Sælir,
Ég er búinn að vera í þónokkrum vandræðum með Pajeroinn minn og margir búnir að koma að þessu vandamáli en ekki hefur
fundist lausn á vandamálinu. Nú er spurning hvort að einhver þekki vandamálið :)
Þannig er að bíllinn er sjálfskiptur og stundum lætur skiptingin mjög illa og jafnvel eins og hún festist bara í einum gír. Lengi vel var þetta þannig að stundum lét hann svona illa og var svo bara í lagi þess á milli en núna upp á síðkastið hefur hann versnað.
Þetta er verst út á vegi vegna þess að bíllinn skiptir sér ekki yfir í overdrive gírinn og er því á öskrandi snúning ef að reynt er að notast við ræfilinn út á vegi. Innanbæjar er vandamálið ekki svo mikið vegna þess að hann skiptir sér bara nokkuð eðlilega fyrstu þrjú þrepin.
Er einhver sem að þekkir vandamálið? Er einhver með góða hugmynd um hvað gæti verið að?
Þakkir fyrir svörin,
Kveðja úr norðurlandinu :)
Vandamál með sjálfskiptingu í "95 árg. af pajero 2.8 diesel
-
- Innlegg: 79
- Skráður: 15.jan 2012, 00:23
- Fullt nafn: Páll Hjaltalin Árnason
Re: Vandamál með sjálfskiptingu í "95 árg. af pajero 2.8 diesel
Gætir þurft að stilla pikk barkann upp við inngjöf eins gætihann verið farinn aðstífna.
Var meðsama vandamál prófaðu aðaftengja pikk barkann og prófaðu.
kv Palli á Akureyri.
Var meðsama vandamál prófaðu aðaftengja pikk barkann og prófaðu.
kv Palli á Akureyri.
-
- Innlegg: 460
- Skráður: 28.apr 2010, 13:36
- Fullt nafn: Kristján Már Guðnason
- Bíltegund: Jeep cj5
- Staðsetning: Reykjavík
Re: Vandamál með sjálfskiptingu í "95 árg. af pajero 2.8 diesel
Spurning hvort þessi skipting sé með einhverjum tölvubúnaði ég þekki það nú ekki sjálfur en ef svo er ætti að vera einhver "sensor" eða álíka sem gæfi skiptingatölvunni uppl um hvaða snúning vélin væri á til að velja réttann gír,
Bara hugdetta
kv Kristján
Bara hugdetta
kv Kristján
-
- Innlegg: 2098
- Skráður: 31.jan 2010, 22:59
- Fullt nafn: Stefán Stefánsson
- Bíltegund: Eitthvað blátt
- Staðsetning: Hafnarfjörður
Re: Vandamál með sjálfskiptingu í "95 árg. af pajero 2.8 diesel
Þetta er Aisin Warner skipting, spurning hvort þetta er ekki bara AW4 eins og í öðrum hverjum sjálfskiptum jeppa frá þessum tíma.
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"
Re: Vandamál með sjálfskiptingu í "95 árg. af pajero 2.8 diesel
Blikkar nokkuð ljósið fyrir læsinguna í afturdrifinu.?
Það hefur komið fyrir þegar þeir rofar klikka þá heldur tölvan að hann sé splittaður og þá neitar hann honum um að fara í overdrive, hann virðist ekki gera greinarmun á því hvort hann sé í háa eða lága drifinu.
Kv.

- Innlegg: 15
- Skráður: 12.okt 2014, 10:21
- Fullt nafn: Guðmundur Brynjólfur Hjartarson
- Bíltegund: rexton
Re: Vandamál með sjálfskiptingu í "95 árg. af pajero 2.8 diesel
Talaðu við Ara smurstöðinni Klöpp Reykjavík
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 8 gestir