á honum? Hvaða vél í honum.?
Er að spá í að hafa hann hvítan einlitan með svörtum stuðurum og stigbrettum en á eftir að útfæra nánar. Vélin er úr Volgu ekki orginal flatheddari.
-
- Innlegg: 665
- Skráður: 10.mar 2010, 11:54
- Fullt nafn: Guðmundur Árni sigurðsson
- Bíltegund: gaz69m
- Staðsetning: niður við sjó í flóanum flata
Re: Gaz69 árg 66 unninn fyrir sprautun
hvað var volgu vélin aftur stór
annars mjög fallegur bíll .
annars mjög fallegur bíll .
sé það framleit úr sovéskustáli þá langar mig að eignast það.
-
- Innlegg: 319
- Skráður: 01.feb 2010, 00:32
- Fullt nafn: Einar Steinsson
- Staðsetning: Austurríki
- Hafa samband:
Re: Gaz69 árg 66 unninn fyrir sprautun
gaz69m wrote:hvað var volgu vélin aftur stór
Volga var með 4 sílendra 2.4L vél sögð kringum 95 hö.
KGB átti Volgur með 5.5L V8 og sjálfskiptingu, mig langar að eignast eina svoleiðis. Þær voru notaðar sem fylgdarbílar með stóru Chayka og ZIL limmunum.
Re: Gaz69 árg 66 unninn fyrir sprautun
Flottur, vonandi leynist ekki mikið leyniryð, er þetta svokallað Kristinshús sem er á honum ?
Til baka á “GAZ og annað austantjalds”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 8 gestir