Síða 1 af 1
Hvað hásingar eru undir þessum
Posted: 17.jún 2011, 17:11
frá Svenni30
Hvað hásingar eru undir þessum og hvernig motor er í þessu ? er ekki einhver 8 cyl sleggja
Mjög vígalegur og flottur þessi. Væri gaman að sjá fl myndir af honum.


Re: Hvað hásingar eru undir þessum
Posted: 17.jún 2011, 17:34
frá JonHrafn
Vá breiddin á þessu :þ
Re: Hvað hásingar eru undir þessum
Posted: 17.jún 2011, 19:20
frá jeepcj7
Þetta lítur út fyrir að vera dana 44 undan líklega blazer og er líklega ca.170 cm. breið þetta er alveg fullorðins breidd.;o)
Re: Hvað hásingar eru undir þessum
Posted: 17.jún 2011, 19:37
frá JonHrafn
ramcharger kemur líka til greina ekki satt, þær eru svakalega breiðar.
Re: Hvað hásingar eru undir þessum
Posted: 17.jún 2011, 20:31
frá jeepcj7
Jú gæti verið dodge svipuð breidd en yfirleitt leiðinda legubúnaður,samsettir öxlar,lokuleysi,5 gata deilingu til skiptis stóru og litlu og þessháttar sem gerir að fáir nota það dót.
Blazerinn er aftur á móti meira að segja með 6 on 5,5 felguboltadeilingu.
Re: Hvað hásingar eru undir þessum
Posted: 18.jún 2011, 00:21
frá Startarinn
Ég veit að það er 6 gata deiling undir þessum, félagi minn lánaði dekk undir hann fyrir skoðun einhverntímann.
Vélin minnir mig að sé chevy 350 LT1
Alveg trufluð vinnsla ef hann fær að snúast aðeins
Sá sem smíðaði þennan var, síðast þegar ég vissi, að smíða annan á 46" dekkjum og mig minnir að vélin sem á að nota sé 454 twin turbo
Re: Hvað hásingar eru undir þessum
Posted: 19.jún 2011, 22:12
frá helgiaxel
hmm, 351 lt1? er þetta þá 350 í yfirbori? lt1 er chevy vél
Kv
Helgi Axel
Re: Hvað hásingar eru undir þessum
Posted: 19.jún 2011, 23:06
frá oggi
þessi er á króknum en var smíðaður í biskupstungum af manni sem er kallaður Doddi þá var lt1 350 chevy í húddinu og hásingarnar voru héðan og þaðan svona made in sveitin allt soðið saman