Síða 1 af 1
gormar í stað fjaðra í Hilux
Posted: 27.sep 2010, 09:45
frá karig
Hvernig gorma hafa menn sett undir Hilux að framan í stað blaðfjaðra og hver er mesti munurinn á eiginleikum bílsins á eftir? Hefur einhver notað stífur og gorma úr 70 Crusier undir Hilux. Á nokkur myndir af svona breytingum sem hann gæti sent mér. Kv, Kári.
karig4@simnet.is
Re: gormar í stað fjaðra í Hilux
Posted: 27.sep 2010, 11:19
frá Hlynurh
Það er mjög margir bílar komir með hásingu undan 70 cruise
t.d. minn
http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=235&g2_itemId=272151svo bíllin hans Sigurgeirs
http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=235&g2_itemId=52416svo Atla Eggerts
http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/rorunhilux.htmÞetta eru allt saman undir orginal klafa bíla þú þyrftir að finna þér stýrismaskínu úr svoleiðis bíl eða úr 70 crúser ef þú ætlar að gormavæða....
Með gorma þá höfum við allir sett rover gorma undir þessa bíla kosta ekki mikið og þeir hjá bsa eru mjög liðlegir í að hjálpa þér að velja réttu gormana
Með eigileikan bílsins þá held ég að frá fjöðrum er þetta bara plús töluvert mýkri fjöðrun og liðugri enn eins og ég segi þá var bíllin minn klafa bíll og hef engar reinslu af fjöðrum að framan .. ef þú hefur eitthverjar spurningar máttu senda mér línu á
Hlynurhilm@gmail.comKv Hlynur
Re: gormar í stað fjaðra í Hilux
Posted: 27.sep 2010, 12:15
frá Brjótur
Sælir smá leiðrétting , það þarf ekkert að fá stýrirsmaskínu úr 70 Cruiser, ég gerði þetta á sínum tíma og ég færði hásinguna fram um 5 cm, og þú sérð að Atli notar maskínuna úr klafabílnum, ég man ekki afhverju menn byrjuðu á þessu að nota maskínu úr 70 bílnum, kanski voru þeir að færa hásinguna meira fram?
kveðja Helgi
Re: gormar í stað fjaðra í Hilux
Posted: 27.sep 2010, 13:59
frá Startarinn
Ástæðan fyrir því að skipta um stýrismaskinuna getur bæði verið að þú sért að færa hásinguna framar (armurinn á maskínunni úr 70 cruiser snýr fram) eða að þú sért að setja þetta undir fjaðrabíl (þá vísar armurinn niður og gengur fram og aftur í stað þess að ganga til hliðar)
Ég er með klafabíl, ég færði bara maskínuna neðar og lengdi öxulinn frá stýrinu niður að maskinu, ég notaði meira að segja annað orginal gatið í grindinni minnir mig en færði festinguna ofan á niður fyrir grind, en ég færði hásinguna ekki nema 2-3 cm fram.
kv
Addi
Re: gormar í stað fjaðra í Hilux
Posted: 27.sep 2010, 15:40
frá karig
Takk fyrir þetta, veit nokkur hvað svona rover gorma setup gefur slaglanga fjöðrum, kv,k.
Re: gormar í stað fjaðra í Hilux
Posted: 27.sep 2010, 18:00
frá Hlynurh
ég var svosem að meina að fá úr klafa bíl eða 70 crúser ég notaði orginal maskínuna hjá mér ....
kv hlynur
Re: gormar í stað fjaðra í Hilux
Posted: 27.sep 2010, 20:11
frá Kiddi
Það er alveg hægt að ná um 30 cm fjöðrun útúr Rover gormum, þeir eru í lengri kanntinum miðað við það sem er í boði af orginal gormum en mættu samt alveg vera lengri!
Re: gormar í stað fjaðra í Hilux
Posted: 27.sep 2010, 23:36
frá Adam levý
ég á rover gorma, stífur og dempara samsláttarpúða, getur fengið hásinguna líka , þetta er undir hilux sem ég er aða fara að rífa,
hringdu ef þú hefur áhuga
8233049