Síða 1 af 1

D 300 ford millikassi

Posted: 19.aug 2016, 23:06
frá brunki
sælir bræður og systur meikur forvitni að vita hvort 300 ford millikassi sé til með fyrir vinstri kúluna ef svo er þá þætti mér gott ef einhver ætti tl

Re: D 300 ford millikassi

Posted: 19.aug 2016, 23:07
frá brunki
mér leikur átti að vera þarna heheh

Re: D 300 ford millikassi

Posted: 19.aug 2016, 23:18
frá Stjáni Blái
Dana 300 er bara til fyrir hægri kúlu og kom í Jeep CJ árg 80-86 og í skát árg '80 en þeir eru mjög sjaldgæfir og með sama bolta flangs og skát Dana 20. Á meðan Jeep kassinn er með þessum hefðbundna Np 6 bolta flangs...

Re: D 300 ford millikassi

Posted: 19.aug 2016, 23:35
frá brunki
ok ég er að breyta hjá mér er búinn að setja NP 435 gírkassa og ætlaði að nota 208 kassann en hann er of stór og rekst í grindina áður en hann sest í sætið sitt þetta er broncó ll og ætlaði að nota í staðinn 205 kasaann en er of þungur hvað annað gæti ég notað dana 20 er of lítill fyrir 46" dekk gæti þeygið uppástungur

Re: D 300 ford millikassi

Posted: 19.aug 2016, 23:55
frá Stjáni Blái
Ég myndi ekki afskrifa dana 20 kassan, hann er varla mikið veikari en Dana 300. sérstaklega ef að menn eru búnir að setja endaslagslegur í staðin fyrir skífurnar svo að hann stikni ekki í lága drifinu.. ég myndi allavega halda að hann sé ekki alslæmur, sérstaklega ef að hann er aftan á gírkassanum nú þegar..
Annars gætiru skoðað Jeep NP 231 eða 242.. Þeir eru léttir en sterkir og með 2.72:1 hlutfall í lágadrifinu og fyrir kúluna vinstramegin.

Re: D 300 ford millikassi

Posted: 20.aug 2016, 00:05
frá olei
46" dekk hafa ekkert annað að gera en að halda á NP205 :)

Smá grín í þessu en líka alvara. Sífelldar áhyggjur af þyngd eru stórlega ofmetið fyrirbæri í sjóakstri. Alveg sérstaklega á svona stórum dekkjum.

Reyndar er gamli góði gullmolinn NP205 ekki með neina sérstaka gírun og því væru aðrir kassar mjög líklega eftirsóknarverðari. Ég er því miður ekki nægilega vel inn í millikassamálum fyrir vinstri kúlur til að geta bent þér á eitthvað sniðugt.

Re: D 300 ford millikassi

Posted: 20.aug 2016, 17:57
frá Dr. Zoidberg
NP241 á að passa þarna. Hann er með 1:2.73 lágan gír. Er með hann aftan í Bronco 2 aftan á T18. Þetta eru þokkalegir kassar sem koma meðal annars í Suburban og einhverjum Dodge. Nartaði lítillega í minn á einum stað svo hann rækist ekki í boddí. Ekkert mál með grind.

Re: D 300 ford millikassi

Posted: 21.aug 2016, 21:16
frá brunki
takk strákar skoða þessa kassa sem þið nefnið