Síða 1 af 1

á veiðum eftir víbring...

Posted: 05.mar 2012, 22:34
frá Groddi
Ég med ss með YJ 93 með il6 4L Vélinni AX15 gírkassa, 231 millikassa, dana 30 og 35 jóka að aftan og draglið að framan.

Þetta med leyðindar víbringur þegar bíllinn er í inngjöf eða vélin að halda við, þegar ég kúpla kverfur víbringurinn. Kúpling/diskur med í lagi!

Allar uppástungur hvað ég ætti að skoða eru velkomnar.

Ég er búinn að rífa afturdrifið ad, þar kom í ljós að annar demparinn var ónýtur, pinjon pakning lekur og er að hugsa hvort að legustúturinn á millikassanum, þar sem jókið fer inn sé slitið...

Guðannabænum hjálp! Er að verða vitlaus á þessum víbring!

Re: á veiðum eftir víbring...

Posted: 05.mar 2012, 23:04
frá pattigamli
er ekki rétt að þjöppumæla.Lenti í svipuðu fyrir nokkrum árum og það reindist vera orlítið opin ventill sem virkaði þannig að hann hætti að ganga á öllum í álægi en var þokkalegur álagslaus en sást í þjöppumælingu.

Re: á veiðum eftir víbring...

Posted: 05.mar 2012, 23:11
frá Forsetinn
Er þetta ekki bara ónýtur hjöruliður.... prófa taka afturskaft úr og keyra í framdrifi.... þ.e.a.s. ef þú hefur ekki þá þegar prófað það.

Re: á veiðum eftir víbring...

Posted: 05.mar 2012, 23:20
frá spámaður
ég veðja á hjöruliðskross..

Re: á veiðum eftir víbring...

Posted: 05.mar 2012, 23:57
frá KÁRIMAGG
Þó ekkert slag sé í krossunum geta þeir verið farnir að þorna og festast sem orsakar tregðu og víbring og jafnvel högg.
Ef það er komið smá slit í draglið getur hann orsakað víbring líka.
Ég myndi prófa að fá lánað annað drifskaft sem er í lagi til að útiloka/staðfesta skaftið

Re: á veiðum eftir víbring...

Posted: 06.mar 2012, 03:13
frá Kiddi
Ertu búinn að fikta eitthvað í afstöðu á hásingum?

Re: á veiðum eftir víbring...

Posted: 06.mar 2012, 09:37
frá Groddi
Það eru nýir krossar í öllum sköftum, það var það fyrsta sem ég skipti út.. med þjöppumæla hann segiði... ætti að prufa það, med buinn að panta nya fóðringu í millikassan, ...

Re: á veiðum eftir víbring...

Posted: 17.mar 2012, 19:28
frá Groddi
Hmmm... þegar ég var búinn að setja allt saman og herða, fór út að keyra, og viti menn! enginn víbringur... magnað

Groddi